Spurningakeppni sveitarfélaga frá 2018. Þátttakendur að þessu sinni eru lið frá þeim sveitarfélögum sem komust í úrslit árin á undan eða hafa oftast komist nálægt því. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Sólmundur Hólm. Spurningahöfundur og dómari er Jón Svanur Jóhannsson. Stjórn útsendingar: Helgi Jóhannesson.
Lið Kópavogs: Kolbeinn Marteinsson, Katrín Júlíusdóttir, Skúli Þór Jónasson
Lið Fjarðabyggðar: Birgir Jónsson, Hákon Ásgrímsson, Heiða Dögg Liljudóttir
Heimildarþættir um danskar fjölskyldur þar sem börnin vaða uppi og ráða lögum og lofum á heimilinu. Ráðalausir foreldrarnir fá til liðs við sig sálfræðing sem sérhæfir sig í barnauppeldi í von um að ná aftur stjórn á afkvæmunum.
Stuttir þættir þar sem þátttakendur og gestir deila frásögnum úr 50 ára sögu Listahátíðar í Reykjavík.
Hanna Styrmisdóttir, listrænn stjórnandi Listahátíðar árin 2012-2016 segir frá Vessel Orchestra og Guerilla Girls. Víkingur Heiðar Ólafsson, píanóleikari, segir frá Evgeny Kissin.
Íslensk þáttaröð í sex hlutum um dans. Þar er leitað svara við spurningum um hvers vegna fólk dansar, hvernig dansgleðin kviknar og hvers vegna sumir fæðast flinkir dansarar en aðrir taktlausir flækjufætur. Farið verður yfir sögu dansins á Íslandi, mismunandi danstegundir kannaðar og við kynnumst því hvernig dansinn brýst fram á ólíklegustu stöðum. Umsjón: Guðrún Sóley Gestsdóttir. Framleiðsla: Skot.
Dansinn gegnir ótal ólíkum hlutverkum. Hann býr til samstöðu, losar um hömlur og léttir lundina. Við stígum mótmæla- og mökunardans, merkingarhlaðinn fyrsta dans og kærulausan hversdagsdans. Í þessum þætti kynnumst við dansi sem örlagavaldi í lífi fólks, þegar dansinn kveikir neista sem verður að báli.

Ævintýri Tulipop er skemmtileg þáttaröð um litríkan vinahóp sem býr á töfraeyjunni Tulipop. Á hverjum degi gerast ný ævintýri á eyjunni sem sem geta haft áhrifaríkar afleiðingar í för með sér en vináttuböndin reynast ævinlega traust.
Sveppasystkinin Búi og Gló villast í helli og rifja upp þegar þau villtust af leið í berjatýnsluleiðangri í Leyniskóginum. Þar lentu þau í óvæntu en jafnframt mjög skemmtilegu ævintýri, borðuðu boltaber (stærstu og safaríkust ber á allri Tulipop) og eignuðust nýjan vin.
Ný bresk gamanþáttaröð eftir John Morton. Hugh Bonneville mætir til leiks sem Ian Fletcher í aðdraganda heimsmeistaramótsins í fótbolta sem fram fer í Norður-Ameríku í sumar. Aðalhlutverk: Hugh Bonneville, Jessica Hynes og Karl Theobald.
Velskir spennuþættir frá 2022. Blaðakonan Cat Donato snýr aftur á heimaslóðir sínar í Wales í von um að komast að því hvað varð um vinkonu hennar, Elu Roberts, sem hvarf fyrir 18 árum. Aðalhlutverk: Alexandra Roach, Joanna Scanlan og Iwan Rheon. Þættirnir eru ekki vð hæfi barna yngri en 12 ára.

Samantekt frá leikjum dagsins á HM karla í fótbolta.

Leikir á HM karla í fótbolta.
Leikur Panama og Króatíu á HM karla í fótbolta.
Þættir sem fjalla um þjóðirnar sem taka þátt á HM karla í fótbolta. Við kynnumst leikmönnum, þjálfurum og þeim þjóðum sem keppa um heimsmeistaratitilinn á þessum stærsta viðburði vinsælustu íþróttagreinar veraldar.
Fjallað er um Úrúgvæ, Kólumbíu, Paragvæ og Ekvador.

Leikir á HM karla í fótbolta.
Leikur Kólumbíu og Kongó á HM karla í fótbolta.
Þættir sem fjalla um þjóðirnar sem taka þátt á HM karla í fótbolta. Við kynnumst leikmönnum, þjálfurum og þeim þjóðum sem keppa um heimsmeistaratitilinn á þessum stærsta viðburði vinsælustu íþróttagreinar veraldar.
Fjallað er um Brasilíu, Þýskaland, Holland og England.

Samantekt frá leikjum dagsins á HM karla í fótbolta.