
Spurningakeppni framhaldsskólanna frá 1989. Spyrill: Vernharður Linnet. Stjórn útsendingar: Sigurður Jónasson.
Í þessum þætti keppa lið Fjölbrautaskólans í Breiðholti og Menntaskólans að Laugarvatni.

Finnskir heimildarþættir þar sem fylgst er með konum á meðgöngu, allt frá því að þær komast að því að þær eru barnshafandi og þar til börnin koma í heiminn.

Gamanþættir frá 2009-2010 þar sem leikararnir Karl Ágúst Úlfsson, Pálmi Gestsson, Sigurður Sigurjónsson og Örn Árnason bregða á leik, sprellfjörugir að vanda. Stjórn upptöku: Björn Emilsson.

Þáttaröð sem segir frá því hvernig venjulegt fólk getur orðið svikahröppum að bráð. Hvaða eiginleika hafa svikahrappar sem gera það að verkum að gagnrýnin hugsun verður að engu og þeir ná að svindla á okkur?

Meistarakokkurinn Hrefna Sætran býður landsmönnum heim til sín á pallinn í Litla-Skerjafirði. Þar ætlar hún að grilla gómsæta rétti sem auðvelt er að útbúa. Nautakjöt, fiskur, lambakjöt, grænmeti, kjúklingur, svínakjöt og ávextir verða í aðalhlutverki í þessum sólríka og skemmtilega grillþætti.
Dagskrárgerð: Kristófer Dignus.
Framleiðandi: Stórveldið.
Ný íslensk heimildarþáttaröð í umsjón Ara Eldjárns um íslenskar kvikmyndir. Í hverjum þætti er ein sígild kvikmynd tekin fyrir. Skyggnst er á bak við tjöldin og áður óséð myndefni birt. Rætt er við leikstjóra, handritshöfunda, framleiðendur, leikara, búninga- og leikmyndahönnuði, kvikmyndastjóra, klippara og fleira fagfólk, sem ljóstra upp ýmsum leyndarmálum frá gerð myndanna.
Fjallað er um gerð gamanmyndarinnar Dís frá árinu 2004. Meðal þeirra sem fram koma eru Álfrún Örnólfsdóttir, Silja Hauksdóttir, Oddný Sturludóttir og framleiðandinn Agnes Johansen. Þátturinn er tileinkaður minningu Agnesar.

Sænskir heimildarþættir frá 2022 þar sem farið er yfir tískusögu Svíþjóðar frá 1960 til dagsins í dag. Auk þess er fjallað um þekktustu fatahönnuði landsins. Í hverjum þætti er einn áratugur tekinn fyrir.


Katta er 14 ára og er einkar lagin við að koma sér í vandræðalegar aðstæður. Sem betur fer er hún með app í símanum sínum sem getur fært hana aftur í tímann.

Bresk sjónvarpsþáttaröð úr heimi vísindaskáldskapar fyrir unglinga. Árið 1997 hurfu fjórir krakkar úr Silfruskógi. Tuttugu og þremur árum seinna ákveður strákur einn að komast að því hvað í raun og veru gerðist í skóginum þennan örlagaríka dag.
Hlutirnir fara ekki samkvæmt áætlun þegar Glen reynir að fjarskipta sjálfum sér í gegnum orkugjafann.
Hvað gerist þegar besta vinkonan byrjar að hanga með einhverjum öðrum? Saga um vináttu sem rofnar og breytist. Þáttaröðin er á sænsku með íslenskum texta.
Algerlega nýr heimur opnast fyrir Ellu þegar hún og Alexa prófa snyrtivörur hjá Bonnie. En Ella fær eitthvað lánað sem er alls ekki hennar að fá lánað.
Matilda er metnaðarfullur námsmaður og vill standa sig vel í skólanum. Hana dreymir líka um gott félagslíf, að skemmta sér jafn mikið og vinsælu jafnaldrar hennar - en hvernig fer hún að því? Hún pantar klón af sér á dularfullri vefsíðu og þarf skyndilega að takast á við tvífara sem tekur yfir líf hennar.
Matilda þarf að taka stóra ákvörðun um sjálfa sig og klónið.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Umfjallanir um leiki á HM karla í fótbolta.
Upphitun fyrir 8-liða úrslit á HM karla í fótbolta.

Leikir á HM karla í fótbolta.
Leikur Spánar og Belgíu í 8-liða úrslitum á HM karla í fótbolta.

Samantekt frá leikjum dagsins á HM karla í fótbolta.

Samantekt frá tónlistarhátíðinni Aldrei fór ég suður sem haldin var á Ísafirði í apríl 2026. Stjórn útsendingar: Helgi Jóhannesson.

Breskt drama frá 2021 um Talithu Campbell, dóttur auðugs athafnamanns, sem er handtekin, grunuð um morð á skólasystur sinni. Lögmaðurinn Cleo Roberts er ráðin til að verja Talithu á meðan lögregla og saksóknari vinna hörðum höndum að því að sanna sekt hennar. Aðalhlutverk: Celine Buckens, Tracy Ifeachor og Joseph Payne. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.