
HM í frjálsíþróttum innanhúss í Póllandi.
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.
Seðlabankinn hækkaði stýrivexti í gær um 0,25 prósentustig og eru þeir því orðnir 7,5 prósent. Verðbólga mælist 5,2 prósent, sem þýðir að forsendur kjarasamninga í haust eru í hættu. Fjármálaráðherra kallar eftir samstilltu átaki ríkis, vinnuveitenda og verkalýðshreyfingar - en varar við að þær yrðu ekki sársaukalausar. Halla Gunnarsdóttir, formaður VR og Þorsteinn Víglundsson, formaður Samtaka iðnaðarins. eru gestir Kastljóss.
Rauði liturinn er allsráðandi á legudeildum Landspítalans - sem þýðir að þær eru yfirfullar. Hjúkrunarfræðingur segir að að eitt sinn hefði mátt líkja ástandinu við snjóhengju - en nú sé hún fallin. Við fylgjumst með starfsfólki Landspítalans reyna að finna rúm fyrir sjúklinga.
Umræðu um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að ESB verður ekki haldið áfram á Alþingi fyrr en eftir páska. Þá kemur í ljós hvort atkvæðagreiðslan verði 29. ágúst eins og stefnt er að. Fram að því má búast við líflegum umræðum og ljóst er að almenningur hefur fjölmargar spurningar sem tengjast bæði atkvæðagreiðslunni og mögulegri aðild að ESB. Torgið næsta þriðjudag verður helgað þeim spurningum

Bein útsending frá spurningakeppni sveitarfélaga. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Sólmundur Hólm. Spurningahöfundar: Ævar Örn Jósepsson og Jón Svanur Jóhannsson. Dómari: Ævar Örn Jósepsson. Stjórn útsendingar: Helgi Jóhannesson.

Karl Ágúst, Pálmi, Sigurður, Randver og Örn bregða á leik sprellfjörugir að vanda. Stjórn upptöku: Björn Emilsson.
Kveikur er fréttaskýringaþáttur með áherslu á rannsóknarblaðamennsku. Ritstjórn og dagskrárgerð: Ragnhildur Þrastardóttir, Arnar Þórisson, Árni Þór Theodórsson, Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir, Ingvar Haukur Guðmundsson, Jóhann Bjarni Kolbeinsson, Sunna Karen Sigurþórsdóttir og Tryggvi Aðalbjörnsson.
Blóðug og sár dýr sem farin eru að naga sig inn að beini er á meðal þess sem sést á myndum úr loðdýrabúum hér á landi. Sár sem eru þess eðlis að aflífa ætti dýrið, til þess að lina þjáningar þess.
Ljósmyndir sem teknar voru í þremur minkabúum hér á landi varpa ljósi á aðbúnað minkanna, sem lifa alla sína ævi í litlum búrum, í þeim tilgangi að ala af þeim feld, sem síðan er sendur úr landi.
Spurningakeppni framhaldsskólanna. Spurningahöfundar og dómarar eru Arnar Gunnarsson, Sigurlaugur Ingólfsson og Vilhjálmur Bragason. Spyrill er Helga Margrét Höskuldsdóttir. Stjórn útsendingar: Sturla Holm Skúlason.
Fjölbrautaskóli Suðurlands mætir Fjölbrautaskóla Vesturlands. Keppendur frá Fjölbrautaskóla Suðurlands: Valgeir Gestur Eysteinsson, Hjálmar Vilhelm Rúnarsson og Hrafnhildur Svava Hemmert Sigurðardóttir. Keppendur frá Fjölbrautarskóla Vesturlands: Ísólfur Darri Rúnarsson, Sunna Arnfinnsdóttir og Morten Ottesen.


Finnlands-sænskir þættir þar sem krakkar segja frá áhugamálum sínum.
Fylgstu með hugrökkum krökkum breytast í smáspæjara og takast á við fjölbreytt verkefni og ráðgátur í Krimmaborg. Með hjálp frá Spæjara X og Ninjo elta þau útsmogna skúrka og læra að vinna saman á skemmtilegan og spennandi hátt. Serían er með íslenskum texta.

Dana er 9 ára stelpa sem elskar risaeðlur. Líf hennar breytist til frambúðar þegar hún fær gefins handbók um risaeðlur, sem kennir henni ekki aðeins nýja hluti um dýrin, heldur gefur henni ofurkrafta sem gera henni kleift að sjá fyrir sér risaeðlur í raunveruleikanum.
Matilda er metnaðarfullur námsmaður og vill standa sig vel í skólanum. Hana dreymir líka um gott félagslíf, að skemmta sér jafn mikið og vinsælu jafnaldrar hennar - en hvernig fer hún að því? Hún pantar klón af sér á dularfullri vefsíðu og þarf skyndilega að takast á við tvífara sem tekur yfir líf hennar.
Matilda prófar að panta klón.

Fróðlegir danskir þættir þar sem þáttastjórnendur rannsaka matinn sem við borðum dags daglega.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.

Brot af því besta úr Stúdíói RÚV. Þættir um íslenska dægurtónlist þar sem tónlistarfólk færir landsmönnum tónlist heim í stofu. Dagskrárgerð: Guðmundur Atli Pétursson og Sigurður Þorri Gunnarsson.

Gísli Marteinn tekur á móti góðum gestum á föstudagskvöldum í vetur og fer með þeim yfir helstu atburði vikunnar í stjórnmálum, menningu og mannlífi. Persónur og leikendur koma í spjall og brakandi fersk tónlistaratriði koma landsmönnum í helgarstemninguna. Stjórn útsendingar: Ragnar Eyþórsson.
Nýir breskir spennuþættir. Sherlock Holmes rannsakar alþjóðlegt glæpasamsæri og nýtur liðsinnis Ameliu, ungrar bandarískrar konu sem leitar bæði að föður sínum og morðingja móður sinnar. Aðalhlutverk: David Thewlis, Blu Hunt og Ardal O‘Hanlon.

Bandarísk spennumynd frá 2021 með Liam Neeson í aðalhlutverki. Jim Hanson er búgarðseigandi í Arizona sem dregst inn í átök eiturlyfjagengis þegar hann aðstoðar ungan mexíkóskan dreng á flótta. Leikstjóri: Robert Lorenz. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.

HM í frjálsíþróttum innanhúss í Póllandi.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.