Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Margrét Helga Erlingsdóttir og Kristján Kristjánsson. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.
Ófremdarástand hefur ríkt í SÁÁ undanfarnar vikur. Forstjóri, yfirlæknir og fagstjóri hafa sagt upp störfum vegna ósættis við framkvæmdastjórn og saka hana og formann hennar um óeðlileg afskipti af faglegu starfi. Valgerður Rúnarsdóttir, fráfarandi framkvæmdastjóri lækninga, er gestur Kastljóss.
Tölvuárás sem gervigreind á vegum OpenAI framdi af sjálfsdáðum í sumar kom tæknigeiranum í opna skjöldu. Margir forkólfar stærstu tæknifyrirtækja heims kalla eftir að hægt verði á þróun gervigreindar. En er það hægt? Við förum yfir hvað gerðist í sumar og ræðum við Hilmar Veigar Pétursson, forstjóra Fenris Creations.
Tragikómedían Gunnella eftir Kötlu Þórudóttur Njálsdóttur var frumsýnd í Tjarnarbíói á dögunum. Við litum á æfingu.
Spurningakeppni framhaldsskólanna frá 1995. Spyrill: Ómar Ragnarsson. Dómari og spurningahöfundur: Ólafur B. Guðnason. Stigavörður: Sólveig Samúelsdóttir. Dagskrárgerð: Andrés Indriðason.
Í þessum þætti mætast lið Verzlunarskóla Íslands og Flensborgarskóla í Hafnarfirði í undanúrslitum. Lið Verzlunarskóla Íslands skipa Hafþór Hafliðason, Haukur Eggertsson og Ragnar Jóhannsson. Lið Flensborgarskóla skipa Sigurbjörn J. Björnsson, Guðmundur Sverrir Jónsson og Þórarinn B. Þórarinsson.
Þættir sem fjalla um hringrásarhagkerfið, þar sem hlutir og hráefni fara í hring og eins manns rusl verður annars fjársjóður. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir og Freyr Eyjólfsson. Framleiðsla: Republik.
Hvað ef hægt væri að breyta gömlum raftækjum í húsgögn, fatnað, nammifelutæki og tónlist? Jafnvel gera við þau ef þau bila?

Karla er 8 ára kjúklingur, sem hefur það að markmiði að halda öllum ánægðum, svo lengi sem það kemur ekki niður á lífi hennar. Hún elskar skólann sinn og alla vini sína. Hún leggur hart að sér til að þóknast öllum, en stundum ganga hlutirnir ekki alveg eins og áætlað var. Í þessum þáttum eru félagsleg samskipti og tilfinningar þeim tengd könnuð út frá heimi krakkanna. Hvað er rétt og hvað er rangt? Getur maður átt fleiri en einn besta vin?
Velkomin til Eplabæjar. Eplabær er svo daufur og óspennandi að hann hefur verið tekinn út af landakortum. En ef betur er að gáð fela jafnvel mestu leiðindin í sér ævintýri. Stundum getur ómerkilegasti staðurinn orðið vettvangur stórkostlegra uppátækja – ef ímyndunaraflið fær að ráða.
Flóra er níu ára og finnur gat í limgerðinu úti í garði. Hún skríður í gegn og er skyndilega stödd í skóginum endalausa – galdraheimi þar sem allt getur gerst. Þar ráfa um skrítnar og stórkostlegar verur. Þær lenda í ýmiss konar vandræðum og enginn getur hjálpað þeim – nema kannski Flóra sjálf?
Þegar afi ykkar er búin að þjálfa ykkur sem skrímslaveiðimenn, þá er ekkert annað í stöðunni en að veiða öll skrímslin! Það er þó eitt vandamál, krakkarnir elska skrímslin og vilja helst bara bjarga þeim. Það geta þau gert á meðan afi blundar, eða hvað?
Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Umsjón og handrit: Ari Páll Karlsson og Embla Bachmann. Ritstjórn: Ari Páll Karlsson.
Dagur íslenskrar náttúru🌿
1. Krakkaskýing: dagur íslenskrar náttúru 2. Fyrsta vindorkuverið tekið í notkun.
Þættir frá 2011 um ungt og áhugavert fólk sem skarar fram úr á hinum ýmsu sviðum. Skyggnst er inn í líf einnar persónu í hverjum þætti og henni fylgt eftir í sínu daglega lífi. Umsjón: Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir. Stjórn upptöku og myndvinnsla: Eiríkur I. Böðvarsson.
Bardagamaðurinn Gunnar Nelson er talinn einn efnilegasti íþróttamaður heims í blönduðum bardagaíþróttum og hefur einstakt hugarfar hans og hugarró vakið mikla athygli. Ragnhildur Steinunn skyggnist inn í líf Gunnars.

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Margrét Helga Erlingsdóttir og Kristján Kristjánsson. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.
Rætt við Önnu Hildi Guðmundsdóttur, formann SÁÁ, um deilur innan samtakanna, brotthvarf forstjóra og fagfólks vegna þeirra og ákvörðun stjórnarinnar um að sitja sem fastast þrátt fyrir deilurnar.
Rætt við Bergljótu Gunnarsdóttur sem hefur endurbyggt dúkkuhús í minningu vinkonu sinnar og gefið Kvennaathvarfinu.
Fjallað um íslenska hjólareiðafyrirtækið Lauf Cycles sem framleiðir fjallahjól og selur m.a. til Bandaríkjanna og áskoranir á leið fyrirtækisins frá því það var stofnað.

Sextánda þáttaröð þessara margverðlaunuðu þátta sem vakið hafa athygli fyrir nýstárleg og frumleg efnistök. Fólk með þroskahömlun vinnur þættina með fagfólki í sjónvarpsgerð og miðlar þannig fjölbreytileika íslensks samfélags. Dagskrárgerð: Elín Sveinsdóttir.
Í þessum þætti er viðtal við fjölmiðlagoðsögnina Gunnar Smára Egilsson. Okkur er stungið inn í Hegningarhúsið við Skólavörðustíg þar sem við skoðum breytingar sem þar hafa átt sér stað og fögnum 40 ára starfsafmæli Elínar Steingrímsdóttur hjá Nóa Síríusi. Þá eru það íþróttir og menning að hætti hússins og auðvitað fylgjumst við með kokkunum okkar æfa sig fyrir heimsmeistaramótið í Lúxemborg í haust.

Finnlands-sænskir þættir frá 2022. Vinkonurnar Tara og Malin verja sumri í sumarhúsi í sænsku sveitinni. Þar njóta þær náttúrunnar, elda mat og kryfja alls kyns málefni á borð við vináttu, líkamsímynd, átraskanir og kulnun.
Sannsögulegir breskir spennuþættir frá 2022. Þættirnir segja sögu Nicholas Elliot og Kim Philby, njósnara í bresku leyniþjónustunni og vina til margra ára. Veröld Nicholas umturnast þegar upp kemst að Kim stundaði gagnnjósnir fyrir Sovétríkin. Aðalhlutverk: Guy Pearce, Damian Lewis og Anna Maxwell Martin. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.

Bresk heimildarmynd frá 2023 í leikstjórn Hönnuh Berryman. Franski fatahönnuðinn Coco Chanel breytti tískuheiminum til frambúðar snemma á 20. öld. Nútímalegt viðhorf hennar gerði það að verkum að hönnun hennar á erindi enn þann dag í dag.
Önnur þáttaröð bresku dramaþáttanna um lögregluþjóninn Chris sem tekst á við glæpi og ofbeldi á götum Liverpool-borgar á sama tíma og hann berst við djöfla í einkalífi sínu. Chris reynir af fremsta megni að koma sér á beinu brautina, en þegar hann kemst upp á kant við einn stærsta eiturlyfjasala borgarinnar hallar undan fæti hjá honum. Aðalhlutverk: Martin Freeman, Adelayo Adedayo og Romi Hyland-Rylands. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngi en 12 ára.