Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.

Bein útsending frá spurningakeppni sveitarfélaga. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Sólmundur Hólm. Spurningahöfundar: Ævar Örn Jósepsson og Jón Svanur Jóhannsson. Dómari: Ævar Örn Jósepsson. Stjórn útsendingar: Helgi Jóhannesson.

Sænskur heimildarþáttur um vel geymt fjölskylduleyndarmál. Sænska fréttakonan Carina Bergfeldt kemst á snoðir um að hún eigi mögulega hálfbróður í Bandaríkjunum og ákveður að reyna að hafa upp á honum.
Sigmar Guðmundsson fær til sín góða gesti úr öllum áttum og ræðir við þá undir fjögur augu. Gestirnir eiga það sameiginlegt að hafa áhugaverða sögu að segja. Dagskrárgerð: Salóme Þorkelsdóttir.
Gestur Sigmars Guðmundssonar er Katrín Tanja Davíðsdóttir, tvöfaldur heimsmeistari í Crossfit. Hún segir frá ferli sínum og fórnunum sem þarf að færa til að vera í fremstu röð í heiminum.
Þáttur um mannlífið í landinu. Landinn leitar uppi skemmtilegt fólk í bæjum og sveitum og skoðar áhugaverða staði landshorna á milli. Ritstjóri er Gísli Einarsson. Aðrir umsjónarmenn: Edda Sif Pálsdóttir, Þórdís Claessen, Hafsteinn Vilhelmsson, Amanda Guðrún Bjarnadóttir og Andri Freyr Viðarsson. Dagskrárgerð: Jóhannes Jónsson, Hjalti Stefánsson, Benedikt Nikulás Anes Ketilsson, Björgvin Kolbeinsson og Adelina Antal.
Í Landanum í kvöld ferðumst við til staða sem ferðamenn eru ekki mikið að sækja í, við hittum ungan og framsækinn fatahönnuð, við kynnum okkur sögu grafhýsa á Íslandi og við fylgjumst með smíð á torfærubílum Túttunni.

Karla er 8 ára kjúklingur, sem hefur það að markmiði að halda öllum ánægðum, svo lengi sem það kemur ekki niður á lífi hennar. Hún elskar skólann sinn og alla vini sína. Hún leggur hart að sér til að þóknast öllum, en stundum ganga hlutirnir ekki alveg eins og áætlað var. Í þessum þáttum eru félagsleg samskipti og tilfinningar þeim tengd könnuð út frá heimi krakkanna. Hvað er rétt og hvað er rangt? Getur maður átt fleiri en einn besta vin?

Önnur þáttaröð af Monsunum Kára, Villa og Hönnu sem lenda í alls kyns ævintýrum og þurfa að standa saman til að takast á við illmennið Ívar.

Önnur þáttaröð um Lalla, sem færir ykkur allan heiminn þegar hann grípur litina sína. Hann er svo flinkur að teikna hann Lalli!

Flóra er níu ára og finnur gat í limgerðinu úti í garði. Hún skríður í gegn og er skyndilega stödd í skóginum endalausa – galdraheimi þar sem allt getur gerst. Þar ráfa um skrítnar og stórkostlegar verur. Þær lenda í ýmiss konar vandræðum og enginn getur hjálpað þeim – nema kannski Flóra sjálf?

Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Umsjón og handrit: Ari Páll Karlsson og Embla Bachmann. Ritstjórn: Ari Páll Karlsson.

Ferðaþættir í umsjá útivistarhjónanna Brynhildar Ólafsdóttur og Róberts Marshall þar sem þau ferðast með fólki um ósnortna náttúru Íslands.
Í sumarlok í fyrra lögðu 6 konur það á sig að synda í boðsundi yfir Ermarsundið. Viðureign þeirra við sundið mikla, háa öldutoppa og sjóveiki reyndi mikið á þolgæði og samstöðu hópsins. Þetta er saga þjáninga, hláturs og gráturs. Í síðari hluta þáttarins er fylgst með 4 hressum krökkum skipuleggja og upplifa sitt eigið útivistarævintýri í nágrenni höfuðborgarsvæðisins.

Vikinglottó-útdráttur vikunnar.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.

Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.

Upptökur frá tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Hörpu.
Fyrsti flautuleikari Fílharmóníusveitar Berlínar, Stefán Ragnar Höskuldsson, flytur flautukonsert Liebermanns með Sinfóníuhljómsveit Íslands undir stjórn Tomáš Hanus. Tónleikarnir hefjast á hinu áhrifaríka Adagio eftir Jón Nordal sem var lykilverk á tónsmíðaferli Jóns. Kynnir er Halla Oddný Magnúsdóttir.

Dönsk heimildarmynd frá 2025 í leikstjórn Ole Juncker. Árið 2023 fékk Kunsten nútímalistasafnið í Álaborg listamanninn Jens Haaning til að endurskapa tvö listaverk sem táknuðu árstekjur meðallaunamanns í Danmörku og Austurríki. Safnið sendi honum 538 þúsund danskar krónur í reiðufé sem Haaning hugðist líma á striga málverkanna. Þegar afhenda átti verkin kom í ljós að hann hafði stungið peningunum í eigin vasa og eftir stóðu aðeins tveir tómir rammar sem báru titilinn Hirtu peningana og forðaðu þér (e. Take the Money and Run).
Sænskir leiknir heimildarþættir frá 2023. Farið er yfir sögu Svíþjóðar frá ísöld til dagsins í dag. Yfir 300 sérfræðingar komu að gerð þessarar tíu hluta þáttaraðar þar sem sögulegir viðburðir eru endurskapaðir. Sögumaður: Simon J. Berger. Leikstjórar: Niklas Fröberg og Niklas Vidinghoff.

Umfjallanir um leiki í undankeppni EM kvenna í handbolta.
Upphitun fyrir leik Færeyja og Ísland í undankeppni EM kvenna í handbolta.

Leikir í undankeppni EM kvenna í handbolta.
Leikur Færeyja og Íslands í undankeppni EM kvenna í handbolta.

Umfjallanir um leiki í undankeppni EM kvenna í handbolta.
Uppgjör á leik Færeyja og Íslands í undankeppni EM kvenna í handbolta.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.