Spurningakeppni framhaldsskólanna frá 1994. Spyrill: Stefán Jón Hafstein. Dómari: Ólafur B. Guðnason. Stigavörður: Sólveig Samúelsdóttir. Dagskrárgerð: Andrés Indriðason.
Í þessum þætti mætast lið Verzlunarskóla Íslands og Verkmenntaskólans á Akureyri. Lið Verzlunarskóla Íslands skipa Jón Sigurðsson, Haukur Eggertsson og Hafþór Hafliðason. Lið Verkmenntaskólans á Akureyri skipa Bjarki Þór Baldvinsson, Rúnar Sigurpálsson og Sigtryggur Símonarson.
Íslensk þáttaröð í átta hlutum. Einlægar og opinskáar frásagnir fólks sem býr við aðstæður í daglegu lífi sem eru ólíkar öllu sem flestir eiga að venjast. Dagskrárgerð: Elín Sveinsdóttir. Framleiðsla: SERES hugverkasmiðja
Berglind Stefánsdóttir býr við heyrnarleysi og veröld hennar er ekki síðri en hinna sem heyra. Það sést vel í starfi hennar og leik þar sem hún lætur draumana rætast.
Viðtals- og tónlistarþáttaröð í umsjón Jóns Ólafssonar. Jón fær til sín ýmsa tónlistarmenn í spjall og saman laða þeir fram ljúfa tóna. Dagskrárgerð: Jón Egill Bergþórsson.
Viðtals- og tónlistarþáttaröð í umsjón Jóns Ólafssonar. Jón fær til sín ýmsa tónlistarmenn í spjall og laðar fram í þeim ljúfa tóna fyrir áhorfendur. Í þessum þætti er Hafdís Huld gestur Jóns. Dagskrárgerð: Jón Egill Bergþórsson.
Heimildarþáttaröð frá 2020. Ofurhuginn Børge Ousland er enginn venjulegur útivistarmaður. Haustið 2019 hélt hann yfir Norður-Íshafið á skíðum og tók ferðina upp. Svaðilförin gekk ekki alveg að óskum og Ousland glímir við hrikalegar aðstæður á hjara veraldar.
Stuttir þættir þar sem þátttakendur og gestir deila frásögnum úr 50 ára sögu Listahátíðar í Reykjavík.
Sveinn Einarsson, leikstjóri og meðlimur í fyrstu stjórn Listahátíðar árið 1970, segir frá fyrstu Listahátíðinni og Clöru Pontoppidan. Sara Marti, söngkona Lhooq, segir frá því þegar hljómsveit hennar kom fram fyrir David Bowie tónleika.
Þáttaröð þar sem Gunnlaugur Helgason húsasmiður leiðir áhorfendur í allan sannleika um hver fyrstu skrefin eru þegar taka á húsnæði í gegn. Gulli hefur verið fengin til þess að koma lagi á kjallara í 65 ára gömlu húsi í Reykjavík. Óþefur og ýmis konar skordýr hafa hrjáð þá sem kjallarinn hefur hýst um nokkurn tíma og greinilegt er að húsið er komið á tíma. Undir leiðsögn Gulla og fagmanna á hverju sviði vinna íbúar og eigendur húsnæðisins, ásamt vinum og ættingjum að breytingunum. Dagskrárgerð: Hrafnhildur Gunnarsdóttir. Framleiðandi: Krummafilms.
Gulli tekur fram bensínsögina og gerir göt á gólfplötuna í kjallaranum því nú skal leggja nýjar lagnir. Gröfumenn koma í heimsókn og grafa fyrir nýjum lögnum og pípulagningamenn dunda sér við að hanna nýtt lagnakerfi í kjallara hússins í Vesturbænum. Sýni af myglusveppnum á milli hæða er sent norður til Akureyrar þar sem hinn fróði sveppafræðingur Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir greinir hann og fræðir okkur um áhrif hans á heilsu fólks. Að lokum eru allar lagnir komnar í gólf og þá er steypt yfir allt heila klabbið.

Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Umsjón og handrit: Ari Páll Karlsson og Embla Bachmann. Ritstjórn: Ari Páll Karlsson.
1. Snjólaug hefur starfað sem dagmamma í 40 ár 2. Krakkaskýring: tollering.
Ljúkum þættinum á broti úr Perlum sjónvarpsins, nýjum þáttum á RÚV📺
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Margrét Helga Erlingsdóttir og Kristján Kristjánsson. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.
Ríkissjóður verður rekinn með fimm milljarða króna afgangi ef fjárlagafrumvarp fjármálaráðherra nær fram að ganga. Stjórnarandstaðan gagnrýnir ríkisstjórnina fyrir að ná hallalausum fjárlögum með hærri álögum og sköttum, sem leggist á almenning. Arna Lára Jónsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, og Stefán Vagn Stefánsson, þingmaður Framsóknarflokksins, ræða fjárlögin.
Þýski harðlínuflokkurinn AFD vann stórsigur og nærri hreinan meirihluta í sambandslandinu Saxland-Anhalt um helgina. Jóhanna Ýr Bjarnadóttir doktor í stjórnmálafræði í Berlín fer yfir úrslitin með okkur.
Við kynnum okkur líka nýja gamanþætti um ástríðufullar fótboltamömmur, sem kalla ekki allt ömmu sína á hliðarlínunni.
Sigríður Hagalín Björnsdóttir og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.
Þjóðin hefur svarað spurningunni um það hvort hefja eigi á ný aðildarviðræður við ESB. Svarið var neitandi, en þó standa eftir margar spurningar sem þarf að svara á næstu misserum. Silfrið verður helgað þeim verkefnum sem framundan eru í hagkerfinu og samskiptum Íslands við umheiminn, m.a. í gegnum EES-samninginn og Atlantshafsbandalagið.
Gestir verða Benedikt Gíslason, forstjóri Arion banka, Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, Björn Bjarnason, fv. dómsmálaráðherra, Sigríður Mogensen, sviðstjóri hugverka og iðnaðar hjá Samtökum iðnaðarins, Sonja Þorbergsdóttir formaður BSRB og Stefán Pálsson sagnfræðingur og varaborgarfulltrúi Vinstrisins.
Umsjón með þættinum hefur Sigríður Hagalín Björnsdóttir.
Leikin þáttaröð frá 2025 byggð á sannsögulegum atburðum. Eftir að hersveitir Bandaríkjanna og bandamanna þeirra í NATO yfirgefa Afganistan í ágúst 2021 líður ekki að löngu þar til Talibanar hefja að taka yfir hverja borgina á fætur annarri þvert á gefin loforð. Almennir borgarar, diplómatar og hermenn keppast við að komast í öruggt skjól áður en Kabúl fellur. Aðalhlutverk: Jonathan Zaccaï, Vassilis Koukalani og Darina Al Joundi. Handritshöfundar: Olivier Demangel og Thomas Finkielkraut. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Breskir heimildarþættir frá 2021. Hvað felst í að ganga með annarra manna barn? Fjallað er um flókinn veruleika staðgöngumæðra í Bretlandi út frá sjónarhorni fimm kvenna og verðandi foreldra barnanna sem þær ganga með.
Sannsöguleg leikin þáttaröð um eitt stærsta réttarfarshneyksli í sögu Bretlands. Hundruð útibússtjóra hjá breska póstinum voru ranglega ákærðir og dæmdir fyrir fjársvik sem rekja mátti til galla í hugbúnaðarkerfi póstsins. Aðalhlutverk: Toby Jones, Monica Dolan, Julie Hesmondhalgh og Will Mellor.
Sænskir heimildarþættir frá 2023. Felix hefur í mörg ár orðið fyrir áreitni í gegnum nafnlaus smáskilaboð. Sendandinn ætlar ekki að gefast upp fyrr en hann hefur lagt líf Felix í rúst. Hver er á bak við skilaboðin? Hvað hefur Felix gert og getur hann stoppað þetta? Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.