
Gamansamir þættir um strútapabbann Edda og áttburana hans. Eddi strútapabbi er fullkomnunarsinni og reynir að gera allt sem í hans valdi stendur til að vernda áttburana sína. Hann á fullt í fangi með það, enda eru ævintýrin hjá stórri fjölskyldu mörg og ímyndunaraflið mikið.
Eddi strútapabbi er með óvæntan glaðning fyrir börnin sín, borðtennisborð! Honum er þó enginn hlátur í huga þegar það kemur í ljós að dóttir hans er miklu betri en hann í borðtennis..
Krúttlegir og vinalegir þættir fyrir þau allra yngstu. Molang er búttaður lítill „kanínugrís“. Hún er sérvitur, glaðvær og áhugasöm. Besti vinur hennar er litli hænuunginn Piu Piu. Molang er kóresk teiknimyndapersóna og afskaplega vinsæl í heimalandinu.
Ný sería um hinn vinsæla Bjössa Brunabangsa! Í þessari seríu fylgjumst við með hetjunni Bjössa brunabangsa, sem elskar að keyra slökkviliðsbíl og slökkva elda. Á hverjum einasta degi leysir hann spennandi verkefni með hjálp frá samstarfsfólki sínu.
Velkomin til Eplabæjar. Eplabær er svo daufur og óspennandi að hann hefur verið tekinn út af landakortum. En ef betur er að gáð fela jafnvel mestu leiðindin í sér ævintýri. Stundum getur ómerkilegasti staðurinn orðið vettvangur stórkostlegra uppátækja – ef ímyndunaraflið fær að ráða.
Jöklarnir hafa hopað og allar þjóðsagnaverurnar úr gömlu bókunum eru komnar fram í dagsljósið. Ormhildur og Albert gamli leggja af stað í leiðangur með Guðrúnu og Brynhildi. Þau ætla að fremja galdraseið til að kveða vættirnar aftur inn í jöklana. Allt fer á hliðina þegar Albert er tekinn höndum og hópurinn hrapar í fjallinu. Á ferðalaginu uppgötvar Ormhildur að hún býr yfir leyndum hæfileika og kemst að því að töfraverurnar eru ekki allar þar sem þær eru séðar.
Ormhildur sækir nykratað við Nykurvatn til að setja á eldinn. Óvart kemur lítið nykurfolald með henni heim. Litla skrímslið veldur uppnámi á eyjunni.
Íbúarnir eru þjáðir af þorsta því Hallgrímur hefur sölsað undir sig allt vatnið. Hann bælir reiði þeirra með göldrum. Hann vill ekki að Albert noti galdra til að láta allt verða eins og það var fyrir flóðið.
Þáttaröð um samband mannsins við dýr, allt frá skordýrum og býflugum til sela. Kolbrún Vaka hittir skemmtilegt fólk sem varpar ljósi á sérstakt samband okkar mannfólksins við dýrin. Dagskrárgerð: Karl Sigtryggsson.
Í þættinum fylgjumst við með hvolpinum Snæju taka þátt í hundasýningu. Hugum að selum í sjónum í Miðfirði. Hittum listakonuna Ingu Maríu sem sankar að sér dauðum dýrum. Heimsækjum landnámshænur í Breiðholtinu og rifjum upp hundahreinsunardaginn árið 1973.
Skemmtiþáttur um íslenska tungu í umsjón Braga Valdimars Skúlasonar og Vigdísar Hafliðadóttur. Þátttakendur etja kappi í fjölbreyttum leikjum og þrautum. Framleiðsla: Skot í samstarfi við RÚV.
Keppendur eru Hálfdán Helgi Matthíasson, Matthías Davíð Matthíasson, María Magnúsdóttir og Rebekka Magnúsdóttir.
30 ára ferill Spaugstofunnar og þeirra sem stóðu á bak við hana rakinn í upprifjun á gömlu sjónvarpsefni, viðtölum við mennina á bak við þættina og fjölmarga aðra sem tengdust þeim, birtust í þeim eða voru fórnarlömb þeirra. Umsjón: Gísli Marteinn Baldursson. Dagskrárgerð: Eiríkur Ingi Böðvarsson.
Ferskur og hispurslaus þáttur fyrir ungt fólk. Ýmis óvenjuleg málefni krufin út frá skemmtilegu sjónarhorni í nýjum og spennandi þætti þar leitað er svara við spurningum sem brenna á ungu fólki í dag. Umsjón: Katrín Ásmundsdóttir og Unnsteinn Manuel Stefánsson.
Þáttaröð í fjórum hlutum um líf innflytjenda á höfuðborgarsvæðinu. Fjallað er um námsmenn á Íslandi, þá sem hingað komu vegna ástar, vegna vinnu eða sóttu hér um hæli. Edoardo Mastantuoni Morbilli sem þekktur er sem Varði á Íslandi sér um þættina.
Þáttur um hljómsveitirnar sem tröllriðu tónlistarsenunni um aldamótin. Guðrún Sóley Gestsdóttir ræðir við helstu liðsmenn hljómsveitanna og rifjar upp sveitaböllin, tískuna og tíðarandann svo eitthvað sé nefnt. Stjórn upptöku: Salóme Þorkelsdóttir.
Þáttaröð frá árinu 2006 um íslenska einleikara sem allir hafa staðið framarlega í íslensku tónlistarlífi um lengri eða skemmri tíma. Umsjón: Jónas Sen. Dagskrárgerð: Jón Egill Bergþórsson.
Jónas Sen ræðir við Ásdísi Valdimarsdóttur víóluleikara.
Heimildarþættir um unglingamenningu á Íslandi í gegnum tíðina. Hver þáttur spannar einn áratug og eru unglingsárin krufin í gegnum viðtöl við þjóðþekkta Íslendinga. Leikstjórn: Björn B. Björnsson. Framleiðsla: Reykjavík Films.
Í fyrsta þætti Unga Íslands er fjallað um unglingamenningu á Íslandi á árunum 1990-2000. Viðmælendur í þættinum eru Birgitta Haukdal, Bragi Valdimar Skúlason, Ilmur Kristjánsdóttir, Lára Björg Björnsdóttir og Stefán Karl Stefánsson.
Árið 2016 voru fimmtíu ár síðan Ríkisútvarpið hóf sjónvarpsútsendingar og á þessum fimmtíu árum hefur það sýnt ógrynni af efni allstaðar að af landinu. Í 50 ár eru níu sjónvarpsþættir sem sendir voru út frá vel völdum stöðum á landinu sumarið 2016 þar sem rifjaðar voru upp sögur og svipmyndir af sjónvarpssögu viðkomandi landshluta. Umsjónarmenn: Gísli Einarsson og Guðrún Gunnarsdóttir. Dagskrárgerð: Karl Sigtryggsson.
Í þessum þætti flakka Guðrún Gunnars og Gísli Einars um Vestfirði og rifja upp sjónvarpsefni frá síðustu fimmtíu árum. Þau aka hina svakalegu Svalvogaleið og rifja upp þátt sem Ómar Ragnarsson gerði um þennan veg og ýtumanninn Elís Kjaran. Mick Jagger sést spóka sig á Ísafirði og við hittum manninn sem þekkti hann ekki í sjón! Hin geysivinsæla hljómsveit BG og Ingibjörg kemur við sögu en hún hét reyndar upphaflega BG og Árni. Við fylgjum Stundinni okkar til Suðureyrar. Við lítum við í Ingólfsfirði og á Hornbjargi og við flettum ofan af skíðagöngusvindli! Dagskrárgerð: Karl Sigtryggsson.
Norskir þættir þar sem fjallað er um hjónabandið í sögulegu samhengi. Það að við veljum okkur maka út frá ástinni er í raun tiltölulega nýtt í sögu hjónabandsins en lengst af voru það ættingjar, kirkjan og samfélagið í held sinni sem stýrðu því hverjir gengu í hjónaband.
Fyrir 150 árum var algengt að fólk gengi í hjónaband af allt öðrum ástæðum en ástinni. Í þessum þætti hittum við meðal annars par á tíræðisaldri sem fór þvert á venjur samfélagsins þegar þau fundu ástina á ný á miðjum aldri og hófu sambúð án þess að gifta sig. Í Noregi var nefnilega ólöglegt að búa í óvígðri sambúð fram til ársins 1972.

Þáttaröð fyrir alla fjölskylduna byggð á samnefndri metsölubók eftir Gunnar Helgason. Jón fer til Vestmannaeyja með liðsfélögum sínum úr Fálkum til að keppa á stærsta og skemmtilegasta fótboltamóti ársins. Draumar hans hafa þó verið slæmir þar sem eldgos og undarlega vondur markmaður eru að trufla hann. Í raunveruleikanum er það þó Ívar, brjálaði boltaþjófurinn, sem er hans helsti óvinur. Samtímis þarf Rósa að berjast fyrir tilverurétti sínum hjá Fylki. Innan vallar eru þau öll andstæðingar en utan vallar þurfa þau að snúa bökum saman og berjast upp á líf eða dauða.
Jón og Rósa fara heim til Ívars til að ná boltanum hans Jóns til baka. Það sem þau verða vitni að þar er verra en þau hafði nokkurn tímann grunað. Þau sjá að Ívar býr í víti. Nú þarf löggan að hjálpa.
Loft hefur tekið jarðormana í sátt og kynnist nú ævintýralegri tilvist þeirra í gegnum sjónaukann sinn og endurspeglar sjálft sig í þeim.
Áróra fer á ferðalag með Loft út í geim og þar hitta þau tja.... frekar furðulega veru!
Bresk leikin þáttaröð frá 2024. Fátæk fjölskylda af verkamannastétt verður vellauðug á svipstundu þökk sé róttækri viðskiptahugmynd þeirra. Þau kveðja slorið og flytja á sveitasetur þar sem þau þurfa að fóta sig í framandi heimi yfirstéttarinnar í Yorkshire í lok 19. aldar. Þættirnir eru byggðir á metsölubókum eftir C. L. Skelton. Aðalhlutverk: Claire Cooper, Liam McMahon og Shannon Lavelle. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Íslensk kvikmynd frá 2018 um Magneu, 15 ára unglingsstúlku sem kynnist hinni 18 ára gömlu Stellu og þróar sterkar tilfinningar til hennar. Stella leiðir hana inn í heim fíkniefna sem hefur alvarlegar afleiðingar fyrir þær báðar. Þegar leiðir þeirra liggja óvænt saman tólf árum síðar verður uppgjör þeirra á milli óumflýjanlegt. Myndin hlaut tólf Eddutilefningar, meðal annars sem besta myndin. Leikstjóri: Baldvin Z. Aðalhlutverk: Elín Sif Halldórsdóttir, Eyrún Björk Jakobsdóttir, Þorsteinn Bachmann, Sólveig Arnarsdóttir, Kristín Þóra Haraldsdóttir og Lára Jóhanna Jónsdóttir. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.