
Krúttlegir og vinalegir þættir fyrir þau allra yngstu. Molang er búttaður lítill „kanínugrís“. Hún er sérvitur, glaðvær og áhugasöm. Besti vinur hennar er litli hænuunginn Piu Piu. Molang er kóresk teiknimyndapersóna og afskaplega vinsæl í heimalandinu.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
Þegar afi ykkar er búin að þjálfa ykkur sem skrímslaveiðimenn, þá er ekkert annað í stöðunni en að veiða öll skrímslin! Það er þó eitt vandamál, krakkarnir elska skrímslin og vilja helst bara bjarga þeim. Það geta þau gert á meðan afi blundar, eða hvað?
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Gamansamir þættir um strútapabbann Edda og áttburana hans. Eddi strútapabbi er fullkomnunarsinni og reynir að gera allt sem í hans valdi stendur til að vernda áttburana sína. Hann á fullt í fangi með það, enda eru ævintýrin hjá stórri fjölskyldu mörg og ímyndunaraflið mikið.
Eddi hefur áhyggjur af því að barnið hans sem hefur tekið ástfóstri við krákubarn byrji að haga sér eins og kráka!
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Dana er 9 ára stelpa sem elskar risaeðlur. Líf hennar breytist til frambúðar þegar hún fær gefins handbók um risaeðlur, sem kennir henni ekki aðeins nýja hluti um dýrin, heldur gefur henni ofurkrafta sem gera henni kleift að sjá fyrir sér risaeðlur í raunveruleikanum.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Þáttaröð frá 2015 úr smiðju Ævars vísindamanns. Í þessari þáttaröð leggur Ævar allt undir. Laufblásara-knúin svifbretti, segulskór og skordýrahamborgari eru bara nokkrar af þeim æsispennandi tilraunum sem koma fyrir. Dagskrárgerð: Ævar Þór Benediktsson og Eggert Gunnarsson
Í þessum fyrsta þætti ætlar Ævar að rannsaka farartæki. Við fræðumst um fyrstu flugvélina, skoðum íslenskan kafbát og svo reynir Ævar að hjóla til Viðeyjar.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Í tilefni af því að 60 ár eru liðin síðan Ríkisútvarpið hóf sjónvarpsútsendingar verður boðið upp á lifandi afmælisþátt þar sem saga sjónvarpsins, ógleymanleg augnablik og sameiginlegar minningar þjóðarinnar fléttast saman við tónlist og skemmtun.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Íslensk fræðslumynd í tveimur hlutum um áhrif lífsstíls á heilsufar manna, en á undanförnum árum hefur áherslan á heilbrigt líferni vegið æ þyngra í baráttunni við ýmsa sjúkdóma. Dagskrárgerð: Páll Kristinn Pálsson og Aðalgeir Gestur Vignisson.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Heimildarþættir um fjölmenningu í íslensku samfélagi. Mannflóran er fjölbreyttari en nokkru sinni fyrr og þjóðarímyndin breytist með auknum fjölda fólks af erlendum uppruna. Ljósi er varpað á erfiðleikana sem fólk af erlendum uppruna mætir í íslensku samfélagi og fjallað um kosti fjölmenningar. Umsjón: Chanel Björk Sturludóttir.
Í þættinum er fjallað um sambönd fólks af ólíkum uppruna. Rætt er við sérfræðinga og fólk af erlendum uppruna um áhrif kynþáttahyggju á samskipti kynjanna og fjallað um tengsl kynþáttafordóma og nauðgunarmenningar.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Þáttur um mannlífið í landinu. Landinn leitar uppi skemmtilegt fólk í bæjum og sveitum og skoðar áhugaverða staði landshorna á milli. Ritstjóri er Gísli Einarsson. Aðrir umsjónarmenn: Edda Sif Pálsdóttir, Hafsteinn Vilhelmsson, Þórdís Claessen og Amanda Guðrún Bjarnadóttir. Dagskrárgerð: Jóhannes Jónsson, Björgvin Kolbeinsson, Benedikt Nikulás Anes Ketilsson, Adelina Antal og Hjalti Stefánsson.
Í Landanum í kvöld skoðum við hvers vegna einn merkasti sögustaður landsins stendur á krossgötum, við sjáum hvernig nýtt kerfi hefur fækkað byltum á Landspítalanum svo um munar, við brögðum á glænýjum fiski í Njarðvík og við hittum tónlistarkonu sem elti ástina til Ísafjarðar.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Heimildarþáttaröð um baráttuna við COVID-19 þar sem fylgst er með störfum þeirra sem stjórnuðu aðgerðum í faraldrinum. Í þáttunum er einblínt á mannlega hlið faraldursins og sagt frá sorgum og sigrum í baráttu þjóðarinnar við að hemja útbreiðslu veiru sem setti heimsbyggðina á hliðina. Leikstjóri: Sævar Guðmundsson. Framleiðendur: Sævar Guðmundsson, Jóhannes Kr. Kristjánsson, Anna Karen Kristjánsdóttir og Brynja Gísladóttir.
Hjónin Villi og Ludi liggja bæði á gjörgæsludeild í öndunarvél með COVID-19. Smitrakningateymið reynir að ná utan um smit í Pepsi-deildinni í fótbolta og Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum er í uppnámi.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Heimildamynd frá 2018 eftir Braga Þórðarson um 50 ára sögu torfærunnar á Íslandi. Myndin er byggð á viðtölum við ýmsa keppendur og aðstandendur torfærunnar í gegnum árin sem og myndböndum, ljósmyndum og blaðagreinum frá 50 ára sögu íþróttarinnar.
Heimildamynd eftir Braga Þórðarson um 50 ára sögu torfærunnar á Íslandi. Myndin er byggð á viðtölum við ýmsa keppendur og aðstandendur torfærunnar í gegnum árin sem og myndböndum, ljósmyndum og blaðagreinum frá 50 ára sögu íþróttarinnar.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Íslensk heimildarmynd frá 2019 þar sem vitasaga landsins er rakin, allt frá árinu 1878 þegar vitaljós lýsti í fyrsta sinn á Íslandsströndum. Yfir vitum hvílir dulúð þar sem þeir standa í stórbrotnu umhverfi á mörkum lands og sjávar og laða að sér fólk hvaðanæva úr heiminum. Leikstjóri: Einar Þór Gunnlaugsson.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Íslensk þáttaröð sem fjallar um ævina frá upphafi til enda. Einblínt er á eitt æviskeið í einu og skoðað hvað hver kynslóð er að fást við. Sagðar eru sögur af fólki á öllum aldri og tekist á við stórar spurningar. Dagskrárgerð: Eiríkur Ingi Böðvarsson og Sigríður Halldórsdóttir.
Í þessum þætti er fjallað um svokölluð (for)fullorðinsár, eða aldurinn frá 18 til 25 ára. Þegar maður er ekki lengur barn en samt kannski ekki alveg fullorðinn. Við hvað er maður að fást á þessum tíma? Annað en kvíðann yfir því að þurfa að taka fullt af ákvörðunum sem munu hafa mótandi áhrif á allt sem á eftir kemur. Nám, starfsvettvangur, lífsförunautur? Hvað í ósköpunum á maður að velja? Dagskrárgerð: Eiríkur Ingi Böðvarsson og Sigríður Halldórsdóttir.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt

Hvernig hugsa helstu listamenn og hugsuðir Svíþjóðar og hvaðan sækja þau sér innblástur og hvatningu? Í þessum þáttum er rætt við sænska meistara um sköpunarferlið, ákvarðanatöku og það hvernig mistök geta leitt til nýrra sigra.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Spennandi spurningaþáttur í beinni útsendingu þar sem baggalúturinn Guðmundur Pálsson og sjónvarpskonan Sigrún Ósk Kristjánsdóttir halda um stjórnartaumana. Fulltrúar bæjarfélaga um allt land spreyta sig á spurningum, glíma við heilabrot og leysa ýmsar þrautir. Hvaða lið stendur uppi sem landsmeistari? Stjórn útsendingar: Sturla Skúlason.
Reykjavík vestur mætir Vestmannaeyjum. Keppendur frá Reykjavík vestur eru Guðmundur Felixson, Laufey Haraldsdóttir og Þórdís Björk Þorfinnsdóttir. Keppendur frá Vestmannaeyjum eru Guðný Geirsdóttir, Guðjón Smári Smárason og Íris Róbertsdóttir.
- Dagskrárliðurinn er textaður sjálfvirkt
- Bein útsending

Kvikmynd úr smiðju Stuðmanna um endurfundi og gamlan, rómantískan ástarþríhyrning. Hjón sem búa í litlu þorpi fyrir austan heimsækja vinafólk sitt sem eru leikarar. Leikstjóri: Jakob Frímann Magnússon. Aðalhlutverk: Ragnhildur Gísladóttir, Egill Ólafsson og Tinna Gunnlaugsdóttir.
- Dagskrárliðurinn er textaður

Bandarísk gamanmynd frá 2017. Fjórar mæður sem virðast eiga fátt annað sameiginlegt en að eiga börn í sama leikskóla ákveða að gera sér glaðan dag og fara út að borða saman. Það sem í fyrstu átti að vera saklaus kvöldverður breytist fljótt í eitthvað allt annað. Leikstjóri: Alethea Jones. Aðalhlutverk: Katie Aselton, Toni Colette, Bridget Everett og Molly Shannon. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
Breskt drama frá 2025 um tvö pör sem komast að því sonum þeirra var víxlað á fæðingardeildinni. Eiga þau að halda barninu sem þau ólu upp eða fá líffræðilegt barn sitt aftur? Aðalhlutverk: James Norton, Niamh Algar, James McArdle og Jessica Brown Findlay. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson.
Kjaramál og atvinnuleysi, Landsvirkjun og samtal forseta Íslands og ungs fólks eru til umræðu í Vikulokunum í dag. Þátturinn er í þremur hlutum.
I. hluti: Kjaramál og atvinnuleysi
Arna Lára Jónsdóttir, formaður efnahags- og viðskiptanefndar
Björgin Víkingsson, framkvæmdastjóri Bónus
Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ
II. hluti: Landsvirkjun og Hörður Arnarson
Andrés Jónsson, almannatengill og stjórnendaráðgjafi
Guðmundur Hálfdánarson, sagnfræðingur
III. hluti: Rætt um samtal, gervigreind og frið
Halla Tómasdóttir, forseti Íslands
Lísa Margrét Gunnarsdóttir, forseti Landssamtaka íslenskra stúdenta
- Bein útsending