Árið 2016 voru fimmtíu ár síðan Ríkisútvarpið hóf sjónvarpsútsendingar og á þessum fimmtíu árum hefur það sýnt ógrynni af efni allstaðar að af landinu. Í 50 ár eru níu sjónvarpsþættir sem sendir voru út frá vel völdum stöðum á landinu sumarið 2016 þar sem rifjaðar voru upp sögur og svipmyndir af sjónvarpssögu viðkomandi landshluta. Umsjónarmenn: Gísli Einarsson og Guðrún Gunnarsdóttir. Dagskrárgerð: Karl Sigtryggsson.
Í þessum þætti bregðum við upp svipmyndum úr safni sjónvarpsins frá Suðausturlandi. Við fylgjumst með þegar bílar eru ferjaðir yfir jökulfljót á gömlum bryndreka. Við sjáum fyrstu brýrnar sem komu á þessi sömu fljót og fræðumst um hversu mikil bylting það var. Við leitum að Gullskipinu og rifjum upp gullæðið á Skeiðarársandi. Við fáum sýnishorn af hornfirksri leiklist og heyrum hornfirska tóna. Síðan hittum við sjálfst „sjónvarpsbarnið“ sem fagnar fimmtíu ára afmæli sínu í haust.
Sænsk heimildamynd frá árinu 2019. Dagny Carlsson varð þjóðþekkt í Svíþjóð árið 2015, þá 103 ára bloggari. Nú er hún orðin 106 ára, vill nýta tímann sem hún á eftir vel og er tilbúin í ný ævintýri. Þegar finnski leikstjórinn Finn Power býður henni aðalhlutverk í bíómynd stekkur hún til. Hún fer á tökustað á Álandseyjum og við tekur óvænt atburðarás.
Laddi hefur skemmt þjóðinni um áratugaskeið. Flest þekkjum við þó persónurnar sem hann leikur betur en manninn sjálfan. Hver er maðurinn á bakvið gervin? Gísli Einarsson fær vini og samferðarmenn Ladda sér til aðstoðar við að draga upp nærmynd af Þórhalli Sigurðssyni, Ladda. Dagskrárgerð: Björn Emilsson.
Rómantísk dramamynd frá 2020 byggð á sjálfshjálparbókinni Leyndarmálið. Miranda er ung ekkja með þrjú börn sem gengur illa að fóta sig í lífinu. Hún kynnist Bray, dularfullum manni, sem ástundar heimspeki þar sem áhersla er lögð á jákvæða hugsun. Aðalhlutverk: Katie Holmes, Josh Lucas og Celia Weston. Leikstjóri: Andy Tennant. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Íslensk hrollvekja í tveimur hlutum, byggð á vinsælli skáldsögu Yrsu Sigurðardóttur. Ungt fólk ákveður að gera upp hús á Hesteyri í Jökulfjörðum um hávetur, en fer fljótlega að gruna að þau séu ekki ein í eyðiþorpinu. Leikstjórn: Óskar Þór Axelsson. Aðalhlutverk: Jóhannes Haukur Jóhannesson, Thor Kristjansson, Ágústa Eva Erlendsdóttir, Þröstur Leó Gunnarsson, Sara Dögg Ásgeirsdóttir og Anna Gunndís Guðmundsdóttir. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.
Önnur sería af Silfruskógi, sem er bresk sjónvarpsþáttaröð úr heimi vísindaskáldskapar fyrir unglinga. Lous, Meg, Glen og Kaz uppgötva að hópurinn þeirra er bara einn þeirra fjögurra sem taka þátt í leiknum um að bjarga heiminum.