Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Urður Örlygsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.
Getur verið að stjórnvöld séu að brjóta lög með því að aðstoða leigufélög að byggja hagkvæmt húsnæði fyrir tekjulægra fólk? Það telur Viðskiptaráð, sem hefur sent ESA- eftirlitsstofnun EFTA, kvörtun vegna stuðnings stjórnvalda við óhagnaðardrifin leigufélög. Í kvörtuninni kemur fram að ráðið telji stuðninginn brjóta í bága við EES-samninginn og grafa undan samkeppni á markaði. Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, og Dagur B. Eggertsson, þingmaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi borgarstjóri, takast á um málið í Kastljósi.

24 stærstu sveitarfélög landsins keppa sín á milli í skemmtilegum spurningaleik. Sigmar Guðmundsson og Þóra Arnórsdóttir stýra þættinum. Dómari og spurningahöfundur er Ólafur Bjarni Guðnason. Útsendingu stjórnar Helgi Jóhannesson.

Karl Ágúst, Pálmi, Sigurður, Randver og Örn bregða á leik sprellfjörugir að vanda. Stjórn upptöku: Björn Emilsson.
Íslenskir heimildarþættir. Viktoría Hermannsdóttir kynnist æskuslóðum viðmælenda sinna í ýmsum bæjum og hverfum. Umsjón: Viktoría Hermannsdóttir. Framleiðsla: Pera.
Fótboltakappinn Hermann Hreiðarsson er Eyjapeyi fram í fingurgóma. Fyrir nokkrum árum flutti hann aftur til Vestmannaeyja. Viktoría Hermannsdóttir röltir með Hermanni um æskuslóðir hans.
Andri Freyr Viðarsson og Dóra Takefusa fara yfir 50 ára skemmtistaða- og djammmenningu Reykjavíkur, allt frá því að Glaumbær brann til dagsins í dag. Þau fá til sín fjölbreyttan hóp viðmælanda sem tengjast næturlífinu á einn eða annan hátt og rifja upp skemmtilegar staðreyndir, sögur og minningar.
Fjallað er um hinn goðsagnakennda Glaumbæ og diskóæðið í Hollywood.
Heimildarþáttaröð í fjórum þáttum um einn ástsælasta leikara og grínara þjóðarinnar, Sigurð Sigurjónsson, sem skemmt hefur landsmönnum á skjánum, á sviði sem og á hvíta tjaldinu í meira en fjörutíu ár. Siggi og samferðafólk hans er tekið tali um leið og eftirminnilegustu hlutverkin eru rifjuð upp. Umsjón: Guðmundur Pálsson. Dagskrárgerð: Björn Emilsson.
Danskir heimildarþættir þar sem sex ungmenni sem þjást af streitu taka þátt í tilraun þar sem þau slökkva á símunum sínum og flytjast út í skóg. Getur dvölin í náttúrunni dregið úr streitueinkennum á aðeins sex dögum?

Dönsk matreiðsluþáttaröð. Mette Blomsterberg reiðir fram kræsingar sem henta vel á sumrin.


Dana er 9 ára stelpa sem elskar risaeðlur. Líf hennar breytist til frambúðar þegar hún fær gefins handbók um risaeðlur, sem kennir henni ekki aðeins nýja hluti um dýrin, heldur gefur henni ofurkrafta sem gera henni kleift að sjá fyrir sér risaeðlur í raunveruleikanum.

Katta er 14 ára og er einkar lagin við að koma sér í vandræðalegar aðstæður. Sem betur fer er hún með app í símanum sínum sem getur fært hana aftur í tímann.

Finnlands-sænskir þættir þar sem krakkar segja frá áhugamálum sínum.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.
Ævintýralegir danskir þættir fyrir alla fjölskylduna. Vinirnir Charly, Niels og Tania eru í fríi á Borgundarhólmi. Þegar Silje, vinkona þeirra, er sökuð um að hafa skemmt verðmætt listaverk á safni Oluf Høst eru þau staðráðin í að sanna sakleysi hennar og ná sökudólgnum. Málið reynist hins vegar stærra og flóknara en þau gerðu sér í hugarlund og fljótlega eru þau komin á hættulegar slóðir. Þættirnir eru framhald af þáttaröðinni Horfna rafherbergið. Aðalhlutverk: Marinus Refnov, Cecilia Loffredo, Bertil Smith og Lova Müller Rudolph.
Íslensk þáttaröð eftir Hafstein Gunnar Sigurðsson og Halldór Laxness Halldórsson. Útbrunnin handboltastjarna frá níunda áratugnum tekur við þjálfun kvennaliðs Aftureldingar eftir margra ára óreglu. Á gömlu heimaslóðunum þarf hann að horfast í augu við breytta tíma, fjarlæga dóttur sína, veðmálabrask og síðast en ekki síst, nýja kynslóð kvenna sem kallar ekki einu sinni ömmu sína, ömmu sína. Meðal leikenda eru Ingvar E. Sigurðsson, Svandís Dóra Einarsdóttir og Saga Garðarsdóttir.
Medalía er auglýst á bland.is. Eysteinn fer til Slagelse að hafa upp á Skarphéðni. Skarphéðinn heldur að hann sé að fara að taka við körlunum.

Fjórða þáttaröð þessara bresku sakamálaþátta um hið sérkennilega tvíeyki einkaspæjara, Luellu Shakespeare og Frank Hathaway, sem fæst við margvísleg sakamál í heimabæ þeirra og fæðingarbæ hins eina og sanna Shakespeare, Stratford-upon-Avon. Aðalhlutverk: Mark Benton og Jo Joyner.

Samantekt frá tónlistarhátíðinni Glastonbury á Englandi 2023. Meðal þeirra sem fram koma eru Arctic Monkeys, Guns N‘ Roses, Elton John, Lizzo og Yusuf eða Cat Stevens.

Dönsk dramamynd frá 2022 í leikstjórn Katrine Brocks. Alma er 29 ára nunna sem er í þann mund að sverja ævarandi heit sín þegar bróðir hennar birtist óvænt og grefur upp löngu grafinn fjölskylduharmleik. Aðalhlutverk: Kristine Kujath Thorp, Elliott Crosset Hove og Karen-Lise Mynster. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Breskir spennuþættir. Raðmorðingi hlutar fórnarlömb sín niður og notar líkamspartana til að búa til eins konar mennska tuskubrúðu. Sveit rannsóknarlögreglumanna eltist við hann en illvirkjanum tekst alltaf að vera skrefi á undan. Málið vandast enn frekar þegar listi yfir næstu fórnarlömb birtist og einn lögreglumaðurinn er á honum. Aðalhlutverk: Lucy Hale, Henry Lloyd-Hughes og Thalissa Teixeira. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.