Teiknimyndaþættir fyrir börn byggðir á samnefndri breskri barnabók frá árinu 1994 eftir Sam McBratney, með myndskreytingum eftir Anitu Jeram. Bókin hefur verið gefin út á yfir 53 tungumálum og selst í yfir 28 milljónum eintaka.
Krúttlegir og vinalegir þættir fyrir þau allra yngstu. Molang er búttaður lítill „kanínugrís“. Hún er sérvitur, glaðvær og áhugasöm. Besti vinur hennar er litli hænuunginn Piu Piu. Molang er kóresk teiknimyndapersóna og afskaplega vinsæl í heimalandinu.
Danni tígur er þáttaröð sem kennir börnum að túlka tilfinningar sínar. Hvenær upplifa þau sorg, reiði og hvenær eru þau þakklát. Danni notar tónlist og syngur um það sem hann upplifir sem leyfir börnum að tileinka sér það frekar. Þátturinn er ætlaður leikskólabörnum og kennir tilfinningagreind og sjálfsvirðingu sem og virðingu fyrir öðrum.
Róbert og hressu hvolparnir í Hvolpasveitinni eru komin aftur og takast á við ný verkefni og nýja þorpara eins og þeim einum er lagið.
Teiknimyndaþættir um Lóu sem er 12 ára og býr með mömmu sinni í stórborg. Lóu finnst hún ekki lengur vera barn og ekki alveg vera unglingur ennþá og reynir að takast á við allar þær tilfinningar sem vakna þegar unglingsárin eru að hefjast.
Teiknimyndaþættir um litlu lundasystkinin Únu og Bubba sem búa á eyjunni Lundakletti. Þau lenda sífellt í nýjum ævintýrum með vinum sínum á eyjunni.
Skemmtilegir þættir sem um Múmínálfana sem allir ættu að þekkja, í nýju útliti úr smiðju Tove Janson
Kortó, Mýsla og Eik eru ákveðin að sigra Hvalabikarkeppnina, drónaflugkeppni sem leiða á í ljós hver verður arftaki vistfræðisnillingsins Hvals Hvíta.
En Tíkíliðið sækist ekki aðeins eftir sigri; aðeins með því að komast í læri hjá Hval Hvíta fá þau aðgang að nýjustu vistvísindunum og geta forðað því að eyjan þeirra hverfi í hafið.
Sprenghlægilegir þættir um strútapabbann Edda og áttburana hans. Eddi strútapabbi er fullkomnunarsinni og reynir að gera allt sem í hans valdi stendur til að vernda áttburana sína. Hann á fullt í fangi með það enda eru ævintýrin hjá stórri fjölskyldu mörg og ímyndunaraflið mikið.
Eddi strútapabbi er dauðhræddur um að ketilbjallan sem dóttir sín notar við lyftingaæfingar muni meiða hana og reynir að taka hana í burtu áður en það verður of seint!
Edduverðlaunaþættir frá 2016 úr smiðju Ævars vísindamanns. Sem fyrr kannar Ævar furðulega og spennandi hluti úr heimi vísindanna. Hann fer meðal annars í svaðilför til Surtseyjar og rannsaka stærstu tilraun í heimi. Stórskemmtilegir þættir fyrir alla fjölskylduna. Dagskrárgerð: Gunnar B. Gudmundsson og Ævar Þór Benediktsson.
Í þættinum setjum við frumefnin undir smásjána. Vísindamaður dagsins bjó til lotukerfið, við skoðum hvað gerist ef allt súrefni á jörðinni hyrfi í fimm sekúndur og svo ætlar Ævar að skoða vísindin á bak við köfun.
Fjölmiðlamaðurinn Andri Freyr Viðarsson kannar sívaxandi ferðamannastraum til Íslands og reynir m.a. að slá á fordóma sína í garð erlendra ferðamanna. Andri ákveður að leggja land undir fót og upplifa hvernig það er að vera ferðamaður í eigin landi en á ferðalagi sínu um borg og bæi, jökla og eldfjöll, fossa og sanda uppgötvar hann landið sitt upp á nýtt og eignast nýja vini, bæði erlenda og innlenda. Dagskrárgerð: Kristófer Dignus. Framleiðandi: Pegasus.
Andri hittir allra þjóða kvikindi við helstu kennileiti Reykjavíkur áður en hann skellir sér með í Reykjavík Music Walk, sem er hugarfóstur tónlistagúrúsins vingjarnlega Arnars Eggerts Thoroddsen. Því næst siglir Andri á alvöruvíkingaskipi út á Faxaflóa, eða a.m.k. út í Engey, og spjallar við Friðrik Örn skipstjóra og ævintýramann. Icelandic Airwaves hátíðin trekkir svo sannarlega að og Andri fer á stúfana til að sjá með eigin augum hvað er um að vera og hvort allt er í alvöru stappað af túristum á tónleikunum.
Þáttur um mannlífið í landinu. Landinn leitar uppi skemmtilegt fólk jafnt í borg sem sveit og skoðar áhugaverða staði landshorna á milli. Ritstjóri er Gísli Einarsson. Aðrir umsjónarmenn: Edda Sif Pálsdóttir, Hafsteinn Vilhelmsson, Sigrún Þuríður Runólfsdóttir og Þórdís Claessen. Dagskrárgerð: Magnús Atli Magnússon, Jóhannes Jónsson, Björgvin Kolbeinsson og Elvar Örn Egilsson.
Í Landanum í kvöld skiptum við um dekk á reiðhjólum, við hittum lestrarhesta í Vestmannaeyjum, skoðum fuglalífið á Skagaströnd, kynnumst bókagerðarkonu frá Venezuela og hittum sjóarann og söngvarann Sigga Björns.
Stuttir heimildaþættir um ólíkar tegundir myndavéla í gegnum tíðina, fólkið sem notaði þær og myndirnar sem voru teknar með þeim.
Bein útsending frá Söngkeppni Samfés 2024 í Laugardalshöll. Forkeppni hefur farið fram í hverjum landshluta og nú keppa 30 bestu atriðin. Stjórn útsendingar: María Dröfn Egilsdóttir
Þau elska mæður sínar, en þeim liggur ýmislegt á hjarta sem þau hafa ekki haft orð á fyrr en nú. Norskir þættir þar sem fólk ræðir við mæður sínar og fær svör við stórum spurningum.
Þættir um íslenska dægurtónlist. Tónlistarmenn koma í stutt viðtöl í Stúdíó RÚV og færa landsmönnum tónlist heim í stofu. Stjórn upptöku: Þór Freysson.
Umsjón: Snærós Sindradóttir.
Þáttaröð í 12 hlutum. Í hverjum þætti er fjallað um tvær af þeim 24 þjóðum sem taka þátt á EM karla í fótbolta í Þýskaland. Við kynnumst leikmönnum, þjálfurum og þeim þjóðum sem keppa um evrópumeistaratitilinn.
Norsk fræðsluþáttaröð um hressandi tilraunir. Þeir Rune Nilson og Per Olav Alvestad láta sér detta ýmislegt misgáfulegt í hug og hrinda því yfirleitt í framkvæmd.
Töfratú er fantasíuland dásamlegra álfa og hafmeyja þar sem raunveruleg viðfangsefni á borð við systkinaerjur, sanngirni og sjálfstraust eru könnuð nánar.
Kortó, Mýsla og Eik eru álveðin að sigra Hvalabikarkeppnina, drónaflugkeppni sem leiða á í ljós hver verður arftaki vistfræðisnillingsins Hvals Hvíta og þar af leiðandi fá aðgang að nýjustu vistvísindunum til geta forðað því að eyjan þeirra hverfi í hafið.
Fjórir krakkar eiga að vinna skólaverkefni um víkingatímabilið á Þjóðminjasafninu en leysa í staðinn ævafornan víking úr álögum. Krakkarnir þurfa að leysa sérstakar víkingaþrautir til að hjálpa víkingnum að komast til Valhallar - þangað sem fallnar víkingahetjur fara eftir að hafa dáið í bardaga.
Krakkarnir leysa gátuna á skinnhandritinu og sér til mikillar furðu uppgötva þau að næsta þraut tengist ljóðalist!
Valin myndskeið úr Landanum þar sem áhugaverðir staðir eru skoðaðir og merkilegir Íslendingar heimsóttir. Dagskrárgerð: Gísli Einarsson.
Lottó-útdráttur vikunnar.
Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
Íþróttafréttir.
Veðurfréttir.
Gunnar Birgisson fylgir íslensku Eurovision-förunum eftir í Malmö í Svíþjóð, fylgist með undirbúningi og stífum æfingum fyrir keppnina og ræðir við áhugaverða keppendur frá öðrum löndum.
Ómissandi upphitun fyrir Eurovision. Í þáttunum verður eins og áður farið yfir öll lögin sem keppa í Eurovision í ár, þau vegin og metin og reynt að spá fyrir um gengi þeirra í keppninni. Umsjón: Eva Ruza. Stjórn upptöku: Helgi Jóhannesson.
Sænsk kvikmynd frá 2023. Evu finnst hún hafa lítinn tíma á höndum sér. Þegar hún vingast við stórleikarann Harold Skog áttar hún sig á því að lífið er alls ekki búið, heldur rétt að byrja. Aðalhlutverk: Lena Olin, Rolf Lassgård og Lars Väringer.
Kvikmynd frá 2013 eftir Coen-bræður. Fylgst er með viku í lífi þjóðlagasöngvarans Llewyn Davis þar sem hann leiðir áhorfandann um heim þjóðlagatónlistar í Greenwich Village í New York árið 1961. Hann reynir að koma sér á framfæri sem tónlistarmaður en á vegi hans verða ýmsar hindranir, sumar hverjar sjálfskapaðar. Aðalhlutverk: Oscar Isaac, Carey Mulligan og John Goodman. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Bein útsending frá EM kvenna í fimleikum.
Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.