Góð ráð og æfingar sem tilvalið er að gera heima. Íris Rut Garðarsdóttir sjúkraþjálfari hefur umsjón með leikfiminni.
Styrktaræfingar fyrir handleggi. Sitjandi æfingar. Gott að hafa létt lóð eða vatnsflösku við hendina.
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fyrrverandi varaformaður Sjálfstæðisflokksins og utanríkisráðherra, hefur verið skipuð sendiherra og hættir á þingi. Hún ræddi við Kastljós í tilefni af vistaskiptunum.
Dalatangi er austasta byggða ból landsins og það er hægara sagt en gert að komast þangað yfir vetrarmánuðina, eins og við komumst að.
Það getur verið flókið að fóta sig í lífinu á þrítugsaldri. Um það fjalla sjónvarpsþættirnir Tuttugu og eitthvað, sem hófu göngu sína á RÚV á dögunum. Við ræddum við aðstandendur,.
Bein útsending frá spurningakeppni sveitarfélaga. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Sólmundur Hólm. Spurningahöfundar: Ævar Örn Jósepsson og Jón Svanur Jóhannsson. Dómari: Ævar Örn Jósepsson. Stjórn útsendingar: Helgi Jóhannesson.
Sigmar Guðmundsson fær til sín góða gesti úr öllum áttum og ræðir við þá undir fjögur augu. Gestirnir eiga það sameiginlegt að hafa áhugaverða sögu að segja. Dagskrárgerð: Salóme Þorkelsdóttir.
Sigmar Guðmundsson ræðir við Tolla sem segir frá þeim leiðum sem hann hefur notað til að bæta líf sitt á sama tíma og hann hefur barist við tvo illvíga og bannvæna sjúkdóma.
Sænskur heimildarþáttur frá 2023 þar sem fylgst er með nokkrum karlmönnum fara til hárgreiðslumannsins Rickards í þeim tilgangi að fela hármissi. Þeir ræða á einlægan hátt um hármissinn, karlmennsku og kynþokka.
Þáttaröð í fjórum hlutum þar sem Eva María Jónsdóttir ferðast um landið og segir sögur af fólki og atburðum úr fortíðinni. Dagskrárgerð: Björn B. Björnsson.
Í þættinum ferðast Eva María um Hvalfjörð og segir frá Harðar sögu og Hólmverja.
Þáttur um mannlífið í landinu. Landinn leitar uppi skemmtilegt fólk í bæjum og sveitum og skoðar áhugaverða staði landshorna á milli. Ritstjóri er Gísli Einarsson. Aðrir umsjónarmenn: Edda Sif Pálsdóttir, Þórdís Claessen, Hafsteinn Vilhelmsson, Amanda Guðrún Bjarnadóttir og Andri Freyr Viðarsson. Dagskrárgerð: Jóhannes Jónsson, Hjalti Stefánsson, Benedikt Nikulás Anes Ketilsson, Björgvin Kolbeinsson og Adelina Antal.
Í Landanum í kvöld hittum við fólk sem kýs að eignast ekki börn, við rífum niður bækur og tínum rusl með hressum strákum hjá Gámafélaginu, við förum með óreyndum göngugörpum í lengstu skíðagöngu heims og við smökkum nýjan heilsudrykk, þróaðan af stelpum í Menntaskólanum við Sund.

Karla er 8 ára kjúklingur, sem hefur það að markmiði að halda öllum ánægðum, svo lengi sem það kemur ekki niður á lífi hennar. Hún elskar skólann sinn og alla vini sína. Hún leggur hart að sér til að þóknast öllum, en stundum ganga hlutirnir ekki alveg eins og áætlað var. Í þessum þáttum eru félagsleg samskipti og tilfinningar þeim tengd könnuð út frá heimi krakkanna. Hvað er rétt og hvað er rangt? Getur maður átt fleiri en einn besta vin?
Flóra er níu ára og finnur gat í limgerðinu úti í garði. Hún skríður í gegn og er skyndilega stödd í skóginum endalausa – galdraheimi þar sem allt getur gerst. Þar ráfa um skrítnar og stórkostlegar verur. Þær lenda í ýmiss konar vandræðum og enginn getur hjálpað þeim – nema kannski Flóra sjálf?
Ferðaþættir í umsjá útivistarhjónanna Brynhildar Ólafsdóttur og Róberts Marshall þar sem þau ferðast með fólki um ósnortna náttúru Íslands.
Hér er gengið á og klöngrast um sjö hæstu tindana á Kili með háfjallahöfðingjanum Þorvaldi Þórssyni sem fyrstur Íslendinga kortlagði og gekk á 100 hæstu fjöll Íslands. Gengið er á ferðaskíðum, fjallaskíðum og gönguskóm á mörg af fegurstu fjöllum landsins. Í síðari hluta þáttarins er haldið með Ölmu Möller og Víði Reynissyni í kajakróður á Hvalfirði á söguslóðir Svarta dauða.
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.
Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.
Í Kilju vikunnar birtist viðtal við Elizu Reid en hún sendir nú frá sér bók sem nefnist einfaldlega Og svo varð ég forsetafrú. Segir frá aðdraganda þess að hún settist að á Bessastöðum og tíma hennar þar. Bókin kemur jafnframt út á ensku í Kanada og Bandaríkjunum. Kristján Jóhann Jónsson ræðir við okkur um Prinsessur og prakkara, en það er safn með nýjum þýðingum hans á sígildum ævintýrum stórsnillingsins H.C. Andersen. Bernd Ogrodnik brúðugerðarmaður segir frá bók þar sem hann blandar frásögn af lífi sínu á Íslandi saman við vangaveltur um lífið og tilveruna - hún nefnist Icelandic Watermelons and a Horse Called Spark. Í Bókum og stöðum förum við vítt og breitt um Strandir og skoðum hið hrikalega landslag þar. Gagnrýnendur þáttarins fjalla um Piparmeyjar eftir Sigríði Kristínu Þorgrímsdóttur, Myrkravald eftir Evu Björg Ægisdóttur og Jérôme Loubry og Daga mína í Morisaki bókabúðinni eftir Satoshi Yagisawa.
Sannsögulegir breskir dramaþættir frá 2023. Árið 1956 flyst Roberts-fjölskyldan frá Bretlandi til Ástralíu í leit að betra lífi. Erfitt reynist að fóta sig í nýju umhverfi þar sem óvæntar áskoranir leynast á hverju strái. Aðalhlutverk: Warren Brown, Faye Marsay og Hattie Hook. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Bresk sakamálamynd frá 2017 byggð á samnefndri skáldsögu eftir Agöthu Christie. Belgíski rannsóknarlögreglumaðurinn Hercule Poirot er fenginn til að rannsaka dularfullt morð sem er framið um borð í lest og allir farþegar liggja undir grun. Aðalhlutverk: Kenneth Branagh, Penélope Cruz og Willem Dafoe. Leikstjóri: Kenneth Branagh. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Bresk leikin þáttaröð frá 2023 um kokkinn Carly og teymið hennar sem tekst á við allar þær áskoranir sem fylgja því að reka nýjan veitingastað. Aðalhlutverk: Vinette Robinson, Izuka Hoyle og Hannah Walters. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Oddvitar allra framboða í sveitarfélaginu mætast í umræðuþætti.
Fimm listar eru í framboði á Akranesi fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Oddvitar þeirra mætast í umræðum. Þátttakendur eru Ragnar Baldvin Sæmundsson, Framsóknarflokki og frjálsra, Jón Guðni Guðmundsson, Viðreisn, Líf Lárusdóttir, Sjálfstæðisflokki, Hrafn Ágúst Björnsson, Miðflokki, og Sigurður Vopni Vatnsdal, Samfylkingu.