Spurningakeppni framhaldsskólanna frá 1996. Spyrill: Davíð Þór Jónsson. Dómari: Helgi Ólafsson. Stigavörður: Sólveig Samúelsdóttir. Dagskrárgerð: Andrés Indriðason.
Í þessum þætti mætast lið Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum og Fjölbrautaskólans við Ármúla. Lið Framhaldsskólans. Lið Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum skipa Hilmar Ómarsson, Ágúst Örn Gíslason og Gísli Friðrik Ágústsson. Lið Fjölbrautaskólans við Ármúla skipa Valur Freyr Steinarsson, Örn Arnarson og Hjalti Vignisson.
- Endursýnt
Íslensk þáttaröð í átta hlutum. Einlægar og opinskáar frásagnir fólks sem býr við aðstæður í daglegu lífi sem eru ólíkar öllu sem flestir eiga að venjast. Dagskrárgerð: Elín Sveinsdóttir. Framleiðsla: SERES hugverkasmiðja
Hanna Margrét Kristleifsdóttir fæddist með klofinn hrygg. Hún brosir í lífsins ólgusjó og mottóið er að gefast aldrei upp.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Viðtals- og tónlistarþáttaröð í umsjón Jóns Ólafssonar. Jón fær til sín ýmsa tónlistarmenn í spjall og saman laða þeir fram ljúfa tóna. Dagskrárgerð: Jón Egill Bergþórsson.
Viðtals- og tónlistarþáttaröð í umsjón Jóns Ólafssonar. Jón fær til sín ýmsa tónlistarmenn í spjall og laðar fram í þeim ljúfa tóna fyrir áhorfendur. Í þessum þætti er Stefán Hilmarsson gestur Jóns. Dagskrárgerð: Jón Egill Bergþórsson.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Heimildarþáttaröð frá 2020. Ofurhuginn Børge Ousland er enginn venjulegur útivistarmaður. Haustið 2019 hélt hann yfir Norður-Íshafið á skíðum og tók ferðina upp. Svaðilförin gekk ekki alveg að óskum og Ousland glímir við hrikalegar aðstæður á hjara veraldar.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Þáttaröð þar sem Gunnlaugur Helgason húsasmiður leiðir áhorfendur í allan sannleika um hver fyrstu skrefin eru þegar taka á húsnæði í gegn. Gulli hefur verið fengin til þess að koma lagi á kjallara í 65 ára gömlu húsi í Reykjavík. Óþefur og ýmis konar skordýr hafa hrjáð þá sem kjallarinn hefur hýst um nokkurn tíma og greinilegt er að húsið er komið á tíma. Undir leiðsögn Gulla og fagmanna á hverju sviði vinna íbúar og eigendur húsnæðisins, ásamt vinum og ættingjum að breytingunum. Dagskrárgerð: Hrafnhildur Gunnarsdóttir. Framleiðandi: Krummafilms.
Íbúar hússins gefast upp á því að grafa fyrir lögnum fyrir utan hús og jarðvegsverktakarnir mæta á svæðið með gröfur og græjur til að hægt verði að leggja nýjar lagnir. Starfsmenn Orkuveitu Reykjavíkur mæta á svæðið og tengja nýtt rafmagn, heitt og kalt vatn og ljósin eru kveikt á ný í kjallaranum. Maggi múr mætir á svæðið og kennir okkur handtökin við að leggja flísar og Ómar Gunnarsson efnaverkfræðingur mælir með því að kjallarainn verði kalkaður. Nú er hafist handa við að sparsla, pússa, mála og kalka. Gulli hefur gleymt að láta húseiganda sækja um byggingaleyfi og þarf að mæta á teppið hjá Magnúsi Sædal byggingafulltrúa Reykjavíkurborgar.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt

Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Umsjón og handrit: Ari Páll Karlsson og Embla Bachmann. Ritstjórn: Ari Páll Karlsson.
1. Wolt sendlar leggja niður störf 2. Krakkaskýring: haustið. Ljúkum svo þættinum á broti úr leiksýningu á Ísafirði🎭
- Dagskrárliðurinn er textaður
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Margrét Helga Erlingsdóttir og Kristján Kristjánsson. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.
Rætt við Andrii Sybiha utanríkisráðherra Úkraínu um stöðuna í stríðinu við Rússa og rætt við Friðrik Jónsson, sendiherra Íslands í Úkraínu og Póllandi um sama efni.
- Dagskrárliðurinn er textaður
Sigríður Hagalín Björnsdóttir og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.
Eftir öryggisbrest hjá OpenAI í sumar hafa forkólfar nokkurra stærstu tæknifyrirtækja heims kallað eftir því að hægt verði á þróuninni. Á sama tíma eru fjárfestingar í gervigreind og orkuöflun fyrir hana orðnar mikilvægur drifkraftur hagvaxtar í Bandaríkjunum og Kína. Hvaða áhrif hefði það á heimsbúskapinn - og Ísland - ef hægt yrði á kapphlaupinu? Og hversu mikla orkuöflun á kostnað náttúruauðlinda er hægt að réttlæta? Andri Snær Magnason rithöfundur, Þóra Arnórsdóttir, forstöðumaður samskipta hjá Landsvirkjun, og Björgvin Ingi Ólafsson, sviðsstjóri hjá Deloitte, fóru yfir stöðuna.
Bjartsýni var ríkjandi á Vesturlöndum um aldamótin og útbreidd trú á sigurför frjálslynds lýðræðis, kapítalisma og hnattvæðingar. Fáir hefðu spáð að aldarfjórðungi síðar einkenndist heimsmyndin af átökum, uppgangi þjóðernishyggju og alþjóðakerfi sem ætti undir högg að sækja. Hvað gerðist – og hvert stefnir heimurinn? Guðmundur Jónsson, sagnfræðingur og prófessor emeritus, fer yfir sviðið í síðari hluta þáttar.
- Dagskrárliðurinn er textaður sjálfvirkt
- Bein útsending
Leikin þáttaröð frá 2025 byggð á sannsögulegum atburðum. Eftir að hersveitir Bandaríkjanna og bandamanna þeirra í NATO yfirgefa Afganistan í ágúst 2021 líður ekki að löngu þar til Talibanar hefja að taka yfir hverja borgina á fætur annarri þvert á gefin loforð. Almennir borgarar, diplómatar og hermenn keppast við að komast í öruggt skjól áður en Kabúl fellur. Aðalhlutverk: Jonathan Zaccaï, Vassilis Koukalani og Darina Al Joundi. Handritshöfundar: Olivier Demangel og Thomas Finkielkraut. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
Hollensk heimildarmynd frá 2023. Teun Toebes er 24 ára gamall mannúðar- og aðgerðarsinni sem leitast við að bæta lífsgæði fólks með heilabilun. Eftir að hafa búið á deildum fyrir fólk með heilabilun í mörg ár ákveður hann að færa sig á næsta stig og leggur í ævintýralega þriggja ára ferð um fjórar heimsálfur í einlægri og áhrifamikilli leit að svörum um framtíðina. Leikstjóri: Jonathan de Jong.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
Sænskir heimildarþættir frá 2023. Felix hefur í mörg ár orðið fyrir áreitni í gegnum nafnlaus smáskilaboð. Sendandinn ætlar ekki að gefast upp fyrr en hann hefur lagt líf Felix í rúst. Hver er á bak við skilaboðin? Hvað hefur Felix gert og getur hann stoppað þetta? Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt