
Bein útsending frá útför Haraldar Noregskonungs í Dómkirkjunni í Ósló. Lýsandi: Anna Lilja Þórisdóttir.
Norskur heimildarþáttur um frjálsíþróttamann sem reynir að slá 28 ára heimsmet í 400 metra grindahlaupi karla. Langlíft heimsmet Kevins Young frá 1992 er 46,78. Er hinn 23 ára Norðmaður, Karsten Holm, kominn til að slá metið?
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Margrét Helga Erlingsdóttir og Kristján Kristjánsson. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.
Í Kastljósi beindum við sjónum að menntakerfinu og rýndum í sláandi niðurstöður PISA-könnunarinnar með ráðherra málaflokksins og formanni Kennarasambands Íslands. Þá heyrum við einnig sjónarmið foreldra sem vilja meira samráð við kennara. Þá heimsóttum við Hildi Elísu Jónsdóttur myndlistarkonu.

Spurningakeppni framhaldsskólanna frá 1995. Spyrill: Ómar Ragnarsson. Dómari og spurningahöfundur: Ólafur B. Guðnason. Stigavörður: Sólveig Samúelsdóttir. Dagskrárgerð: Andrés Indriðason.
Í þessum þætti mætast lið Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu og Fjölbrautaskólans við Ármúla. Lið Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu skipa Hjalti Vignisson, Gissur Jónsson og Arnór Fjölnisson. Lið Fjölbrautaskólans við Ármúla skipa Hreinn Pálsson, Arnar Ágústsson og Örn Arnarson.

Sætabrauðsdrengurinn og ferðalangurinn Tobias Hamann-Pedersen leggur land undir fót og kannar köku- og sætabrauðsmenningu annarra landa.
Þættir sem fjalla um hringrásarhagkerfið, þar sem hlutir og hráefni fara í hring og eins manns rusl verður annars fjársjóður. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir og Freyr Eyjólfsson. Framleiðsla: Republik.
Hvað er hringrásarhagkerfi? Við fáum svar við því. Einnig veltum við fyrir okkur verðmætunum sem eru fólgin í öllum textílnum í kringum okkur og hittum hugmyndaríkt fólk sem leitar leiða til þess að nýta hann vel og lengi.

Fróðlegir danskir þættir þar sem þáttastjórnendur rannsaka matinn sem við borðum dags daglega.

Karla er 8 ára kjúklingur, sem hefur það að markmiði að halda öllum ánægðum, svo lengi sem það kemur ekki niður á lífi hennar. Hún elskar skólann sinn og alla vini sína. Hún leggur hart að sér til að þóknast öllum, en stundum ganga hlutirnir ekki alveg eins og áætlað var. Í þessum þáttum eru félagsleg samskipti og tilfinningar þeim tengd könnuð út frá heimi krakkanna. Hvað er rétt og hvað er rangt? Getur maður átt fleiri en einn besta vin?

Önnur þáttaröð um Lalla, sem færir ykkur allan heiminn þegar hann grípur litina sína. Hann er svo flinkur að teikna hann Lalli!
Velkomin til Eplabæjar. Eplabær er svo daufur og óspennandi að hann hefur verið tekinn út af landakortum. En ef betur er að gáð fela jafnvel mestu leiðindin í sér ævintýri. Stundum getur ómerkilegasti staðurinn orðið vettvangur stórkostlegra uppátækja – ef ímyndunaraflið fær að ráða.
Flóra er níu ára og finnur gat í limgerðinu úti í garði. Hún skríður í gegn og er skyndilega stödd í skóginum endalausa – galdraheimi þar sem allt getur gerst. Þar ráfa um skrítnar og stórkostlegar verur. Þær lenda í ýmiss konar vandræðum og enginn getur hjálpað þeim – nema kannski Flóra sjálf?
Þegar afi ykkar er búin að þjálfa ykkur sem skrímslaveiðimenn, þá er ekkert annað í stöðunni en að veiða öll skrímslin! Það er þó eitt vandamál, krakkarnir elska skrímslin og vilja helst bara bjarga þeim. Það geta þau gert á meðan afi blundar, eða hvað?

Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Umsjón og handrit: Ari Páll Karlsson og Embla Bachmann. Ritstjórn: Ari Páll Karlsson.
Þættir frá 2011 um ungt og áhugavert fólk sem skarar fram úr á hinum ýmsu sviðum. Skyggnst er inn í líf einnar persónu í hverjum þætti og henni fylgt eftir í sínu daglega lífi. Umsjón: Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir. Stjórn upptöku og myndvinnsla: Eiríkur I. Böðvarsson.
Hljómsveitastjórinn og tónskáldið Daníel Bjarnason er einn yngsti Íslendingurinn sem hefur stjórnað Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hann hlaut nýverið verðlaun alþjóðlega tónskáldaþingsins fyrir eitt verka sinna og þessa dagana vinnur hann að nýrri plötu með hljómsveitinni Sigurrós. Ragnhildur Steinunn heimsækir Daníel og ræðir við hann um lífið og listina.

Vikinglottó-útdráttur vikunnar.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.

Bein útsending frá Alþingi þar sem forsætisráðherra flytur stefnuræðu sína og fram fara umræður um hana.
Sannsögulegir breskir spennuþættir frá 2022. Þættirnir segja sögu Nicholas Elliot og Kim Philby, njósnara í bresku leyniþjónustunni og vina til margra ára. Veröld Nicholas umturnast þegar upp kemst að Kim stundaði gagnnjósnir fyrir Sovétríkin. Aðalhlutverk: Guy Pearce, Damian Lewis og Anna Maxwell Martin. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.

Danskur heimildarþáttur frá 2025 um Söruh, unga konu sem svipti sig lífi eftir baráttu við andleg veikindi. Aðstandendur segja frá því hvernig kerfið brást Söruh sem reyndi ítrekað að leita sér aðstoðar. Þátturinn er ekki við hæfi barna yngri en 14 ára.
Viðvörun: Í þessum þætti er fjallað um sjálfsvíg. Hann getur valdið vanlíðan hjá áhorfendum.
Ef þú ert með sjálfsvígshusanir og þarft einhvern að tala við, hafðu samband við Hjálparsíma Rauða krossins 1717, netspjall 1717.is eða Píeta samtökin í síma: 552 3318.
Fyrir stuðning í sorg hafið samband við Sorgarmiðstöð í síma 551 4141 eða [email protected]
Önnur þáttaröð bresku dramaþáttanna um lögregluþjóninn Chris sem tekst á við glæpi og ofbeldi á götum Liverpool-borgar á sama tíma og hann berst við djöfla í einkalífi sínu. Chris reynir af fremsta megni að koma sér á beinu brautina, en þegar hann kemst upp á kant við einn stærsta eiturlyfjasala borgarinnar hallar undan fæti hjá honum. Aðalhlutverk: Martin Freeman, Adelayo Adedayo og Romi Hyland-Rylands. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngi en 12 ára.

Leikir á HM kvenna í körfubolta.
Leikur Púertó Ríkó og Kína í umspili á HM kvenna í körfubolta.

Leikir á HM kvenna í körfubolta.
Leikur Ítalíu og Ástralíu í umspili á HM kvenna í körfubolta.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.