![KrakkaRÚV](/spilari/DarkGray_image.png)
Þriðja sería af Elías, sem er ungur og áhugasamur björgunarbátur. Hann er ósvífinn, fjörugur og mikils metinn í heimabæ sínum. Vinir Elíasar skipta honum öllu máli og leggur hann í hvaða ævintýri sem er til þess að bjarga vinum sínum úr ógöngum.
![Friðþjófur forvitni V](/spilari/DarkGray_image.png)
Friðþjófur forvitni er forvitinn og yndislegur api sem getur oft á tíðum verið full ævintýragjarn. Fylgjumst með ævintýrum hans og mannsins með gula hattinn eiganda hans.
![Bréfabær](/spilari/DarkGray_image.png)
Matthildur er 12 ára stelpa sem býr yfir sérstöku leyndarmáli. Á hverjum degi þegar hún vaknar býr hún yfir nýjum ofurkrafti sem hún þarf að læra að stjórna. Aðeins besti vinur hennar veit af þessu og saman lenda þau í alls kyns ævintýrum.
![Með okkar augum VI](/spilari/DarkGray_image.png)
Sjötta þáttaröðin af þessum sívinsælu þáttum þar sem dagskrárgerðarfólk með þroskahömlun varpar ljósi á hina ýmsu þætti samfélagsins á skemmtilegan og einstakan hátt. Þættirnir hafa hlotið fjölda verðlauna og tilnefninga. Dagskrárgerð: Elín Sveinsdóttir.
Íslensk heimildarþáttaröð í sex hlutum þar sem skyggnst er inn í heim tvíbura og sagðar persónulegar sögur. Í þáttunum er fylgst með því líffræðilega undri sem á sér stað þegar tvíburar verða til og þeim sterku tengslum sem virðast fylgja flestum tvíburum út lífið. Hvaða helstu áskoranir bíða tvíbura, búa þeir yfir meiri samkennd en aðrir, hversu samtaka í lífinu eru þeir og hugsa þeir jafnvel eins? Umsjón og framleiðsla: Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir og Eiríkur Ingi Böðvarðsson.
Hrefna Erna og Eyjólfur Aðalsteinn deila átakanlegri sögu. Þau misstu annan tvíburadrenginn sinn á meðgöngu. Hrefnu fannst erfitt að halda meðgöngunni áfram eftir áfallið og enn erfiðara að fæða eitt lifandi barn og annað andvana. Einnig er skyggnst inn í líf hjóna sem ræða opinskátt um álagið sem fylgir því að eignast tvö börn í einu. Andvökunætur, veikindi, stöðugt áreiti og þörf fyrir umönnun getur tekið sinn toll og sumir foreldrar örmagnast.
![Upp til agna](/spilari/DarkGray_image.png)
Sænskir þættir um matarsóun og hvernig hægt er að sporna gegn henni. Þáttastjórnendurnir Anna Lundberg og Paul Svensson kynna áhorfendur fyrir óvæntum uppskriftum að dýrindis réttum sem búnir eru til úr hráefni sem annars hefði verið hent.
![EM upphitun](/spilari/DarkGray_image.png)
Upphitanir fyrir EM karla í fótbolta.
Upphitun fyrir leik Póllands og Hollands á EM karla í fótbolta.
![EM karla í fótbolta](/spilari/DarkGray_image.png)
Beinar útsendingar frá EM karla í fótbolta.
Leikur Póllands og Hollands á EM karla í fótbolta.
![Þjóðirnar á EM](/spilari/DarkGray_image.png)
Þættir þar sem fjallað er um þjóðirnar sem taka þátt á EM karla í fótbolta í Þýskalandi. Við kynnumst leikmönnum, þjálfurum og þeim þjóðum sem keppa um evrópumeistaratitilinn.
![Stofan](/spilari/DarkGray_image.png)
Umfjallanir um leiki á EM karla í fótbolta.
Upphitun fyrir leik Slóveníu og Danmerkur á EM karla í fótbolta.
![EM karla í fótbolta](/spilari/DarkGray_image.png)
Beinar útsendingar frá EM karla í fótbolta.
Leikur Slóveníu og Danmerkur á EM karla í fótbolta.
![Stofan](/spilari/DarkGray_image.png)
Umfjallanir um leiki á EM karla í fótbolta.
Uppgjör á leik Slóveníu og Danmerkur á EM karla í fótbolta.
![Þjóðirnar á EM](/spilari/DarkGray_image.png)
Þættir þar sem fjallað er um þjóðirnar sem taka þátt á EM karla í fótbolta í Þýskalandi. Við kynnumst leikmönnum, þjálfurum og þeim þjóðum sem keppa um evrópumeistaratitilinn.
![Stofan](/spilari/DarkGray_image.png)
Umfjallanir um leiki á EM karla í fótbolta.
Upphitun fyrir leik Serbíu og Englands á EM karla í fótbolta.
![EM karla í fótbolta](/spilari/DarkGray_image.png)
Beinar útsendingar frá EM karla í fótbolta.
Leikur Serbíu og Englands á EM karla í fótbolta.
![Fréttir](/spilari/DarkGray_image.png)
Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
![Íþróttir](/spilari/DarkGray_image.png)
Íþróttafréttir.
![Veður](/spilari/DarkGray_image.png)
Veðurfréttir.
Rómantískir dramaþættir frá 2023. Fyrir sextán árum ákváðu Alice og Jack að halda hvort í sína áttina eftir að hafa varið einni nótt saman. Hins vegar er eitthvað sem dregur þau sífellt aftur hvort að öðru. Aðalhlutverk: Domhnall Gleeson, Andrea Riseborough og Sunil Patel. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
![Eftir brúðkaupið](/spilari/DarkGray_image.png)
Dönsk dramamynd frá 2006 í leikstjórn Susanne Bier. Jacob rekur barnaheimili á Indlandi sem er á barmi gjaldþrots. Hann fær óvenjulegt tilboð frá dönskum viðskiptamanni sem býður honum veglegan styrk með þeim skilyrðum að hann komi til Danmerkur og verði viðstaddur brúðkaup dóttur hans. Brúðkaupið veldur þáttaskilum í lífi Jacobs og hann neyðist til að taka erfiðar ákvarðanir. Aðalhlutverk: Mads Mikkelsen, Sidse Babett Knudsen og Rolf Lassgård. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Myndin er hluti af þemanu Konur í kvikmyndagerð.
![KrakkaRÚV](/spilari/DarkGray_image.png)
![Björgunarhundurinn Bessí](/spilari/DarkGray_image.png)
Anne Dorothea á mjög sérstakan besta vin, björgunarhundinn Bessa!
![Víkingaprinsessan Guðrún](/spilari/DarkGray_image.png)
Víkingaprinsessan Guðrún býr úti í óbyggðum og á í sterku samband við náttúruna og dýrin.
![Undraveröld villtu dýranna](/spilari/DarkGray_image.png)
Dýralífsþættir sem gefa okkur dásamlega innsýn inn í undraveröld villtu dýranna.
![Refurinn Pablo](/spilari/DarkGray_image.png)
Hugrakki og uppátækjasami refurinn Pablo flyst úr sveit í borg ásamt systkinum sínum.
![Andy og ungviðið](/spilari/DarkGray_image.png)
Í þessum þáttum kynnumst við afkvæmum dýra frá mismunandi stöðum um allan heim! Við fræðumst um hvernig þau þroskast, hvernig þau sækja sér æti og svo margt margt fleira!
![Krakkakiljan](/spilari/DarkGray_image.png)
Í Krakkakiljunni er fjallað um barnabækur úr öllum áttum, bæði gamlar og nýjar. Fulltrúar bókaormaráðs KrakkaRÚV koma í heimsókn til okkar, segja frá og spyrja höfundinn út í bókina.
Umsjón: Jóhannes Ólafsson og Sigyn Blöndal
Barnasýning Benedikt Búálfur hlaut Edduverðlaun í haust fyrir vinsælasta sjónvarpsefnið. Bækurnar eftir Ólaf Gunnar Guðlaugsson eru nýútkomnar aftur og hann kom í Krakkakiljuna og ræddi við Emmu um Benedikt á prenti og sviði.
Umsjón: Emma Nardini Jónsdóttir
Heimildarþáttur frá 2022 um gerð plötunnar Dýrð í dauðaþögn í tilefni af því að tíu ár voru frá útgáfu hennar. Platan var frumraun Ásgeirs Trausta Einarssonar, sem þá var aðeins 19 ára. Hún sló sölumet og Ásgeir Trausti lék ásamt hljómsveit um allan heim. Í þættinum er sagt frá plötunni, tilurð hennar og ævintýrunum sem fylgdu. Dagskrárgerð: Kristinn Jónsson.
Íslensk þáttaröð eftir Hafstein Gunnar Sigurðsson og Halldór Laxness Halldórsson. Útbrunnin handboltastjarna frá níunda áratugnum tekur við þjálfun kvennaliðs Aftureldingar eftir margra ára óreglu. Á gömlu heimaslóðunum þarf hann að horfast í augu við breytta tíma, fjarlæga dóttur sína, veðmálabrask og síðast en ekki síst, nýja kynslóð kvenna sem kallar ekki einu sinni ömmu sína, ömmu sína. Meðal leikenda eru Ingvar E. Sigurðsson, Svandís Dóra Einarsdóttir og Saga Garðarsdóttir.
Skarphéðinn notar gamaldags þjálfunaraðferðir. Eysi heldur matarboð. Heklu finnst sambúðin við mömmu sína erfið. Brynja fær slæmar fréttir og Henry sem rekur veðmálasíðu dúkkar upp á æfingu.
![EM kvöld](/spilari/DarkGray_image.png)
Uppgjör á leikjum dagsins á EM karla í fótbolta
![Fréttir (með táknmálstúlkun)](/spilari/DarkGray_image.png)
Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.