Þriðja sería af Elías, sem er ungur og áhugasamur björgunarbátur. Hann er ósvífinn, fjörugur og mikils metinn í heimabæ sínum. Vinir Elíasar skipta honum öllu máli og leggur hann í hvaða ævintýri sem er til þess að bjarga vinum sínum úr ógöngum.
Sjötta þáttaröðin af þessum sívinsælu þáttum þar sem dagskrárgerðarfólk með þroskahömlun varpar ljósi á hina ýmsu þætti samfélagsins á skemmtilegan og einstakan hátt. Þættirnir hafa hlotið fjölda verðlauna og tilnefninga. Dagskrárgerð: Elín Sveinsdóttir.
Íslensk heimildarþáttaröð í sex hlutum þar sem skyggnst er inn í heim tvíbura og sagðar persónulegar sögur. Í þáttunum er fylgst með því líffræðilega undri sem á sér stað þegar tvíburar verða til og þeim sterku tengslum sem virðast fylgja flestum tvíburum út lífið. Hvaða helstu áskoranir bíða tvíbura, búa þeir yfir meiri samkennd en aðrir, hversu samtaka í lífinu eru þeir og hugsa þeir jafnvel eins? Umsjón og framleiðsla: Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir og Eiríkur Ingi Böðvarðsson.
Tvíburarnir Þórður Orri og Arnór Darri voru greindir tvíeggja á meðgöngu. Foreldrum þeirra finnst þeir hins vegar grunsamlega líkir og velta fyrir sér hvort tvíeggja tvíburar geti virkilega verið svona líkir. Í þættinum komumst við meðal annars til botns í því máli með DNA prófi auk þess sem við hittum eineggja tvíburabræður sem báðir vinna hjá Íslenskri erfðagreiningu. Skoðað er hversu sterk áhrif umhverfið getur haft á einstaklinga og hversu erfðafræðilega líkir eineggja og tvíeggja tvíburar eru.
Nýir íslenskir lífstíls- og matarþættir þar sem þeir Dóri DNA og Gunnar Karl Gíslason, Michelin-kokkur, ferðast um landið, kynnast áhugaverðu fólki og fræðast um menningu, listir, mat og nýsköpun í nýtingu auðlinda. Á leið sinni á hvern áfangastað safna þeir hráefnum sem Gunnar Karl nýtir til matreiðslu í lok hvers þáttar með dyggri aðstoð heimamanna. Leikstjórn: Hannes Þór Arason. Framleiðsla: Gamli Blakkur, Fígúra og Lilja Jóns.
Í þessum þætti fljúga Dóri og Gunnar Karl til Egilsstaða og koma meðal annars við í Neskaupstað á leið sinni á Borgarfjörð eystra. Á áfangastað kíkja þeir á lundahótel, fara á kajak og sanka að sér matvælum úr nánasta umhverfi fyrir veisluna sem haldin er á gömlu steinbryggjunni.
Sigríður Hagalín Björnsdóttir, Valgeir Örn Ragnarsson og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.
Valgeir Örn Ragnarsson hefur umsjón með þættinum. Kosningabaráttan, úrslit kosninganna og næsti forseti Íslands eru til umræðu í þættinum. Gestir eru Hulda Þórisdóttir, prófessor í stjórnmálafræði, Þorkell Máni Pétursson, umboðsmaður og fjölmiðlamaður, Heiða Kristín Helgadóttir kosningastjóri Jóns Gnarr og
Guðmundur Andri Thorsson, rithöfundur og fyrrum alþingismaður.
Dönsk heimildarþáttaröð um fimm manna fjölskyldu sem flytur í frumskóga Níkaragva. Fjölskyldufaðirinn Glenn býst við að innan fimm ára verði heimshrun og þá verði fólk að geta ræktað eigin mat og séð sér fyrir rafmagni og vatni. Hann vill að börnin þrjú læri að takast á við lífið á nýjum forsendum en þau eiga erfitt með að yfirgefa öruggan hversdagsleikann heima í Danmörku.
Sænsk heimildarþáttaröð í fimm hlutum. Á hverjum degi fáum við mismunandi skilaboð um hvað er hollt og hvað ekki, og oftast er erfitt að vita hvað býr að baki niðurstöðunum. Hvernig virka líkamar okkar? Og hvaða áhrif hefur lífsstíll okkar nákvæmlega á heilsuna?
Þáttaröð í 12 hlutum. Í hverjum þætti er fjallað um tvær af þeim 24 þjóðum sem taka þátt á EM karla í fótbolta í Þýskaland. Við kynnumst leikmönnum, þjálfurum og þeim þjóðum sem keppa um evrópumeistaratitilinn.
Stutt umfjöllun Sumarlandans sem var á flakki sumarið 2020 og hitti landann fyrir uppi á fjöllum, úti í garði, á tjaldsvæðinu, vinnustaðnum, hjólastígnum og víðar.
Umsjónarmenn: Gísli Einarsson, Guðríður Helgadóttir, Hafsteinn Vilhelmsson, Helga Margrét Höskuldsdóttir og fleiri.
Íslensk heimildarmynd þar sem fylgst er með ferðalagi Högna Egilssonar og Önnu Töru Edwards um Nepal. Anna Tara er íslensk kona sem ólst upp í frumskógum Nepals innan um tígrisdýr og nashyrninga. Hún veiktist af geðhvörfum upp úr tvítugu og missti móður sína úr sama sjúkdómi. Þegar Högni steig fram með sín veikindi ákvað Anna Tara að feta sömu leið, eftir að hafa lifað í skugga veikindanna um árabil, og skora skömmina á hólm. Hún ákvað þá að efna til tónleika til vitundarvakningar um geðsjúkdóma í Kathmandu, höfuðborg Nepals og fékk Högna til að spila á tónleikunum. Þetta er ferðasaga, mynd um óvænta vináttu og hreinskilin og opin umræða um hvað það þýðir að vera með geðsjúkdóm og að vera aðstandandi. Leikstjórn og handrit: Andri Snær Magnason og Anní Ólafsdóttir. Tónlist: Högni Egilsson.
Rómantískir dramaþættir frá 2023. Fyrir sextán árum ákváðu Alice og Jack að halda hvort í sína áttina eftir að hafa varið einni nótt saman. Hins vegar er eitthvað sem dregur þau sífellt aftur hvort að öðru. Aðalhlutverk: Domhnall Gleeson, Andrea Riseborough og Sunil Patel. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Frönsk-túnisk gamanmynd frá 2019 í leikstjórn Manele Labidi Labbé. Sálgreinirinn Selma snýr aftur til heimabæjar síns í Túnis og opnar sálfræðistofu. Ekki eru allir bæjarbúar sáttir við þetta framtak í fyrstu en smám saman snýst þeim hugur og kúnnahópur hennar stækkar ört. Fljótlega veit Selma öll leyndarmál bæjarins og málin flækjast enn frekar þegar myndarlegur lögreglumaður fer að sýna henni áhuga. Aðalhlutverk: Moncef Ajengui, Amen Arbi og Ramla Ayari.
Myndin er hluti af þemanu Konur í kvikmyndagerð.
Heimildarmynd um Guðmundar- og Geirfinnsmálið. Rakið er hvarf hvors þessara tveggja manna, þáttur ungmennanna sex sem játuðu á sig morð þeirra og umdeildar aðfarir yfirvalda við rannsókn málsins. Leikstjóri: Dylan Howitt. Framleiðsla: Mosaic Films og Sagafilm.
Þáttaröðin er hluti af þemanu Sakamálasumar.