Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Sigríður Dögg Auðunsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.
Kristján Loftsson, forstjóri Hvals vandaði Matvælastofnun ekki kveðjurnar fyrr í vikunni og sakaði stofnunina um að hafa sett bann á veiðar á hæpnum forsendum með því að nota villandi myndir og taka ekki tillit til krefjandi aðstæðna. Hrönn Ólína Jörundsdóttir, forstjóri Matvælastofnunar, vísar því til föðurhúsanna. Hún var gestur Kastljóss.
Tölvuleikurinn EVEonline er 20 ára í ár. Á þeim tíma hafa yfir 60 milljónir manns spilað leikinn í yfir 450 þúsund ár. Við hittum Hilmar Veigar Pétursson í tilefni afmælisins.
Menningarfréttirnar voru á sínum stað að vanda. Heimildarmyndin Soviet Barbara, sem fjallar um Moskvuferð Ragnars Kjartanssonar, Tilverur - opnunarmynd RIFF, og tíu ára afmælistónleikar Vök voru meðal þess sem kom við sögu.
Spyrill er Logi Bergmann Eiðsson, dómari og spurningahöfundur er Stefán Pálsson og stigavörður er Steinunn Vala Sigfúsdóttir. Dagskrárgerð: Andrés Indriðason.
Fyrir Verzlunarskóla Íslands keppa Hafsteinn Viðar Hafsteinsson, Björn Bragi Arnarsson og Steinar Örn Jónsson.
Fyrir Borgarholtsskóla keppa Steinþór Helgi Arnsteinsson, Baldvin Már Baldvinsson og Björgólfur Guðni Guðbjörnsson.
Fjölskyldu- og skemmtiþáttur frá 2018. Jón Jónsson fær til sín hressar fjölskyldur sem etja kappi í bráðfyndnum spurningaleikjum og þrautum. Dagskrárgerð: Rúnar Freyr Gíslason. Upptökustjórn: Þór Freysson.
Æsispennandi keppni á milli fjölskyldunnar á Melhaga og fjölskyldunnar frá Liltu Ármót.
Í liði Melhaga eru: Þórdís, Tómas, Atli Hrafn og María Hlíf.
Berglind Björk, Guðrún Magnea, Auðunn og Oddur keppa fyrir Litlu Ármót.
Þættir frá 2012-2013. Fjallað er um leiklist, kvikmyndir og myndlist með upplýsandi og gagnrýnum hætti. Einnig er farið yfir feril einstakra listamanna. Umsjónarmenn eru Guðmundur Oddur Magnússon, Vera Sölvadóttir, Símon Birgisson og Sigríður Pétursdóttir. Dagskrárgerð: Guðmundur Atli Pétursson og Kolbrún Vaka Helgadóttir.
Fræðslumynd UNICEF - Hreyfingarinnar 2023. UNICEF - Hreyfingin er fræðslu- og fjáröflunarverkefni og markmiðið er að börn fræðist um réttindi sín og þá auðvitað allra barna og finnist þau um leið áorka einhverju í þágu jafnaldra sinna sem búa við lakari lífskjör eða hafa þurft að leggja á flótta vegna stríðs eða náttúruhamfara. Um 80 börn sem komu að gerð myndarinnar með einum eða öðrum hætti.
Skemmtiþáttur um íslenska tungu í umsjón Bjargar Magnúsdóttur og Braga Valdimars Skúlasonar. Þátttakendur etja kappi í fjölbreyttum leikjum og þrautum. Framleiðsla: Skot í samstarfi við RÚV.
Keppendur þáttarins eru Sigríður Thorlacius, Valdimar Guðmundsson, Laufey Soffía Þórsdóttir og Jón Jósep Snæbjörnsson.
Flokkur breskra sakamálamynda um Morse rannsóknarlögreglumann í Oxford á yngri árum. Hann ræður strembnar morðgátur, kynnist mönnum sem hann á eftir að starfa með næstu áratugina og þróar með sér eftirtektarverð skapgerðareinkenni sem hann á eftir að fínpússa á löngum og gifturíkum ferli. Í helstu hluverkum eru Shaun Evans og Roger Allam. Myndirnar eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Félagarnir Frank og Casper snúa aftur í áttundu þáttaröð dönsku gamanþáttanna Trúður, eða Klovn. Frank er hrakfallabálkur fram í fingurgóma og tekst alltaf að koma sér og vinum sínum í vandræðalegar aðstæður. Aðalhlutverk: Frank Hvam, Casper Christensen og Mia Lyhne. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.