Spurningakeppni sveitarfélaga frá 2018. Þátttakendur að þessu sinni eru lið frá þeim sveitarfélögum sem komust í úrslit árin á undan eða hafa oftast komist nálægt því. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Sólmundur Hólm. Spurningahöfundur og dómari er Jón Svanur Jóhannsson. Stjórn útsendingar: Helgi Jóhannesson.
Lið Norðurþings: Snæbjörn Sigurðsson, Þóra Hallgrímsdóttir, Daníel Freyr Birkisson.
Lið Bæjar- og sveitarstjóra: Guðmundur Gunnarsson, Ásta Stefánsdóttir, Ásthildur Sturludóttir.
Íslensk þáttaröð í átta hlutum. Einlægar og opinskáar frásagnir fólks sem býr við aðstæður í daglegu lífi sem eru ólíkar öllu sem flestir eiga að venjast. Dagskrárgerð: Elín Sveinsdóttir. Framleiðsla: SERES hugverkasmiðja
Unnur Regína Gunnarsdóttir berst af krafti við kerfið. Hún var búin að sætta sig við að vera með óútskýrðan sjúkdóm og kvíðann sem honum fylgdi en fékk loks rétta greiningu.
Guðríður Helgadóttir garðyrkjufræðingur fjallar um flest sem heyrir til garðvinnu; jurtir og blómaskrúð. Um dagskrárgerð sér Björn Emilsson.
Gurrý sýnir handtökin við umpottun á stóru pálmatré og heimsækir fagran og nýstárlegan garð garðyrkjufræðinganna Auðar Jónsdóttur og Kristins H. Þorsteinssonar í Grafarvogi.

Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Umsjón og handrit: Ari Páll Karlsson og Embla Bachmann. Ritstjórn: Ari Páll Karlsson.
1. Almyrkvi á sólu mun sjást á Íslandi í ágúst 2. Stelpur í 10. bekk söfnuðu 600.000 krónum fyrir Kraft.
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.
Sífellt fleiri hafa áhyggjur af því að þróun gervigreindar sé að verða stjórnlaus. En er hægt að koma böndunm á hana og hvernig? Halldóra Mogensen, sérfæðingur í vísindanefnd ESB, fer yfir málið.
Það er kunnara en frá þurfi að segja að símar valda truflunum í nær öllu daglegu lífi, yfir sjónvarpinu og undir stýri. En nú eru þeir farnir nú að valda truflunum á mikilvægustu stund lífsins - á fæðingardeildinni.
Við kynnum okkur líka útvarpsleikritið Baunin, sem nær allur ungleikarahópur landsins tekur þátt í.
Sigríður Hagalín Björnsdóttir, Valgeir Örn Ragnarsson og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.
Hvað gerist ef þjóðin greiðir atkvæði með því að hefja aftur aðildarviðræður við Evrópusambandið 29. ágúst?
Stefán Haukur Jóhannesson sendiherra og aðalsamningamaður Íslands í aðildarviðræðunum 2009-2013 segir frá samningaferlinu og því ferli sem tekur við ákveði Íslendingar að ganga aftur að samningaborðinu.
Í síðari hluta þáttarins koma Gylfi Magnússon hagfræðiprófessor við HÍ, Margrét Einarsdóttir prófessor í Evrópurétti við HR, Kolbeinn Árnason ráðuneytisstjóri atvinnuvegaráðuneytisins og Vilborg Ása Guðjónsdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur og ræða helstu málefni sem þyrfti að semja um í aðildarviðræðunum.
Umsjón með þættinum hefur Sigríður Hagalín Björnsdóttir.
Þættir sem fjalla um þjóðirnar sem taka þátt á HM karla í fótbolta. Við kynnumst leikmönnum, þjálfurum og þeim þjóðum sem keppa um heimsmeistaratitilinn á þessum stærsta viðburði vinsælustu íþróttagreinar veraldar.
Fjallað er um Curaçao, Jórdaníu, Grænhöfðaeyjar og Úsbekistan.
Sænskir hryllingsþættir frá 2025 byggðir á samnefndri skáldsögu eftir Mats Strandberg. Eitthvað illt leynist um borð í ferju á leið milli Svíþjóðar og Finnlands og þegar fjarskiptasamband rofnar um miðja nótt er engin undankomuleið. Aðalhlutverk: Tuppence Middleton, Kolbjörn Skarsgård, Björn Bengtsson og Jessica Grabowsky. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.
Heimildarmynd frá 2022 um bresku rokkhljómsveitina King Crimson í tilefni 50 ára afmælis hennar. Leikstjóri: Toby Amies. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.