13:35
Kastljós
Sigurvegarar kosninganna, inntökupróf í slökkviliðið, slátturóbótar

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.

Sjálfstæðisflokkurinn í Kópavogi og Framsóknarflokkurinn í Hafnarfirði, öðru og þriðja stærsta sveitarfélaga landsins, unnu glæsta sigra í sveitarstjórnarkosningum um helgina. Sjálfstæðisflokkurinn fékk hreinan meirihluta í fyrsta sinn og Framsóknarflokkurinn fékk meira fylgi en nokkru sinni í bænum. Ásdís Kristjánsdóttir og Valdimar Víðisson fóru yfir árangurinn og verkefnin framundan.

Marga dreymir um að komast í slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu en til þess þarf að standast krefjandi þrekpróf. Við prófuðum að þreyta það.

Sífellt fleiri garðeigendur fá sér slátturóbota til að létta sér garðvinnuna. Við kynntum okkur innreið róbotanna.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 24 mín.
e
Endursýnt.
Dagskrárliðurinn er textaður.
,