Danskur heimildarþáttur um menn sem verða feður eftir fimmtugt. Fjöldi manna sem eignast börn um eða eftir miðjan aldur hefur þrefaldast á síðustu 30 árum í Danmörku. Þeir hafa kannski ekki jafn mikla orku og áður til að takast á við álagið sem fylgir föðurhlutverkinu en þeir hafa ýmislegt annað að bjóða börnum sínum.

Dana er 9 ára stelpa sem elskar risaeðlur. Líf hennar breytist til frambúðar þegar hún fær gefins handbók um risaeðlur, sem kennir henni ekki aðeins nýja hluti um dýrin, heldur gefur henni ofurkrafta sem gera henni kleift að sjá fyrir sér risaeðlur í raunveruleikanum.
Matilda er metnaðarfullur námsmaður og vill standa sig vel í skólanum. Hana dreymir líka um gott félagslíf, að skemmta sér jafn mikið og vinsælu jafnaldrar hennar - en hvernig fer hún að því? Hún pantar klón af sér á dularfullri vefsíðu og þarf skyndilega að takast á við tvífara sem tekur yfir líf hennar.
Mikill ruglingur skapast í ástarmálunum.
Hvernig hugsa helstu listamenn og hugsuðir Svíþjóðar og hvaðan sækja þau sér innblástur og hvatningu? Í þessum þáttum er rætt við sænska meistara um sköpunarferlið, ákvarðanatöku og það hvernig mistök geta leitt til nýrra sigra.
Breskir leiknir þættir frá 2025. Evie og Noa eru forfallnir kvikmyndanördar sem fá útrás fyrir áhugamálið í vikulegum kvikmyndaklúbbi þar til að óvænt flétta kemur klúbbnum í uppnám. Aðalhlutverk: Aimee Lou Wood, Nabhaan Rizwan og Liv Hill.
Bandarísk kvikmynd frá 2014 í leikstjórn Josh Boone. Hin sextán ára Hazel berst við krabbamein og kýs að láta lítið á sér bera þar til hún kynnist hinum lífsglaða Gus í stuðningshópi fyrir ungt fólk með krabbamein. Myndin er byggð á samnefndri skáldsögu eftir John Green. Aðalhlutverk: Shailene Woodley, Ansel Elgort og Nat Wolff. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.