Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.
Kona sem fór í misheppnaða fegrunaraðgerð í Tyrklandi í gegnum íslenska fyrirtækið Hei-medival veit ekki enn hver framkvæmdi aðgerðina. Konan er með stór og ljót ör eftir andlitslyftingu og aðskotahlutur varð eftir í andliti hennar í aðgerðinni. Rætt er við konuna í Kastljósi kvöldsins og gestur þáttarins er Guðjón Sigurbjartsson framkvæmdastjóri HEI medical travel.
Í nýrri sýningu listakonunnar Eddu Karólínu Ævarsdóttur kynnir hún nýja röð skúlptúrinnsetninga, í samspili við hljóðheim eftir tónlistamanninn Dag Sölva Halldórsson. Við lítum inn á sýninguna í þættinum.
Sigríður Hagalín Björnsdóttir, Valgeir Örn Ragnarsson og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.
Gestir Silfursins eru Eyrún Magnúsdóttir, ritstjóri Gímaldsins, Gréta María Grétarsdóttir, verkfræðingur og fyrrverandi framkvæmdastjóri Prís, Halldór Halldórsson, forstjóri Íslenska kalkþörungafélagsins og Svandís Svavarsdóttir, fyrrverandi formaður Vg.
Umfjöllun Berlinske um íslenskan sjávarútveg vakti mikla athygli um helgina. Þar dregin upp dökk mynd af greininni og pólitískum ítökum útgerðarinnar. Það styttist í sveitastjórnarkosningar, en ekki er örgrant um að þær hafi fallið í skuggann af áformum um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB í sumarlok.
Bein útsending frá spurningakeppni sveitarfélaga. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Sólmundur Hólm. Spurningahöfundar: Ævar Örn Jósepsson og Jón Svanur Jóhannsson. Dómari: Ævar Örn Jósepsson. Stjórn útsendingar: Helgi Jóhannesson.

Ævintýri Tulipop er skemmtileg þáttaröð um litríkan vinahóp sem býr á töfraeyjunni Tulipop. Á hverjum degi gerast ný ævintýri á eyjunni sem sem geta haft áhrifaríkar afleiðingar í för með sér en vináttuböndin reynast ævinlega traust.
Sætasti fuglinn á allri Tulipop hefur villst af leið og virðist ekki getað flogið. Freddi og Gló þurfa að hjálpa honum að fljúga svo að ekkert komi fyrir hann. Þau ákveða að klífa hátt fjall og hitta þar aðra sætuspætu. Það verða miklir fagnaðarfundir þegar sætuspæturnar hittast og fljúga að lokum saman á braut inn í tunglskinið.
Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Umsjón og handrit: Ari Páll Karlsson og Embla Bachmann. Ritstjórn: Ari Páll Karlsson.
1. Nýtt jarðhitasvæði fannst á Hellisheiði 2. Sigurvegari Söngkeppni framhaldsskólanna.
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fyrrverandi varaformaður Sjálfstæðisflokksins og utanríkisráðherra, hefur verið skipuð sendiherra og hættir á þingi. Hún ræddi við Kastljós í tilefni af vistaskiptunum.
Dalatangi er austasta byggða ból landsins og það er hægara sagt en gert að komast þangað yfir vetrarmánuðina, eins og við komumst að.
Það getur verið flókið að fóta sig í lífinu á þrítugsaldri. Um það fjalla sjónvarpsþættirnir Tuttugu og eitthvað, sem hófu göngu sína á RÚV á dögunum. Við ræddum við aðstandendur,.
Oddvitar allra framboða í sveitarfélaginu mætast í umræðuþætti.
Átta listar eru í framboði í Kópavogi fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Oddvitar þeirra mætast í umræðum. Þátttakendur eru Orri Hlöðversson , Framsóknarflokki, Einar Jóhannes Guðnason , Miðflokki, Jónas Már Torfason , Samfylkingu, Ásdís Kristjánsdóttir, Sjálfstæðisflokki, Markús Candi, Sósíalistaflokki, María Ellen Steingrímsdóttir, Viðreisn, og Anna Sigríður Hafliðadóttir, Vinstri Græn.
Sannsögulegir breskir dramaþættir frá 2025 um líf Ruth Ellis, síðustu konunnar sem dæmd var til dauða í Bretlandi árið 1955. Varpað er ljósi á ofbeldisfullt samband hennar við manninn sem hún myrti, réttarhöldin og baráttu hennar fyrir frelsinu. Aðalhlutverk: Toby Jones, Toby Stephens og Lucy Boynton. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Önnur þáttaröð þessara bresku sakamálaþátta. Deilur milli glæpagengja valda glundroða á götum Belfast og nýliðum innan lögreglunnar er ýtt út á ystu nöf bæði í starfi og einkalífi. Aðalhlutverk: Nathan Braniff, Sian Brooke og Katherina Devlin. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.