Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.
Skiptar skoðanir eru á nýrri matarstefnu Reykjavíkurborgar, þar sem bann er lagt við unnum kjötvörum í leik- og grunnskólum nema í undantekningartilfellum. Meirihlutinn segir að með þessu sé stuðlað að aðgengi að næringarríkum mat óháð efnahag og benda á að unnar kjötvörur innihaldi skaðleg efni. Minnihlutinn gagnrýnir meirihlutann fyrir að fara offari og útiloka meðal annars hefðbundinn heimilismat, sem sé hluti af íslenskri matarmenningu. En hversu algengar eru unnar kjötvörur á matseðlum skólanna? Ellen Alma Tryggvadóttir, næringarfræðingur og verkefnastjóri hjá embætti landlæknis í fer yfir málið?
Það þarf að koma til móts við fólkið sem notar almenningssamgöngur, segir ungur maður sem er stundum rúmlega klukkutíma að komast til vinnu með strætó. Kastljós fjallar um nokkur málefni sem kosið er um í sveitarstjórnarkosningum á næstu vikum.
Óvenjulegur leikhópur sýnir sitt eigið verk í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ. Leikararnir eru á öllum aldri, tala ólík tungumál og eiga það allir sameiginlegt að vera flóttafólk. Við lítum á æfingu.
