Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.
Donald Trump hefur hótað að útrýma siðmenningu Íran gangi stjórnvöld þar í landi ekki að kröfum hans, semji um frið og opni Hormussund fyrir olíuflutninga á ný. Utanríkisráðherra Íslands segir þetta alvarlegustu stöðu sem hún muni eftir í alþjóðamálum. Albert Jónsson, fyrrverandi sendiherra, og Kjartan Orri Þórsson, sérfræðingur í málefnum Írans, fara yfir atburðarásina.
Þótt Trump fylgi hótunum sínum ekki eftir er ljóst að lokun Hormussunds hefur valdið efnahagslegum skell um allan heim. Aðalhagfræðingur Íslandsbanka segir áhrifin eiga eftir að koma fyllilega í ljós en þau verði líklega ekki skammvinn. Við ræðum við hann um hvað það þýðir fyrir Ísland.
Ef það eru draugar hér eru þeir með okkur í liði, segja íbúar í elsta tvöfalda steinbæ landsins. Honum var bjargað frá glötun af Minjavernd. Hann er staðsettur innan um glænýjar blokkir en íbúarnir segja þetta eins og að búa uppi í sveit.
