Bein útsending frá spurningakeppni sveitarfélaga. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Sólmundur Hólm. Spurningahöfundar: Ævar Örn Jósepsson og Jón Svanur Jóhannsson. Dómari: Ævar Örn Jósepsson. Stjórn útsendingar: Helgi Jóhannesson.
Heimildarþættir frá 2022 sem segja söguna sem þáttaröðin Carmenrúllur er byggð á. Á sjöunda áratug síðustu aldar stóð Arne Bybjerg Pedersen á bak við einn besta árangur Danmerkur í útflutningi þegar hann setti fé í þróun á hárrúllum sem áttu eftir að gjörbreyta hártískunni.
Íslenskir heimildarþættir í leikstjórn Péturs Fjeldsted Einarssonar. Fjallað er um velsældarhagkerfið þar sem áhersla er lögð á framfarir og þróun út frá heilsu fólks og jarðar. Framleiðsla: Elín Hirst, Pétur Fjeldsted Einarsson og embætti landlæknis.

Ævintýri Tulipop er skemmtileg þáttaröð um litríkan vinahóp sem býr á töfraeyjunni Tulipop. Á hverjum degi gerast ný ævintýri á eyjunni sem sem geta haft áhrifaríkar afleiðingar í för með sér en vináttuböndin reynast ævinlega traust.
Maddý ákveður að halda sundlaugarpartý og er harðákveðin í því að allt í partýinu skuli vera bleikt, þar með talin laugin í garðinum hennar. Gló kemur henni til aðstoðar og býr til bleika baðbombu fyrir laugina. Maddý er hæstánægð með útkomuna þar til í ljós kemur að baðbomban hefur ekki aðeins litað laugina hennar bleika...heldur alla Tulipop eyjuna!
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.
Donald Trump hefur hótað að útrýma siðmenningu Íran gangi stjórnvöld þar í landi ekki að kröfum hans, semji um frið og opni Hormussund fyrir olíuflutninga á ný. Utanríkisráðherra Íslands segir þetta alvarlegustu stöðu sem hún muni eftir í alþjóðamálum. Albert Jónsson, fyrrverandi sendiherra, og Kjartan Orri Þórsson, sérfræðingur í málefnum Írans, fara yfir atburðarásina.
Þótt Trump fylgi hótunum sínum ekki eftir er ljóst að lokun Hormussunds hefur valdið efnahagslegum skell um allan heim. Aðalhagfræðingur Íslandsbanka segir áhrifin eiga eftir að koma fyllilega í ljós en þau verði líklega ekki skammvinn. Við ræðum við hann um hvað það þýðir fyrir Ísland.
Ef það eru draugar hér eru þeir með okkur í liði, segja íbúar í elsta tvöfalda steinbæ landsins. Honum var bjargað frá glötun af Minjavernd. Hann er staðsettur innan um glænýjar blokkir en íbúarnir segja þetta eins og að búa uppi í sveit.
Bresk glæpaþáttaröð frá 2025 byggð á sænskum metsölubókum eftir Erik Axl Sund. Röð dularfullra morða á ungum mönnum í Bristol leiðir saman rannsóknarlögreglukonuna Jeanette Kilburn og sálfræðinginn Sophiu Craven. Rannsókn málsins dregur þær á hættulegar slóðir ofbeldis og morða. Aðalhlutverk: Eve Myles, Katherine Kelly og Clara Rugaard. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.
Finnsk heimildarþáttaröð þar sem rannsóknarblaðamaðurinn Riku Rantala rannsakar örlög ungra manna sem hurfu um borð í ferju milli Svíþjóðar og Finnlands. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.