19:45
Kastljós
Netglæpir og Óskarinn

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.

Svik og aðrir glæpir á internetinu verða sífellt háþróaðri og erfiðari við að eiga, sérstaklega með tilkomu gervigreindar. Magni R. Sigurðsson forstöðumaður netöryggissveitarinnar Cert.is og Ýmir Vigfússon tæknistjóri Keystrike lýsa þessari auknu stafrænu vá.

Óskarinn var afhendur í 98. sinn í gær og innibar nýjan verðlaunaflokk, fyrstu konuna sem verðlaunuð er fyrir kvikmyndatöku og norsk aðalverðlaun. Álfheiður Marta Kjartansdóttir leikstjóri og Magnús Jochum Pálsson menningarblaðamaður reifa helstu úrslit.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 25 mín.
Dagskrárliðurinn er textaður.
,