Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.
Rætt um stöðu mæðra á vinnumarkaði við Sigrúnu Brynjarsdóttur hagfræðing hjá BHM.
Sala á hugverkaréttindum ísfirska fyrirtækisins Kerecis skilar 40 milljörðum í ríkiskassann í haust. Við ræðum við Guðmund Fertram Sigurjónsson, stofnanda Kerecis, hér á eftir.
Einnig rætt við írönsku listakonuna Marzieh Amiri, sem opnaði í síðustu viku málverkasýningu um kúgun kvenna í heimalandi sínu. Rúmum sólarhring síðar hófust árásir Bandaríkjamanna og Ísraela á Íran.
Kveikur er fréttaskýringaþáttur með áherslu á rannsóknarblaðamennsku. Ritstjórn og dagskrárgerð: Ragnhildur Þrastardóttir, Arnar Þórisson, Árni Þór Theodórsson, Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir, Ingvar Haukur Guðmundsson, Jóhann Bjarni Kolbeinsson, Sunna Karen Sigurþórsdóttir og Tryggvi Aðalbjörnsson.
Einhverfum er gjarnan synjað um geðheilbrigðisþjónustu hérlendis. Ungur einhverfur maður sem hefur ítrekað lent á veggjum í kerfinu þrátt fyrir sjálfsvígshugsanir ákvað þegar hann fékk innlögn á geðdeild síðastliðið sumar að hann skyldi velja lífið.
Spurningakeppni framhaldsskólanna. Spurningahöfundar og dómarar eru Arnar Gunnarsson, Sigurlaugur Ingólfsson og Vilhjálmur Bragason. Spyrill er Helga Margrét Höskuldsdóttir. Stjórn útsendingar: Sturla Holm Skúlason.
Borgarholtsskóli mætir Menntaskólanum á Egilsstöðum. Keppendur frá Borgarholtsskóla: Daníel Orri Gunnarsson, Jóhann Fróði Ásgeirsson og Júlía Kristín Eyþórsdóttir. Keppendur frá Menntaskólanum á Egilsstöðum: Steinar Aðalsteinsson, Sólgerður Vala Kristófersdóttir og Auðun Lárusson Snædal.

Fylgstu með hugrökkum krökkum breytast í smáspæjara og takast á við fjölbreytt verkefni og ráðgátur í Krimmaborg. Með hjálp frá Spæjara X og Ninjo elta þau útsmogna skúrka og læra að vinna saman á skemmtilegan og spennandi hátt. Serían er með íslenskum texta.
Sænskir þættir sem fjalla um ævintýri sem eiga sér stað í sumarbúðum í Svíþjóð. Þar eru foringjarnir ekki alveg eins og fólk er flest og forvitin börn lenda í fjörugum aðstæðum, sem innihalda meðal annars boga, brjálaða geitunga og bjarnargildrur!

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um aðildarviðræður

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.
Norsk leikin þáttaröð frá 2025. Þegar Emma kemst að því að hún er erfingi eins mesta auðkýfings í Noregi gjörbreytist líf hennar á einum degi. Með í pakkanum fylgja þó fjögur hálfsystkini sem eru ekki jafn ánægð með að faðir þeirra hafi bætt Emmu á erfðaskrána í laumi. Aðalhlutverk: Vivild Falk Berg, Henriette Steenstrup, Nicolai Cleve Broch, Helle Ryg Eia og Kristin Grue.

Gísli Marteinn tekur á móti góðum gestum á föstudagskvöldum í vetur og fer með þeim yfir helstu atburði vikunnar í stjórnmálum, menningu og mannlífi. Persónur og leikendur koma í spjall og brakandi fersk tónlistaratriði koma landsmönnum í helgarstemninguna. Stjórn útsendingar: Ragnar Eyþórsson.
Þrettánda þáttaröð breska myndaflokksins Ljósmóðurinnar, sem er byggður á sannsögulegum heimildum um ljósmæður og skjólstæðinga þeirra í fátækrahverfi í austurborg London á sjöunda áratugnum. Meðal leikenda eru Vanessa Redgrave, Laura Main, Jenny Agutter og Stephen McGann.

Bandarísk bíómynd frá 2000 í leikstjórn Kathryn Bigelow. Fréttaljósmyndarinn Jean rannsakar hrottaleg axarmorð sem framin voru árið 1873 á sama tíma og hún glímir við afbrýðisemi og tortryggni í hjónabandi sínu. Þegar hún kemst yfir skjöl sem virðast lýsa vitnisburði sjónarvottar að morðunum sér hún líkindi með eigin reynslu og þeim konum sem lifðu glæpinn af. Aðalhlutverk: Sean Penn, Elizabeth Hurley og Catherine McCormack. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.

Setningarathöfn á Vetrarólympíumóti fatlaðra í Mílanó og Cortina á Ítalíu.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um aðildarviðræður