20:45
Íslenski draumurinn

Íslensk gamanmynd frá árinu 2000 eftir Róbert I. Douglas. Tóti er seinheppinn en góðhjartaður einstæður faðir sem ætlar sér að verða ríkur á sígarettuinnflutningi. Samhliða viðskiptaævintýrinu reynir hann að sinna hlutverki helgarpabbans en samskiptin við barnsmóður hans eru ekki góð. Þótt allt gangi á afturfótunum er Tóti tilbúinn til að gera hvað sem er til að láta drauminn rætast. Aðalhlutverk: Þórhallur Sverrisson, Jón Gnarr og Hafdís Huld Þrastardóttir. Leikstjóri: Róbert I. Douglas.

Er aðgengilegt til 29. maí 2026.
Lengd: 1 klst. 32 mín.
Eingöngu aðgengilegt á Íslandi
Aðgengilegt eingöngu á Íslandi.
Dagskrárliðurinn er textaður.
,