Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.
Við ræðum við hjúkrunarfræðing á bráðamóttöku Landspítalans, sem upplifir sig ekki öruggan í vinnunni eftir að hafa smitast af berklum í byrjum mánaðar.
Skortur á legu- og hjúkrunarrýmum hefur bitnað rækilega á bráðmóttökunni undanfarin ár, með tilheyrandi álagi á starfsfólk og skertu öryggi sjúklinga. Í dag bætist enn eitt atriðið á listann, eftir að Slökkvlið höfuðborgarsvæðisins gerði athugasemdir við brunavarnir á bráðamóttökunni. Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítalans, fer yfir stöðuna með okkur.
Við vendum kvæði okkar í kross í lok þáttar og förum á kínverska danssýningu, sem haldin var hér á landi í tilefni af því að kínverska nýárið gekk í garð.
Þættir frá 2007 þar sem íslenskir lagasmiðir flytja nokkur verka sinna í sjónvarpssal. Umsjón og dagskrárgerð: Jón Egill Bergþórsson.
Jón Ólafsson flytur nokkur af lögum sínum að viðstöddum áhorfendum í Sjónvarpssal.
Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.
Í Kilju vikunnar segjum við frá nýrri bók þar sem fjallað er um ævi, list og starf Drífu Viðar. Drífa var gríðarlega fjölhæf kona, stundaði einkum málaralist en fékkst einnig við ritstörf, listgagnrýni og fleira. Hún lést fyrir aldur fram, aðeins 51 árs árið 1971. Við ræðum við tvo ritstjóra bókarinnar, Kristínu Guðrúnu Jónsdóttur og Elísabetu Gunnarsdóttur. Við Kolbrún Bergþórsdóttir og Ingibjörg Iða Auðunardóttir förum á Bókamarkaðinn og veljum bækur sem vekja áhuga okkar. Una Björk Kjerúlf fékk um daginn hin virtu bókmenntaverðlaun Ljóðstaf Jóns úr Vör fyrir kvæði sitt Framlag mitt í minningabanka nærri útdauðra hljóða - við spjöllum við hana í þættinum og hún flytur ljóðið. Í dagskrárliðnum Bókum og stöðum förum við norður í Reykjarfjörð á Ströndum en þar var forðum tíð miðstöð hvalveiða og síðar hákarlaveiða.
Íslensk þáttaröð í sex hlutum í umsjón Önnu Sigríðar Ólafsdóttur, prófessors í næringarfræði. Í þáttunum er fylgst með fjölbreyttum hópi fólks taka næringar- og matarvenjur sínar til gagngerrar endurskoðunar í þeim tilgangi að nærast betur - og njóta um leið. Framleiðandi: Sagafilm.
Hefurðu einhvern tímann hugsað um hversu stóran sess matur skipar í lífi þínu? Hvaðan hugmyndir þínar um mat koma, hvaða merkingu hann hefur og hvaða hlutverki hann gegnir? Í fyrsta þætti Nærumst og njótum kynnumst við þátttakendum og heyrum hvar áskoranir þeirra liggja. Við spjöllum við fólk á förnum vegi sem hefur ólíkar hugmyndir um mat og næringu, skoðum hvaða þættir þurfa að vera til staðar til að breyta hegðun og hverjir ytri áhrifaþættir matarvenja okkar eru.

Tinna táknmálsálfur er sniðugur álfur sem býr í Blómabæ í Bláskógarbyggð. Hún lendir í ýmsum ævintýrum með vinum sínum Kötu kónguló og Tedda tannálfi og ef til vill lærum við líka svolítið táknmál.
Höfundur:
Laila Margrét Arnþórsdóttir
Leikur:
Tinna: Kolbrún Völkudóttir
Kata kónguló: Jan Fiurasek
Talsetning:
Tinna: Álfrún Helga Örnólfsdóttir
Kata kónguló: Erla Ruth Harðardóttir
Teddi tannálfur: Björgvin Franz Gíslason og Friðrik Friðriksson
Búningar: Helga Rún Pálsdóttir
Tinna táknmálsálfur er sniðugur álfur sem býr í Blómabæ í Bláskógarbyggð. Hún lendir í ýmsum ævintýrum með vinum sínum Kötu kónguló og Tedda tannálfi og ef til vill munum við líka læra svolítið af táknmáli. Að þessu sinni eru Tinna og Teddi tannálfur að spila en svo verður Teddi að drífa sig af stað í tannálfsleiðangur. Þau fara saman, ná í tönn undir kodda hjá sofandi strák og skilja eftir glitrandi gullpening.
Þættir þar sem krakkar setja upp leikið verk. Það eina sem þau fá er leikmynd og málsháttur. Þau búa til söguna, ákveða hver gerir hvað og æfa vel og vandlega svo allt smelli saman fyrir sýninguna í lokin. Dagskrárgerð: Sigyn Blöndal og Sindri Bergmann Þórarinsson. Leikstjóri: Agnar Jón Egilsson.
Kvikmyndasafn Íslands geymir fjársjóð af kvikmyndum sem sýna íslenskan veruleika snemma á síðustu öld. Egill Helgason og Gunnar Tómas Kristófersson rýna efni og sýna efni sem jafnvel enginn hefur séð. Dagskrárgerð: Ragnheiður Thorsteinsson.
Í þessum þætti fjöllum við um það sem við köllum hátíðavandann - tilraunir til að kvikmynda stórhátíðir sem Íslendingar héldu, líkt og Alþingishátíðina 1930 og Lýðveldishátíðina 1944. Það gekk stundum heldur brösulega og sumt misheppnaðist illa.
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.
Kaupfíkn er kannski ekki alltaf tekin alvarlega en hún er samt sem áður raunveruleg og virðist herja á sífellt fleiri. Vandinn er oft falinn og fáir leita sér aðstoðar. Við kynnum okkur kaupfíkn í þættinum.
Flestir fara ef til vill í fyrsta sinn í leikhús á grunnskólaaldri. Því er öðruvísi farið með leiksýninguna Hreiðrið því þar eru leikhússgestirnir þriggja mánaða, og upp úr. Kastljós heimsótti Hreiðrið.
Spurningakeppni framhaldsskólanna. Spurningahöfundar og dómarar eru Arnar Gunnarsson, Sigurlaugur Ingólfsson og Vilhjálmur Bragason. Spyrill er Helga Margrét Höskuldsdóttir. Stjórn útsendingar: Sturla Holm Skúlason.
Menntaskólinn að Laugarvatni mætir Verzlunarskóla Íslands. Keppendur frá Menntaskólanum á Laugarvatni: Allan Hólm Rúnarsson, Stefán Gunngeir Stefánsson og Þórey Kristín Rúnarsdóttir. Keppendur frá Verzlunarskóla Íslands: Dagbjörg Birna Sigurðardóttir, Katla Margrét Jónsdóttir og Ísak Trausti Ingólfsson Lehmann.
Dönsk leikin þáttaröð frá 2024 byggð á sönnum atburðum. Kærustuparið Iben og Alex eru hluti af samfélagi ungra anarkista sem heldur til í Ungdómshúsinu á Norðurbrú í Kaupmannahöfn. Þegar borgin selur trúfélagi húsið og til stendur að rýma það grípaanarkistarnir í húsinu til aðgerða. Iben og Alex átta sig á að þau hafa ólíkar hugmyndir um hvaða aðferðum skal beita til að ná sínu fram. Aðalhlutverk: Thit Aaberg, Elias Budde Christensen og Sandra Guldberg Kampp. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Breskir sakamálaþættir byggðir á sönnum atburðum. Árið 1973 voru þrjár unglingsstúlkur myrtar í bænum Port Talbot í Wales en lögreglunni tókst ekki að finna morðingjann. Þrjátíu árum síðar koma fram nýjar vísbendingar og rannsóknarlögreglumaðurinn Paul Bethell er staðráðinn í að leysa málið. Aðalhlutverk: Philip Glenister og Steffan Rhodri. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Heimildarþáttaröð um Adolf Hitler þar sem stuðst er við viðtöl við fólk sem þekkti Hitler náið til að draga upp mynd af því hver hann var í raun og veru. Þættirnir gerast í öfugri tímaröð og byrja þegar Þýskaland er í rústum eftir seinni heimsstyrjöldina. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Þættir um bestu handboltalið Íslands. Hópur sérfræðinga hefur valið sjö handboltalið í karla- og kvennaflokki sem koma til greina sem besta handboltalið Íslands. Áhorfendum gefst kostur á að velja besta handboltalið Íslands í sérstökum lokaþætti. Dagskrárgerð: Hilmar Björnsson og Vilhjálmur Siggeirsson.