09:35
Stundin okkar-Tökum á loft III
10. Loftköst
Krakkarnir bjarga vinum sínum Lofti og Sjón úr svartholinu – eða hvað? Nýjar og dularfullar verur koma í þeirra stað! Nú þurfa krakkarnir að finna hið sanna Loft og hina sönnu Sjón, en leiðin er full af ævintýrum og gleymdum minningum.
Áróra segir Freti frá töfrum jólanna. Hún býður Freti dýrmætan jólakrans – sem gæti líka bjargað Lofti. En FRET stendur frammi fyrir erfiðri ákvörðun: að hjálpa … eða halda í vináttuna sem það óttast að missa.
Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 25 mín.
Dagskrárliðurinn er textaður.
