13:40
Kastljós
Meðeigendaleið byggingarfélaga, morðgáta í Vestmannaeyjum

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.

Formaður fjárlaganefndar Alþingis geldur varhug við nýrri fjármögnunarleið á húsnæðismarkaði. Sex fjárfestingarsjóðir á vegum byggingarfélaga hafa verið stofnaðir á undanförnum mánuðum en .eir bjóðast til að gerast meðeigendur kaupenda að íbúðum á vegum viðkomandi félaga. Rannveig Eir Einarsdóttir, forstjóri Reir verks telur þetta fyrirkomulag auðvelda fólki að komast á húsnæðismarkaðinn og gera byggingamarkaðinn fyrirsjáanlegri. Ragnar Þór Ingólfsson, formaður fjárlaganefndar, telur að þetta ýti undir verðbólgu og kallar eftir regluverki. Þau fóru yfir málin í Kastljósi.

Morðmál skekur Vestmannaeyjar í spennuþáttaseríunni Heimaey, sem hóf nýverið göngu sína á Sjónvarpi Símans. Við litum við á frumsýningu þáttanna.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 26 mín.
e
Endursýnt.
Dagskrárliðurinn er textaður.
,