19:45
Kastljós
Gervigreind og staða íslenskunnar, Jörðin undir fótum okkar

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.

Gervigreind hefur fleygt fram og hefur rækileg áhrif á samfélagið - hún skrifar texta fyrir okkur, þýðir og getur jafnvel talað við okkur. En hver er staða íslenskunnar á þessum umbyltingartímum? Hversu langt erum við komin í að byggja upp stafræna innviði? Hver eru tækifærin og hverjar eru ógnirnar? Lilja Dögg Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Almannaróms, og Vilhjálmur Þorsteinsson, stofnandi og stjórnarformaður Miðeindar, fóru yfir málið.

Hversdagslífið á hjúkrunarheimilinu Grund er í miðpunkti heimildarmyndarinnar Jörðin undir fótum okkar eftir Yrsu Roca Fannberg, sem sýnd er í kvikmyndahúsum þessa dagana. Við ræddum við leikstjórann.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 25 mín.
Dagskrárliðurinn er textaður.
Bein útsending.
,