14:00
Silfrið
Hagræðing og biðlaun, Trumpar pundar á Pólland

Sigríður Hagalín Björnsdóttir, Valgeir Örn Ragnarsson og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.

Andrés Jónsson, framkvæmdastjóri Góðra samskipta og umsjónarmaður hlaðvarpsins Bakherbergisins, Drífa Snædal, talskona Stígamóta og fyrrverandi forseti ASÍ, Unnur Brá Konráðsdóttir, fyrrverandi þingmaður og forseti Alþingis, og Karen Kjartansdóttir, almannatengill eru gestir Silfursins.

Rætt var um tollahótanir Trump Bandaríkjaforseta og stóraukin útgjöld Evrópuríkja til varnarmála, hagræðingartillögur ríkisstjórnarinnar hér heima og laun og fríðindi kjörinna fulltrúa, sem mörgum er farið að þykja helst til rausnarleg.

Pólland er orðinn nýjasta skotspónn ráðamanna í Bandaríkjunum, sem hafa ekki vandað Pólverjum kveðjurnar undanfarinn sólarhring. Við ræðum við Friðrik Jónsson, sendiherra Íslanda í Póllandi og gagnvart Úkraínu.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 56 mín.
e
Endursýnt.
,