Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Urður Örlygsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.
Bókunarstaða bendir til þess að umsvif í ferðaþjónustu séu að minnka og þá sérstaklega á landsbyggðinni. Kastljós var í beinni útsendingu frá Mývatnssveit og ræddi við Anton Frey Birgisson og Ólöfu Hallgrímsdóttur, sem bæði starfa við ferðaþjónustu.
Grunnskólar Akureyrar ætla að banna símanotkun grunnskólabarna að mestu næsta vetur og hafa kynnt sérstakan símasáttmála.

Stuttir heimildarþættir um sambönd manna og hunda.
Bein útsending frá spurningakeppni framhaldsskólanna sem einkennist af stemningu, spennu og virkri þátttöku allra í salnum. Dómarar: Vilhelm Anton Jónsson og Ingileif Friðriksdóttir. Spyrill: Kristjana Arnarsdóttir. Dagskrárgerð: Elín Sveinsdóttir.
Í þessum þætti mætast lið Verzlunarskóla Íslands og Menntaskólans í Reykjavík. Lið Verzlunarskólans skipa Eiríkur Kúld Viktorsson, Hekla Sól Hafsteinsdóttir og Gabríel Máni Ómarsson. Lið Menntaskólans í Reykajvík skipa Birta Líf Breiðfjörð Jónasdóttir, Ármann Leifsson og Víkingur Hjörleifsson.

Tónlistarþættir þar sem Jón Ólafsson píanóleikari spjallar við dægurlagahöfunda og tónlistarmenn og tekur með þeim lagið. Dagskrárgerð: Jón Egill Bergþórsson.
Gestur í þessum þætti er Ragnhildur Gísladóttir.

Norskir þættir um líkamstjáningu þar sem teknar eru fyrir ýmsar aðstæður sem fólk verður gjarnan óöruggt í. Fjallað er um hvernig hægt er að vinna með líkamstjáningu til að virka öruggari til dæmis á stefnumótum og í atvinnuviðtölum.
Þáttaröð um eyðibýli á Íslandi. Þar sem á árum áður voru reisulegir sveitabæir með iðandi mannlífi standa nú húsin tóm. Rætt er um byggingu bæjanna og talað við fólk sem tengist stöðunum á einn eða annan hátt. Farið er í Suðurhús í Suðursveit, Hamra á Mýrum, Múlakot í Fljótshlíð, Öxney á Breiðafirði, Heiði á Langanesi og Vatnshorn í Skorradal. Umsjónamaður er Guðni Kolbeinsson og dagskrárgerð annaðist Björn Emilsson.

Heilinn er undarlegt fyrirbæri og hægt að hafa áhrif á hann og hegðun einstaklinga með mismunandi hætti. Fræðandi, danskur þáttur þar sem sjónhverfingarmanninum og dáleiðandanum Jan Hellesøe er fylgt eftir.

Danskir þættir þar sem við skoðum merkisdaga í lífi okkar. Í þremur þáttum segja þrjár ólíkar kynslóðir frá brúðkaupinu sínu, fermingunni og skírninni.


Skemmtilegir þættir um hugmyndaríku stúlkuna Kötu sem ferðast með fjólubláu kanínunni Mumma til ævintýraheimsins Mummaheims.

Ólivía er sniðug svínastelpa sem tæklar hversdaginn með frumlegum leiðum. Hún dettur gjarnan í dagdrauma og hefur að auki sett sér ýmsar sniðugar lífsreglur.

Háværa ljónið Urri og félagar ferðast í gegnum frumskóginn. Á leiðinni lenda þau í skemmtilegum ævintýrum og þurfa að takast á við áskoranir og leita lausna í sameiningu.

Gamansamir þættir um strútapabbann Edda og áttburana hans. Eddi strútapabbi er fullkomnunarsinni og reynir að gera allt sem í hans valdi stendur til að vernda áttburana sína. Hann á fullt í fangi með það, enda eru ævintýrin hjá stórri fjölskyldu mörg og ímyndunaraflið mikið.
Eftir að Eddi strútapabbi hræðir kráku, setur hún á sig hræðilegan graskershaus til þess að hræða hann til baka. Eddi strútapabbi heldur að þetta sé skrímsli og verður dauðhræddur! Hann verður að bjarga börnunum!

Fimmta þáttaröð um hrútinn Hrein. Hreinn leiðir hinar kindurnar í alls kyns vandræði og raskar ró friðsæls dals með uppátækjasemi sinni.

Íslensk tónlistarmyndbönd.
Lag: City Lights
Flytjandi: Cell 7
Lagahöfundar: Ragna Kjartansdóttir og Magnús Jónasson
Textahöfundur: Ragna Kjartansdóttir

Vikinglottó-útdráttur vikunnar.

Íþróttafréttir.

Nýir danskir heimildarþættir. Lögfræðingur með tengsl við undirheimana aðstoðar rannsóknarblaðamenn við að afhjúpa glæpastarfsemi á Norðurlöndunum.
Amira vinnur fyrir meðlim glæpagengisins Bandidos og fær innsýn inn í umfangsmikið svindl.

Breskir heimildarþættir sem skoða kvikmyndasöguna í gegnum linsu kvikmyndagerðakvenna. Þættirnir skiptast í 40 kafla sem taka fyrir ólíkar hliðar kvikmyndagerðar og eingöngu er stuðst við dæmi úr kvikmyndum sem konur leikstýra. Sögukonur eru Tilda Swinton, Jane Fonda, Debra Winger, Adjoa Andoh, Kerry Fox, Thandie Newton og Sharmila Tagore. Leikstjóri: Mark Cousins. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Beinar útsendingar frá bikarkeppni karla í fótbolta.
Bein útsending frá leik Þórs og Stjörnunnar í 8 liða úrslitum bikarkeppni karla í fótbolta.

Bein útsending frá EM í frjálsíþróttum í Róm.