Tekið er á móti góðum gestum í sjónvarpssal, slegið á létta strengi, stiginn dans og sungið. Hljómsveit: Ásgeir Óskarsson, Finnbogi Kjartansson, Magnús Kjartansson og Vilhjálmur Guðjónsson. Dagskrárgerð: Egill Eðvarðsson. Umsjónarmaður: Hermann Gunnarsson.
Hemmi Gunn stýrir skemmtiþætti þar sem margir af vinsælustu tónlistarmönnum landsins sitja saman við veisluborð og taka þátt í spjalli og tónlist. Vinir vors og blóma, SS Sól, Sálin hans Jóns míns, Sixties, GCD og Stjórnin flytja lög, á meðan gestir á borð við Bubba Morthens, Rúnar Júlíusson, Helga Björnsson, Höllu Margréti, Grétar Örvarsson og Siggu Beinteins spjalla við Hemma. Einnig eru leikatriði, HM-leikur með landsliðsmönnum í handbolta og Eurovision-innslag með laginu Nína. Í lok þáttar flytur Stjórnin lagið Ég elska alla.
Þetta er lokaþáttur Á tali með Hemma Gunn.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 19. apríl 1995
Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 26 mín.