
Vandaðir þættir þar sem hugur og skynjun barna eru örvuð á sjónrænan hátt án orða.


Hinrik hittir einhvern nýjan á hverjum degi og lendir í ótrúlegustu uppákomum.

Emilía uppgötvar að litli rauði hvolpurinn hennar að nafni Kátur hefur vaxið um þrjá metra á einni nóttu.

Litli Malabar er mjög forvitinn og lánsamur, hann fær að ferðast um alheiminn eins og hann væri stór leikvöllur og talar við plánetur og stjörnur til að öðlast skilning á því hvaðan við komum og hvernig heimurinn myndaðist. Í hverjum þætti fær hann að kanna eitt náttúrufyrirbæri eða vísindahugmynd.

Lærið um tölustafina með Tölukubbunum!

Teiknimyndaþættir fyrir börn byggðir á samnefndri breskri barnabók frá árinu 1994 eftir Sam McBratney, með myndskreytingum eftir Anitu Jeram. Bókin hefur verið gefin út á yfir 53 tungumálum og selst í yfir 28 milljónum eintaka.

Huggulegir þættir þar sem snjómaðurinn les úr sínum uppáhaldsbókum fyrir litlu mýsnar í bókabúðinni.

Vinirnir Begga og Fress leika sér að tölum og leysa saman ýmsar þrautir og gátur.

Danni tígur er þáttaröð sem kennir börnum að túlka tilfinningar sínar. Hvenær upplifa þau sorg, reiði og hvenær eru þau þakklát. Danni notar tónlist og syngur um það sem hann upplifir sem leyfir börnum að tileinka sér það frekar. Þátturinn er ætlaður leikskólabörnum og kennir tilfinningagreind og sjálfsvirðingu sem og virðingu fyrir öðrum.

Rán er ung og hress stelpa sem styttir sér stundir með ímynduðu vinkonu sinni. En hún Rún virðist raunverulegri en flestir.

Tillý býr í gulu húsi með fimm góðum vinum. Krókódíl, svíni, hænu, fíl og kanínu. Þau sýna og sanna að vináttan er það besta í heimi.

Fyrsta þáttaröðin af hinni vinsælu Blæju. Blæja er sex ára hundur sem er stútfull af óstöðvandi gleði. Allir venjulegir hlutir geta orðið ævintýri hjá Blæju og fjölskyldu hennar.

Kærulausi unglingurinn Don Diego þjálfar sig í skylmingum þar sem hann ætlar sér að takast á við það mikla óréttlætti sem samlandar hans eru beittir af ógnarstjórninnisem þar ræður ríkjum. Hann verður framúrskarandi skylmingamaður og tekursér nafnið sem mjög margir þekkja, Zorro.

Elísa er á leið í jólaboð með pabba sínum þegar þau festa bílinn sinn í drullu. Það lítur út fyrir að þau þurfi að eyða jólunum saman í bílnum, en inni í skóginum stendur kofi einn. Ætli þar sé einhver sem getur hjálpað þeim? Leikarar: Örn Árnason, Jóhann Axel Ingólfsson og Margrét Lára Rúnarsdóttir. Leikstjórn: Agnes Wild. Framleiðandi: Hekla Egilsdóttir.

Árið 2022 var stórfurðulegt, lærdómsríkt, fyndið og dramatískt. Fréttamenn KrakkaRÚV fara hér yfir það sem stóð upp úr á þessu eftirminnilega ári.
Árið 2022 var bæði stórfurðulegt, lærdómsríkt og fyndið. Fréttamenn KrakkaRÚV fara yfir það sem stóð upp úr.
Umsjón:
Gunnar Hrafn Kristjánsson
Kolbrún María Másdóttir
Fram komu:
Jóhannes Ólafsson
Birta Steinunn Ægisdóttir
Anja Sæberg
Bjarni Kristbjörnsson
Handrit og framleiðsla:
Karitas M. Bjarkadóttir

Íslensk teiknimynd um fuglsungann Lóa sem er enn ófleygur þegar hausta tekur og hinir farfuglarnir fljúga suður á bóginn. Hann verður því að lifa harðan veturinn af og kljást við grimma óvini upp á eigin spýtur. Leikstjórn: Árni Ólafur Ásgeirsson.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Veðurfréttir.

Heimildarmynd um umdeildustu heimsmeistarakeppni FIFA í fótbolta hingað til. Saga mótsins, framkvæmd þess og umgjörð er skoðuð með augum leikmannanna sem tóku þátt, stuðningsmanna sem komu á leikina og síðast en ekki síst, með íbúum Qatar. Hvernig tókst til þegar allt kemur til alls?

Lottó-útdráttur vikunnar.
Gísli Marteinn tekur á móti góðum gestum á föstudagskvöldum í vetur og fer með þeim yfir helstu atburði vikunnar í stjórnmálum, menningu og mannlífi. Persónur og leikendur koma í spjall og brakandi fersk tónlistaratriði koma landsmönnum í helgarstemninguna. Stjórn útsendingar: Ragnar Eyþórsson.
Sérstök áramótaútgáfa Vikunnar með Gísla Marteini þar sem góðir gestir gera upp árið sem er að líða.

Gamanmynd fyrir alla fjölskylduna frá 2020 um drenginn Peter sem neyðist til að láta svefnherbergið sitt eftir þegar afi hans flytur inn á heimilið. Peter er þó allt annað en sáttur með þessa tilhögun og ákveður að segja afa sínum stríð á hendur í von um að vinna herbergið aftur. Leikstjóri: Tim Hill. Aðalhlutverk: Robert De Niro, Uma Thurman og Oakes Fegley.

Talsett teiknimynd frá 2019. Landkönnuðurinn Sir Lionel Frost leggur ásamt föruneyti í leiðangur til skóglendis við Kyrrahafsströnd Bandaríkjanna. Þar vonast hann til að finna fyrstur manna goðsagnakennda veru sem er týndi hlekkurinn í þróunarsögu mannsins.

Skemmtiþáttur fyrir alla fjölskylduna þar sem farið verður yfir helstu skandala og atvik ársins. Þau Árni Beinteinn Árnason og Birna Pétursdóttir stýra Krakkaskaupinu í ár ásamt snillingum landsins. Þar fáum við að sjá vel valin innsend atriði frá krökkum í bland við skemmtileg atriði frá Árna og Birnu. Dagskrárgerð: Árni Beinteinn Árnason, Birna Pétursdóttir og Sturla Holm Skúlason.

Árið 2022 var stórfurðulegt, lærdómsríkt, fyndið og dramatískt. Fréttamenn KrakkaRÚV fara hér yfir það sem stóð upp úr á þessu eftirminnilega ári.
Árið 2022 var bæði stórfurðulegt, lærdómsríkt og fyndið. Fréttamenn KrakkaRÚV fara yfir það sem stóð upp úr.
Umsjón:
Gunnar Hrafn Kristjánsson
Kolbrún María Másdóttir
Fram komu:
Jóhannes Ólafsson
Birta Steinunn Ægisdóttir
Anja Sæberg
Bjarni Kristbjörnsson
Handrit og framleiðsla:
Karitas M. Bjarkadóttir

Ávarp forsætisráðherra, Katrínar Jakobsdóttur. Ávarpið er táknmálstúlkað.

Íþróttafréttamenn RÚV fara yfir það sem bar hæst á íþróttaárinu.
Íþróttafréttamenn RÚV fara yfir það sem bar hæst á íþróttaárinu 2023.
Ómissandi endapunktur sjónvarpsársins. Einvalalið leikara og skemmtikrafta rýnir í fréttir, viðburði og uppákomur ársins. Höfundar í ár eru Saga Garðarsdóttir, Friðgeir Einarsson, Vigdís Hafliðadóttir og Jóhann Kristófer Stefánsson. Leikstjóri: Dóra Jóhannsdóttir. Framleiðandi: Sigurjón Kjartansson. Áramótaskaupið er sýnt á sama tíma á RÚV2 með enskum texta.

Upptaka frá hátíðartónleikum Rásar 2 við Arnarhól í tilefni af Menningarnótt 2022. Stjórn útsendingar: Vilhjálmur Siggeirsson.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Iceland's iconic end-of-year comedy show. Some of the country's most talented comedy writers and actors delve into the year's biggest events.