Brot úr menningarumfjöllun liðinnar viku. Fjallað á snarpan og líflegan hátt um það sem efst er á baugi hverju sinni í menningar- og listalífinu, jafnt með innslögum, fréttaskýringum, gagnrýni, pistlum og umræðu. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson og Halla Oddný Magnúsdóttir.
Listasýningin Sequences X hófst um helgina og ber í ár viðeigandi titilinn, Kominn tími til! Viðburðirnir eru af ólíkum toga en hátíðin teygir anga sína um allt land í ár. Guðrún Sóley ræðir við sýningarstjórana Þráinn Hjálmarsson, Þórönnu Dögg Björnsdóttur og Katerinu Spathi, heiðursmanneskju listahátíðarinnar, Elísabetu Jökulsdóttur og listakonurnar Dýrfinnu Benítu, Kristínu Morthens.
Tónlistarþættir þar sem Jón Ólafsson píanóleikari spjallar við dægurlagahöfunda og tónlistarmenn og tekur með þeim lagið. Dagskrárgerð: Jón Egill Bergþórsson.
Gestur í þessum þætti er Magnús Þór Sigmundsson.
Norskir þættir um líkamstjáningu þar sem teknar eru fyrir ýmsar aðstæður sem fólk verður gjarnan óöruggt í. Fjallað er um hvernig hægt er að vinna með líkamstjáningu til að virka öruggari til dæmis á stefnumótum og í atvinnuviðtölum.
Þættir frá 2000 þar sem lagasmiðir flytja lög sín að viðstöddum áheyrendum í myndveri RÚV. Stjórn upptöku: Jón Egill Bergþórsson.
Jón Hallur Stefánsson flytur nokkur laga sinna að viðstöddum áheyrendum í myndveri RÚV. Stjórn upptöku: Jón Egill Bergþórsson.
Heilinn er undarlegt fyrirbæri. Hægt er að hafa áhrif á hann og hegðun fólks með mismunandi hætti. Sjónhverfingarmanninum og dáleiðandanum Jan Hellesøe er fylgt eftir í þessum fróðlegu dönsku þáttum.
Kveikur er fréttaskýringaþáttur sem sendur er út hálfsmánaðarlega. Þátturinn er í anda klassískra fréttaskýringaþátta með áherslu á rannsóknarblaðamennsku.
Ritstjóri er Þóra Arnórsdóttir en ritstjórnina skipa Ingólfur Bjarni Sigfússon, Brynja Þorgeirsdóttir og Tryggvi Aðalbjörnsson. Dagskrárgerð: Arnar Þórisson, Ingvar Haukur Guðmundsson og Árni Þór Theodórsson.
Íslenskar unglingsstúlkur eru ítrekað beðnar um að senda eða selja af sér kynferðislegar myndir á netinu. Í seinni hluta þáttarins fjöllum við um ferðir rússneskra herskipa nærri Íslandsströndum og aukna hervæðingu við landið.
Færeysk heimildarmynd um nútímatækni. Tölvur, farsímar og spjaldtölvur hafa umbreytt lífi okkar og tilveru og haft áhrif á hvernig við verjum tíma okkar saman. Uppeldi, skólastarf og atvinnulíf tekur sífelldum breytingum og margir vita ekki hvort þeir eiga að lofsama þessa nýju þróun eða hræðast hana.
Heimildarþáttaröð í fjórum hlutum um samísku systurnar Maxida och Mimie Märak en báðar eru þær virkar í sænsku rappsenunni og berjast jafnframt ötulega fyrir réttindum Sama.
Ástsælu Múmínálfarnir sem allir þekkja úr smiðju Tove Janson mæta aftur og lenda í fleiri skemmtilegum ævintýrum.
Vinalegi hundurinn Sámur hvetur börn til þess að kanna umhverfi sitt og takast á við verkefni í sameiningu.
Hressir teiknimyndaþættir um ævintýri sjóræningjanna í Daufhöfn og Matthildi vinkonu þeirra. Byggðir á samnefndum bókum í þýðingu Braga Valdimars Skúlasonar.
Stuttir þættir þar sem við kynnumst merkiskonum mannkynssögunnar. Sumar eru frægar, aðrar eru óþekktar en allar eru þær töffarar og eldhugar.
Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
1. Aflétta öllum sóttvarnareglum í skrefum 2. Heimsmeistarakeppnin í League of Legends 3. Keppa í ólívutínslu
Umsjón: Kolbrún María Másdóttir
Íslensk tónlistarmyndbönd.
Lag: Hvað ef
Flytjandi: GDRN (Guðrún Ýr Eyfjörð Jóhannesdóttir)
Höfundur: Guðrún Ýr Eyfjörð Jóhannesdóttir
Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
Íþróttafréttir.
Veðurfréttir.
Brot úr menningarumfjöllun liðinnar viku. Fjallað á snarpan og líflegan hátt um það sem efst er á baugi hverju sinni í menningar- og listalífinu, jafnt með innslögum, fréttaskýringum, gagnrýni, pistlum og umræðu. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson og Halla Oddný Magnúsdóttir.
Bríeti þarf ekki að kynna fyrir nokkurri manneskju hér á landi. Fern íslensk tónlistarverðlaun og hellingur annarra, plata, kvikmyndaleikur og nú síðast uppfærsla Þjóðleikhússins á Rómeó og Júlíu. Hún blæs til útgáfutónleika nýjustu plötu sinnar í Hörpu 22.október þar sem öllu verður tjaldað til. Guðrún Sóley spjallar við listakonuna.
Hvernig hugsa helstu listamenn og hugsuðir Svíþjóðar og hvaðan sækja þau sér innblástur og hvatningu? Í þessum þáttum er rætt við sænska meistara um sköpunarferlið, ákvarðanatöku og það hvernig mistök geta leitt til nýrra sigra.
Bandarísk þáttaröð um slökkviliðsmenn og bráðaliða í Chicago en hetjurnar á slökkvistöð 51 víla ekkert fyrir sér. Meðal leikenda eru Jesse Spencer, Taylor Kinney, Kara Killmer og David Eignberg. Atriði í þáttunum eru ekki við hæfi ungra barna.
Nýjustu fréttir og íþróttir kvöldsins. Alla mánudaga til fimmtudaga.
Veðurfréttir
Heimildarþættir frá BBC þar sem listsagnfræðingarnir Dr. Janina Ramirez og Alastair Sooke ferðast til þriggja borga og fjalla um áhrif lista á sögu og menningu borganna. Borgirnar sem þau heimsækja eru Lissabon, höfuðborg Portúgal, Beirút, höfuðborg Líbanons og Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan.
Þögnin rofnaði á heimsvísu með #metoo byltingunni, en #dammenbrister byltingin í Svíþjóð og Finnlandi færði athyglina enn nær. Konur í öllum stéttum, á öllum aldri verða fyrir kynferðisofbeldi. En hverju hafa byltingarnar skilað okkur?
Þögnin rofnaði á heimsvísu með #metoo byltingunni, en #dammenbrister byltingin í Svíþjóð og Finnlandi færði athyglina enn nær. Konur í öllum stéttum, á öllum aldri verða fyrir kynferðisofbeldi. En hverju hafa byltingarnar skilað okkur?
Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
1. Aflétta öllum sóttvarnareglum í skrefum 2. Heimsmeistarakeppnin í League of Legends 3. Keppa í ólívutínslu
Umsjón: Kolbrún María Másdóttir
Íslensk tónlistarmyndbönd.
Lag: Hvað ef
Flytjandi: GDRN (Guðrún Ýr Eyfjörð Jóhannesdóttir)
Höfundur: Guðrún Ýr Eyfjörð Jóhannesdóttir
Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.