
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt.

Brot úr menningarumfjöllun liðinnar viku. Fjallað á snarpan og líflegan hátt um það sem efst er á baugi hverju sinni í menningar- og listalífinu, jafnt með innslögum, fréttaskýringum, gagnrýni, pistlum og umræðu. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson og Halla Oddný Magnúsdóttir.
Hið flókna en stundum fallega samband manna og dýra er til umfjöllunar á sýningu listamannanna Bryndísar Snæbjörnsdóttur og Marks Wilson sem ber titilinn Óræð lönd: samtöl í sameiginlegum víddum. Guðrún Sóley spjallar við listamennina um sýninguna sem sýnd er í Gerðasafni og stendur til 9.janúar 2022.
Skemmtiþáttur þar sem Hemmi Gunn tekur á móti góðum gestum í sjónvarpssal. Slegið er á létta strengi, stiginn dans og sungið. Hljómsveit Magnúsar Kjartanssonar leikur af fingrum fram. Stjórn útsendingar: Björn Emilsson.
Í þættinum teflir stórmeistarinn Jóhann Hjartarson blindskák við Hall Hallsson fréttamann, með Jóni L. Árnasyni sem skákskýranda, og jafnframt er rætt við Jóhann. Stefán Hilmarsson flytur eitt lag og Ragnhildur Gísladóttir og Jakob Frímann Magnússon syngja saman. Í ræðukeppni ræða Einar Páll Tamini, nemi í Fjölbrautarskólanum í Garðabæ, og Andri Hauksson, nemi í Menntaskólanum í Reykjavík, um þáttinn Á tali. Feðgarnir Guðmundur Steingrímsson og Steingrímur Guðmundsson leika slagverksdúó og Jóhannes Kristjánsson eftirherma hermir eftir Halli Hallssyni og tekur viðtal við Jón L. Árnason. Bandaríski dávaldurinn John Palmer heimsækir þáttinn og dáleiðir fjögur ungmenni, Guðrún Oddsdóttir frá Sauðárkróki syngur lag og að lokum sýnir Royal Ballet of Senegal dansatriði.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 17. febrúar 1988.

Dægurþættir frá árunum 1989-1994.

Spurningaþættir í stjórn Felix Bergssonar og dr. Gunna. Í þáttunum takast íslenskar hljómsveitir á í æsispennandi spurningaleik, þar sem gáfur og viska, ásamt snerpu, atgervi og heppni ráða niðurstöðunni - já og tónlistarhæfileikar. Sextán hljómsveitir taka þátt í keppninni að þessu sinni. Stjórn upptöku: Helgi Jóhannesson.

Þáttaröð í sex hlutum þar sem Steiney Skúladóttir og Sigurlaug Sara Gunnarsdóttir kryfja til mergjar geðheilsu og greiningu á andlegri vanheilsu ungs fólks, en kvíði og aðrir andlegir kvillar eru sívaxandi vandamál. Í þáttunum er fjallað um nokkra tiltekna kvilla, meðferð og mögulegar úrlausnir, algengar mýtur og rætt við fólk sem greinst hefur með geðröskun, aðstandendur og fagfólk. Þættirnir eru sjálfstætt framhald Edduverðlaunaþáttaraðarinnar Framapots. Leikstjóri: Arnór Pálmi Arnarsson. Framleitt af Sagafilm.
Er hægt að lækna þunglyndi með því að fara út að hlaupa og borða hollan mat? Talið er að á hverjum tíma þjáist um fjögur til sex prósent þjóðarinnar af sjúklegu þunglyndi, eða um 12 til 18 þúsund manns. Við hittum Stefán Ingvar sem samdi uppistand um tilraunir sínar til að svipta sig lífi, ræðum við sálfræðing og kíkjum í boltaland með nokkrum þunglyndissjúklingum.

Skemmtiþættir frá árunum 1993-1994 í umsjón Ingveldar G. Ólafsdóttur. Stjórnandi upptöku: Björn Emilsson.

Norskir sérfræðingar standa neytendavaktina í fræðandi þáttaröð um heilsu, lífsstíl og neytendamál.
Þáttur um lífið í landinu. Landinn ferðast um og hittir fólk sem fæst við margt áhugavert og skemmtilegt. Ritstjóri er Gísli Einarsson. Aðrir umsjónarmenn: Edda Sif Pálsdóttir, Þórgunnur Oddsdóttir Halla Ólafsdóttir og Arnar Björnsson. Dagskrárgerð: Karl Sigtryggsson, Magnús Atli Magnússon og Jóhannes Jónsson.
Í þættinum förum við í siglingu á Skjálfanda, við veltum fyrir okkur störfum framtíðarinnar, fylgjumst með gróðurframvindu, björgum fýlum við Hringveginn og málum Eldgos, hundrað sinnum eða svo.
Viðmælendur:
Amy Riches
Andreas Guðmundsson
Arianne Gähwiller
Bragi Þór Svavarsson
Bryndís Marteinsdóttir
Belén García Ovide
Daníel Fannar Einarsson
Heimir Harðarson
Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir
Jón Halldórsson
Júlía Guðmundsdóttir
Lilja S. Ólafsdóttir
Manuel Goditsch
Ragnheiður Blöndal
Rán Finnsdóttir
Signý Óskarsdóttir
Vigdís Freyja Helmutsdóttir
Ægir Már Þórisson


Holly er 13 ára stelpa sem syngur og semur sín eigin lög. Hún er umkringd vinum og fjölskyldu en dreymir um að bjarga heiminum. Þó hún þurfi að byrja í garðinum sínum.

Önnur sería þar sem fylgst er með uppátækjum Lúkasar og öllu því sem gerist í hugarheimi hans.

Fjórir krakkar í rokkhljómsveit æfa þekkt íslenskt rokklag og semja eigið lag. Í leiðinni fræðumst við um hljóðfærin í hljómsveitinni og rokktónlistarsöguna.
Krakkarnir í hljómsveitinni æfa lagið Barfly með hljómsveitinni Jeff Who? Auk þess kynnumst við nokkrum af frægustu rokkhljómsveitum tónlistarsögunnar. Hljómsveitarmeðlimir: Elísabet Hauksdóttir, Hjörleifur Daði Oddsson, Onni Máni Sigurðsson og Þorgerður K. Hermundardóttir. Tónlistarstjóri: Sigurður Ingi Einarsson.

Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Umsjón: Kolbrún María Másdóttir og Gunnar Hrafn Kristjánsson.
Krakkafréttir dagsins: 1. 17 ára inn á fyrir landsliðið 2. Hvað gera skoðanakannanir? 3. Krakkakosningar í Þýskalandi 4. Taka upp bíómynd í geimnum
Umsjón: Gunnar Hrafn Kristjánsson

Íslensk tónlistarmyndbönd.
Lag: Bláu augun þín
Flytjandi: Gunnar Þórðarson
Lagahöfundur: Gunnar Þórðarson
Textahöfundur: Ólafur Gaukur Þórhallsson

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt.

Brot úr menningarumfjöllun liðinnar viku. Fjallað á snarpan og líflegan hátt um það sem efst er á baugi hverju sinni í menningar- og listalífinu, jafnt með innslögum, fréttaskýringum, gagnrýni, pistlum og umræðu. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson og Halla Oddný Magnúsdóttir.
Kvikmyndin Dýrið með Noomi Rapace og Hilmi Snæ í aðalhlutverkum var nýverið frumsýnd á kvikmyndahátíð í Cannes þar sem hún hlaut verðlaun í flokknum frumlegasta myndin. Kvikmyndinni lýsir Valdimar Jóhannsson leikstjóri sem klassískri sögu með einu súrrealísku elementi. Guðrún Sóley tekur aðstandendur myndarinnar tali.

Stuttir þættir þar sem við komumst að kjarna kosningamálanna, heyrum í fólkinu í landinu og spyrjum frambjóðendur spurninga þar sem einu gildu svörin eru já eða nei. Umsjón: Jakob Birgisson.

Íslensk stuttmynd um Lísu, 15 ára stúlku sem á erfitt með að sætta sig við hversu langt á eftir jafnöldrum sínum hún er í kynþroska. Þegar hún kemst óvænt að því að hún var send í afdrifaríka aðgerð sem ungabarn stendur hún frammi fyrir að þurfa að krefja móður sína og lækni um svör. Leikstjórn: Anna Karín Lárusdóttir. Aðalhlutverk: Hafrún Arna Jóhannsdóttir, Birta Mubaraka og Lilja Katrín Gunnarsdóttir.

Nýjustu fréttir og íþróttir kvöldsins. Alla mánudaga til fimmtudaga.

Veðurfréttir.

Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Umsjón: Kolbrún María Másdóttir og Gunnar Hrafn Kristjánsson.
Krakkafréttir dagsins: 1. 17 ára inn á fyrir landsliðið 2. Hvað gera skoðanakannanir? 3. Krakkakosningar í Þýskalandi 4. Taka upp bíómynd í geimnum
Umsjón: Gunnar Hrafn Kristjánsson

Íslensk tónlistarmyndbönd.
Lag: Bláu augun þín
Flytjandi: Gunnar Þórðarson
Lagahöfundur: Gunnar Þórðarson
Textahöfundur: Ólafur Gaukur Þórhallsson

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.