Lærið um tölustafina með Tölukubbunum!
Fyrir Poppý kisuló er ekkert verkefni of erfitt og ekkert vandamál óleysanlegt. Ímyndaraflið keyrir ævintýri hennar áfram og það er nóg af þeim hjá Poppý og vinum hennar.
Fyrir Poppý kisukló er ekkert verkefni of erfitt og ekkert vandamál óleysanlegt. Ímyndaraflið keyrir ævintýri hennar áfram og það er nóg af þeim hjá Poppý og vinum hennar.
Þáttaröð sem byggir á bókaröð eftir Alex T. Smith og segir frá hundinum Káti og öllum hans litríku vinum.
Bessí er orkumikil ung stúlka sem safnar skátamerkjum með það að markmiði að verða stórkostlega ofurhetjan Hið mikla Bé!
Stuðboltarnir í þotuakademíunni, Súla, Kiddi, Lars og Fúsi, fara á heimshornaflakk til að bjarga þekktum kennileitum frá Galla-Grími.
Róbert og hressu hvolparnir í Hvolpasveitinni eru mætt í sinni fimmtu seríu og takast á við ný verkefni og nýja þorpara eins og þeim einum er lagið.
Grettir er latasti köttur í heimi og elskar lasagna. Klassískir þættir þar sem fylgst er með uppátækjum Grettis og félaga.
Krakkar stýra fjölbreyttum smáseríum í Stundinni okkar í vetur - sem fjalla um ALLT milli himins og jarðar. Leikin spennusería, fjörug þrauta- og spurningakeppni, girnileg matargerð, glymjandi rokktónlist og friðsamlegt jóga eru meðal þess sem verður á dagskrá í þessum elsta sjónvarpsþætti landsins. e. Aðalþáttastjórnendur eru Helena Lapas, Imani Ósk Biallo, Kári Hlíðberg og Tómas Aris Dimitropoulos. Fjöldi annarra krakka kemur fram í þáttunum. Dagskrárgerð: Eva Rún Þorgeirsdóttir og Ragnar Eyþórsson.
Í þáttunum Húllumhæ er barnamenning í forgrunni. Við förum í leikhús, hlustum á tónlist, kíkjum í bækur, lærum töfrabrögð og gerum tilraunir. Við förum yfir hvað er framundan um helgina og hoppum svo kát saman inn í helgarfrí. Þáttastjórnandi: Iðunn Ösp Hlynsdóttir.
Stjörnustríð er skemmtiþáttur í anda Gettu betur þar sem þekkt andlit úr sögu þáttanna: Spyrlar, spurningahöfundar, stigaverðir og keppendur snúa aftur auk keppnisliða úr óvæntum áttum. Þau hafa engu gleymt, nema svörunum! Umsjónarmaður og dómari: Örn Úlfar Sævarsson. Dagskrárgerð: Ragnar Eyþórsson. Framleiðsla: RÚV.
Gísli Marteinn tekur á móti góðum gestum á föstudagskvöldum í vetur og fer með þeim yfir helstu atburði vikunnar í stjórnmálum, menningu og mannlífi. Persónur og leikendur koma í spjall og brakandi fersk tónlistaratriði koma landsmönnum í helgarstemninguna. Stjórn útsendingar: Ragnheiður Thorsteinsson.
Heimildarmynd um textíllistakonuna Tinnu Þórudóttur Þorvaldar og leit hennar að rótum þeirra hannyrða sem við þekkjum í dag. Með aðstoð sérfræðinga uppgötvar hún að nútímalist er sköpuð með sömu tækni og aldagamlar hannyrðir og sýnir okkur þær gersemar sem við eigum í okkar sögulega handverki. Leikstjóri: Nicos Argillet.
Heimildarþættir þar sem kvikmyndagerðarmaðurinn James Cameron kannar sögu vísindaskáldskapar í kvikmyndum. Hann ræðir við helstu frumkvöðla og stjörnur á sviði vísindaskáldskapar.