
Leikararnir Karl Ágúst Úlfsson, Randver Þorláksson, Pálmi Gestsson, Sigurður Sigurjónsson og Örn Árnason sýna áhorfendum samtíðaviðburði frá nýju sjónarhorni. Stjón upptöku: Björn Emilsson.

Ida er ung norsk kona sem ákveður að taka tilveruna föstum tökum og einsetur sér að bæta sig á flestum sviðum daglegs lífs.
Ida er ung norsk kona sem ákveður að taka tilveruna föstum tökum og einsetur sér að bæta sig á flestum sviðum daglegs lífs. Í þessum þætti fær Ida góð ráð frá stílista og heimsókn til lýtalæknis á eftir að hafa meiri áhrif en hún bjóst við.

Gettu betur hóf göngu sína 1986 en Hljóðneminn, sem keppt er um, kom til sögunnar árið eftir. Frá 1991 hefur þátturinn verið með því sniði sem hann er nú.
Spyrill er Edda Hermannsdóttir, spurningahöfundur og dómari er Örn Úlfar Sævarsson, stigavörður er Marteinn Sindri Jónsson, Helgi Jóhannesson stjórnar útsendingu og umsjónarmaður er Andrés Indriðason.

Heimildarþáttaröð í fjórum hlutum um samísku systurnar Maxida och Mimie Märak en báðar eru þær virkar í sænsku rappsenunni og berjast jafnframt ötulega fyrir réttindum Sama.

Tónlistarþættir þar sem Jón Ólafsson píanóleikari spjallar við dægurlagahöfunda og tónlistarmenn og tekur með þeim lagið. Dagskrárgerð: Jón Egill Bergþórsson.
Gestur í þessum þætti er Elísa Geirsdóttir.
Þáttaröð þar sem heimur íslenskrar sögu og sagna er kannaður með því að skoða muni sem tengjast sérstökum atburðum í sögu þjóðarinnar. Umsjón: Viktoría Hermannsdóttir og Sigurður Helgi Pálmason. Framleiðsla: Republik.
Í júlí 1939, rétt áður en seinni heimsstyrjöldin hófst, kom Eva Braun, eiginkona Adolfs Hitlers, til Íslands með þýska skemmtiferðaskipinu Milwaukee. Í þættinum er skoðaður farþegalisti sem sagður er vera frá þessari ferð, en þar er að finna nöfn allra sem voru um borð. Við fjöllum um Íslandsferð Evu og einstakar kvikmyndir sem hún tók hér á landi.

Dönsk matreiðsluþáttaröð. Mette Blomsterberg reiðir fram kræsingar sem henta vel á sumrin.


Stuttir heimildaþættir um ólíkar tegundir myndavéla í gegnum tíðina, fólkið sem notaði þær og myndirnar sem voru teknar með þeim.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Íþróttafréttir.

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt.
Einar Þorsteinsson ræðir við Ásgeir Jónsson seðlabankastjóra um efnahagsmál.

Brot úr menningarumfjöllun liðinnar viku. Fjallað á snarpan og líflegan hátt um það sem efst er á baugi hverju sinni í menningar- og listalífinu, jafnt með innslögum, fréttaskýringum, gagnrýni, pistlum og umræðu. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson og Halla Oddný Magnúsdóttir.
Paul Bennett, stjórnandi og yfirhönnuður hjá IDEO var nýlega ráðinn deildarforseti hönnunardeildar LHÍ.

Nýjustu fréttir og íþróttir kvöldsins. Alla mánudaga til fimmtudaga.