22:30
Súkkulaði
Chocolat
Súkkulaði

Rómantísk kvikmynd með Juliette Binoche, Johnny Depp og Judi Dench í aðalhlutverkum. Myndin segir frá einstæðri móður sem flytur ásamt dóttur sinni í lítinn bæ í Frakklandi og opnar súkkulaðiverslun beint á móti kirkju bæjarins. Í fyrstu er henni illa tekið af bæjarbúum sem margir eru strangtrúaðir, en smám saman opnar hún augu þeirra fyrir lífsins lystisemdum. Myndin var tilnefnd til fimm Óskarsverðlauna. Leikstjóri: Lasse Hallström. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Var aðgengilegt til 22. júní 2020.
Lengd: 1 klst. 56 mín.
Engin dagskrá.
,