Matargat

Leyft öllum aldurshópum

Mexíkó veisla

Ylfa og Máni útbúa Mexíkó veislu. Einfalt, hollt og rosa gott.

500 gr nautahakk eða 500 gr sojahakk. 2 tsk krydd að eigin vali. Settu hakkið á sitt hvora pönnuna, kryddaðu og steiktu þar til það er eldað í gegn (orðið dökk brúnt á lit). Vefjur, nachos snakk. rifinn ostur

salsa sósa. sýrður rjómi, gúrka, paprika, tómatar. Skerðu grænmetið í litla bita og settu í skálar eða á disk. Snakkið, osturinn, salsa sósan og sýrði rjómin er líka hægt að setja í skálar. Guacamole, 2 stór Avocado, 2 tómatar - hreinsa innan úr þeim, Steinselja / kóríander, 1x lítill Hvítur laukur / rauðlaukur, 2 hvítlauksrif (má sleppa), Lime safi, salt og pipar eftir smekk.

Stappaðu avocado

Skerðu laukinn og tómatana

Pressaðu hvítlaukinn út í með hvítlaukspressu

Saxaðu steinselju eða kóríander smátt

Settu smá lime, salt og pipar

Og smá af góðri ólífuolíu

Hrærðu allt saman.

Búðu svo til mexíkóvefju eins og þér þykir best!

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd
  • Dagskrárliðurinn er textaður

Matargat

Þau Ylfa og Máni standa vaktina í eldhúsinu og kenna okkur hvernig á að elda og baka ýmislegt góðgæti. Dagskrárgerð: Eva Rún Þorgeirsdóttir. Umsjón: Ylfa Blöndal og Hilmar Máni Magnússon.

Þættir

,