Hlutverk safnadeildar Ríkisútvarpsins er að varðveita dagskrárefni RÚV og gera það aðgengilegt til frekari dagskrárgerðar og rannsókna. Þannig varðveitum við jafnframt þjóðarsöguna eins og hún endurspeglast í dagskránni. Safnadeildin heldur einnig utanum tónlistarefni til flutnings í útvarpi og sjónvarpi.
Safn RÚV er öllum opið. Hægt er að leita í gagnagrunnum og skoða og hlusta á dagskrárefni á staðnum. Panta þarf tíma til þess. Útlán eru eingöngu til starfsmanna RÚV og er óheimilt að fara með efni safnsins úr húsi.
Safnið er opið alla virka daga:
kl. 09:00 – 17:00 frá september til maí
kl. 09:00 – 16:00 frá júní til ágúst
Síminn á safni RÚV er 515 3151. Netfang safnsins er safn@ruv.is