ruv.is / Um RÚV / Gervihnattadreifing Ríkisútvarpsins

Samið um dreifingu dagskrár RÚV um gervihnött

1. febrúar 2007 var skrifað undir samning við norska fjarskiptafyrirtækið Telenor um sendingar Ríkisútvarpsins - Sjónvarpsins, Rásar 1 og Rásar 2, til dreifbýlissvæða á landinu og næstu miða um Thor II gervihnöttinn.

Verkefnið var unnið á vegum stjórnar fjarskiptasjóðs, sem greiðir kostnaðinn, og skrifuðu Friðrik Már Baldursson, formaður fjarskiptasjóðs, og Páll Magnússon útvarpsstjóri undir samninginn ásamt Cato Halsaa, forstjóra Telenor, að viðstöddum Sturlu Böðvarssyni samgönguráðherra.

Stjórn fjarskiptasjóðs leitaði samstarfs við Ríkisútvarpið um verkefnið og óskað var eftir aðstoð Ríkiskaupa við undirbúning og framkvæmd samningskaupaferils. Verkið var ekki útboðsskylt þar sem það fellur ekki undir lög um opinber innkaup eða innkaupatilskipanir. Valdir voru í september síðastliðnum 9 aðilar til þátttöku og gefinn frestur fram í nóvember til að senda tilboð. Tilboð bárust frá Eutelsat, Intelsat og Telenor. Áætlaður heildarkostnaður við verkefnið er kringum 150 milljónir króna á næstu þremur árum.

Nauðsynlegt þykir að sjófarendur og íbúar strjálbýlli svæða sem ekki njóta í dag fullnægjandi þjónustu eigi möguleika á að ná stafrænt í gegnum gervihnött sjónvarpsdagskrá RÚV og dagskrá Rásar 1 og Rásar 2.

Til að ná sendingunum þarf gervihnattadisk, sem er 90-120 sentimetra í þvermál og stilla þarf hann nákvæmlega í átt til gervihnattarins Thor 5, sem er á 0,8 gráðum vestur yfir sjóndeildarhring, en nokkuð breytilegt eftir hvar er á landinu.

Útsendingarnar verða í upphafi samkvæmt DVB-S/MPEG-2 staðli, en áskilið er á samningstímabilinu, sem er 3 ár, að mögulegt verði að skipta yfir í útsendingar skv. DVB-S2/MPEG-4 staðalinn. Við diskloftnetið þarf gervihnattaviðtæki, sem tekið getur við þessum sendingum, og viðtækið þarf að hafa rauf fyrir aðgangskort skv. Conax myndlyklakerfinu, því útsendingarnar verða í læstri dagskrá vegna rétthafasamninga RÚV. Gervihnatta disk og viðtæki, ásamt uppsetningu og þjónustu þurfa neytendur að kaupa á almennum markaði, en aðgangskort verður hægt að fá hjá Ríkisútvarpinu.

Grunnupplýsinga um viðtökubúnað og uppsetningu hans er að vænta í næstu viku á vefsíðunni http://www.fjarskiptahandbokin.is/ og jafnframt er stefnt að samvinnu við SART, Samtök atvinnurekenda í raf- og tölvuiðnaði um upplýsingagjöf um viðurkennda uppsetningaraðila gervihnattabúnaðar á síðunni http://www.sart.is/

Útsendingar hófust í byrjun apríl.