Nordic Affect á Myrkum músíkdögum

Mynd af fiðlu - David Oldfield


  • Prenta
  • Senda frétt

Kammerhópurinn Nordic Affect sem er jafnfjölhæfur á barokk og samtímatónlist, hélt tónleika á Myrkum músíkdögum 2. febrúar síðast liðinn. Þau fluttu fimm verk og þar af voru tvö frumflutt; Inni - musica da camera eftir Þuríði Jónsdóttur og Hljóða hvarf eftir Önnu Þorvaldsdóttur.

Í Ópus mánudagskvöldið 4. febrúar kl. 21:10

Nordic Affect skipuðu á þessum tónleikum þau Halla Steinunn Stefánsdóttir fiðluleikari og listrænn stjórnandi hópsins, Svava Bernharðsdóttir víóluleikari, Sigurður Halldórsson sellóleikari, Georgia Browne flautuleikari og Guðrún Óskarsdóttir semballeikari.

Verkin sem Nordic Affect flutti voru fimm eins og áður sagði: Kortamel eftir Guðmund Stein Gunnarsson sem var samið fyrir hópinn á síðasta ári og frumflutt í Þjóðmenningarhúsinu það sama haust, Preludiur fyrir sembal eftir Hróðmar Inga Sigurbjörnsson frá árinu 1991 sem upphaflega voru samdar fyrir breska semballeikarann Robin Koh og frumfluttar vorið 1992 í Laugarneskirkju, hér fluttar af Guðrúnu Óskarsdóttur, þvínæst var verk Þuríðar Jónsdóttur, Inni - musica da camera, fyrir einleiksfiðlu og upptöku af hjali ungabarns - þetta verk var fyrra verkið sem var frumflutt á tónleikunum. Þvínæst var verk eftir franska tónskáldið og flautuleikarann Sophie Dufeutrelle,Couleur Neige frá árinu 2002, einleiksverk fyrir flautu, flutt af Georgiu Browne, og að síðustu hljómaði verk Önnu Þorvaldsdóttur, Hljóða hvarf, sem var samið að pöntun Nordic Affect og frumflutt á þessum tónleikum.

Verkin eftir Þuríði Jónsdóttur var skrifað fyrir Höllu Steinunni Stefánsdóttur með styrk frá Hlaðvarpanum 2012 og verk Önnu var að hluta til styrkt af Musica Nova Tónlistarsjóðnum.    

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku