Olís hefur hækkað verð á lítra af bensíni um fjórar krónur og díselolíu um tvær krónur. Algengt verð á bensínlítranum hjá Olís er nú 212,20 og á dísellítranum 204,90.
Danskt uppboðsfyrirtæki auglýsir nú eftir eðalvínum hér á landi. Vínfræðingur segir ástæðuna þá að verð á eðalvínum hér á landi sé nú mjög hagstætt.
Höfuðstóll bílalána verður færður niður og embætti umboðsmanns skuldara verður stofnað nái tillögur ríkisstjórnarinnar um aðgerðir gegn skuldavanda heimilanna fram að ganga.
Miklar verðhækkanir hafa verið á þjónustu Póstsins frá því í maí í fyrra. Dæmi eru um að verð hafi hækkað um allt að 70%.
Viðbætt vatn fannst í sex af átta sýnum af nautahakki í gæðakönnun sem Matís gerði að frumkvæði Landssambands kúabænda og Neytendasamtakanna. Kartöflutrefjum hafði í sumum tilfellum var bætt við.
Jóhannes Gunnarsson verður áfram formaður Neytendasamtakanna. Frestur til að tilkynna framboð til formanns Neytendasamtakanna rann út fyrsta mars, Jóhannes bauð sig einn fram. Kjörtímabilið er tvö ár, en það hefst á næsta þingi Neytendasamtakanna sem haldið verður seinni hluta septembermánaðar.
| 25.01.2010 | Þegar skóinn kreppir er eðlilegt að viðhorf fólks til neyslu breytist. Flestir reyna að lækka útgjöld heimilisins með því að kaupa ódýrari vörur, kaupa minna og skipuleggja innkaup sín betur. Því er eðlilegt að draga þá ályktun að kreppu fylgi samdráttur og að ódýrari vörur seljist betur en dýrar. Það er að nokkru leyti rétt en þó ekki að öllu leyti. | meira »