Íslendingur falsaði Picasso

Flokkar: Menning, Rás 1, Inni


  • Prenta
  • Senda frétt

Þekktasti málverkafalsari Íslands Sigurður Þorláksson, fullyrðir að stolt ríkislistasafnsins í Kaupmannhöfn, málverk eftir Picasso, sé málað af sér. Það hafi verið selt dönskum sjómanni á Íslandi fyrir viský og vindlinga.

,,Ég málaði þessa mynd árið 1952 eftir ljósmynd, upphaflega til að æfa mig. En eitt sinn, þegar illa stóð á, seldi ég myndina dönskum stýrimanni fyrir  kassa af viskíi og fimm karton af sígarettum". Þannig mælir Íslendingurinn Sigurður Þorláksson, 44 ára gamall, í viðtali við danska vikublaðið Rapport árið 1974. Málverkið er eitt af verðmætustu málverkunum á ríkislistasafninu í Kaupmannahöfn....málað af Pablo Picasso, segir stjórn safnsins, málað af mér, segir Sigurður Þorláksson.

Ég málaði tvær „Picasso myndir " í viðbót. Aðra með vatnslitum sem hangir nú hjá einum þekktasta listaverkasala Kaupmannahafnar. Fyrir mér er list ekkert annað en að líkja eftir verkum annarra. List er bara snobb. Þess vegna er svona auðvelt að draga fólk á asnaeyrunum".

Meira um þetta í þættinum Inni sem er á dagskrá Rásar 1 á föstudögum kl. 13.

www.facebook.com/ras1inni

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku