Meðal annars verður sýnt bréf sem Salinger sendi nemendum í Menntaskólanum við Hamrahlíð árið 1990. Það er mjög vinsamlegt, hann gefur unga fólkinu nokkur heilræði.
Sagt verður frá stórri bók sem nefnist Icelandic Art Today – þetta er veglegasta sýnisbók um íslenska samtímalist sem hefur verið gefin út, mikið verk að vöxtum og glæsilegt.
Við fjöllum líka um rithöfundinn, leikritaskáldið, blaðamanninn og spírítistann Einar H. Kvaran, en í 6. desember voru liðin 150 ár frá fæðingu hans.
Kolbrún og Páll fjalla um hina umdeildu bók Votlendi eftir Charlotte Roche – bók sem sumir segja að rambi á mörkum þess að vera argasta klám – og Leik engilsins eftir Carlos Ruiz Zafón, höfund þeirrar frægu bókar Skuggar vindsins. Í bókinni er Zafón á svipuðum slóðum og síðast, í dularfullum afkimum Barselónu.
Bragi segir frá íslenskri konu sem varð hefðarfrú í Austurríki Habsborgaranna.

