Vinnuslys varð í Slippnum á Akureyri í dag þegar skotbómulyftari valt á hliðina. Stjórnandi lyftarans var fluttur á sjúkrahús til skoðunar en meiðsli hans reyndust minniháttar að sögn lögreglu. Nánari tildrög slyssins eru óljós en líklegt er að jarðvegur hafi gefið sig undan lyftaranum í togbraut Slippsins.
frettir@ruv.is