Vinna loðnu fyrir Japansmarkað

Verðmætasti tími loðnuvertíðarinnar er framundan, en vinnsla á hrognafullri loðnu fyrir Japansmarkað er almennt að hefjast. Loðnan er stærri en undanfarin ár og staða íslenskra framleiðenda því sterk á þessum verðmæta markaði.
Loðnuveiðin þessa dagana fer að langmestu leyti fram grunnt undan suðausturströndinni og loðnan gengur vestur með landinu. Þar er að sögn sjómanna nóg af loðnu, en hún er frekar dreifð og engin mokveiði. Tvö skip HB Granda reyndu fyrir sér norður á Grímseyjarsundi, en árangur þeirra bendir ekki til að því verði haldið áfram.
Hrognafylling loðnunnar er nú komin á það stig að fyrirtækin eru byrjuð að frysta hrygnu fyrir Japansmarkað. Þessi vinnsla er hafin í Neskaupstað og Vestmannaeyjum. Hornfirðingar eru í startholunum og Vopnfirðingar sömuleiðis.
„Við byrjuðum að frysta Japansloðnu fyrir nokkrum dögum. Loðnan lítur bara vel út, stærðin er góð og hrognafylling er um 17 prósent,“ segir Sindri Viðarsson sem stýrir vinnslu á uppsjávarafurðum hjá Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum. Sú loðna sem nú er unnin fyrir Japansmarkað er mun stærri en undanfarin ár og því standa íslenskir framleiðendur vel að vígi á þessum markaði. „Við sáum svona stóra loðnu í fyrra og erum að sjá hana aftur núna. En árin þar á undan vorum við allavega ekki að ná svona stórri loðnu í miklu magni.“
Sindri segir að verð fyrir loðnuafurðir í Japan hafi þó oft verið betra. „Verðin í sögulegu tilliti eru ekkert mjög há. En þau eru ágæt.“
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is












