Vinir Sjonna komnir heim

Vinir Sjonna við heimkomuna.
Vinum Sjonna og föruneyti þeirra var fagnað með blómum við komuna til landsins seint í gærkvöld. Þeir virtust sælir að sjá eftir tveggja vikna dvöl í Düsseldorf í Þýskalandi.
Fulltrúar RÚV tóku á móti félögunum í Leifsstöð og afhentu þeim blómvendi í þakklætisskyni fyrir góðan árangur og einlægan flutning á framlagi Íslands: Coming Home.
Gríðarleg fagnaðarlæti brutust út í höfuðborg Aserbaídsjan, Baku, þegar ljóst var að þau Eldar Gasimov og Nigar Jamal höfðu sigrað í söngvakeppninni og þar með beint sviðsljósinu að þessu fjarlæga landi þar sem um níu milljónir búa. Söngvakeppnin verður væntanlega haldin þar að ári og eflaust hafa einhverjir spurt sig, hvar er Aserbaídsjan?
Og skyldi engan undra því Aserbaídsjan er lengra í burtu en flest keppnislöndin. Það markast af Kaspíahafi í austri, Rússlandi í norðri, Georgíu, Armeníu og Tyrklandi í vestri og Íran í suðri.
Það verður því öllu lengra ferðalag sem bíður íslensku keppendanna að ári...
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is







